Morgunblaðið - 26.06.2014, Síða 36
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Þrif fyrir „ótrúlega“ lág laun
2. Kynþokkafyllstu eiginkonur á HM
3. Stunda kynlíf einu sinni í mánuði …
4. Seldi systur sína í hjónaband
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Útgáfu ljóðabókarinnar Hvera-
fuglar eftir Einar Georg verður fagn-
að í dag kl. 17 í verslun Eymundsson
að Laugavegi 77. Einar Georg er
kunnur af textasmíð sinni fyrir syni
sína, þá Þorstein í hljómsveitinni
Hjálmum og Ásgeir Trausta. Ásgeiri
er greinilega fleira til lista lagt en
tónlist því hann myndskreytir ljóða-
bók föður síns. Ásgeir mun leika fyrir
gesti í útgáfuhófinu í dag.
Morgunblaðið/Kristinn
Ásgeir fjölhæfur
Alþjóðlega
myndlistarsýn-
ingin Rúllandi
snjóbolti/5,
Djúpivogur verður
opnuð 12. júlí nk. í
Bræðslunni á
Djúpavogi. 33
listamenn frá
Kína, Evrópu og
Íslandi taka þátt í sýningunni sem er
samvinnuverkefni Djúpavogshrepps
og Chinese European Art Center. Ís-
land er fyrsta landið utan Kína þar
sem stofnunin stendur fyrir sýningu.
Meðal íslenskra listamanna á sýning-
unni eru Erró, Ragna Róbertsdóttir,
Rúrí, Ragnar Kjartansson og Kristján
og Sigurður Guðmundssynir.
Rúllandi snjóbolti
Sólóplata Felix Bergs-
sonar, Borgin, kemur út
í dag og af því tilefni
býður hann í matar- og
tónlistarsmakk á mat-
húsinu Bergsson sem
bróðir hans Þórir
rekur, í dag milli
kl. 17 og 19.
Bergssynir bjóða í
smakk á Bergsson
Á föstudag Hæg suðvestlæg eða breytileg átt, skýjað vestan- og
suðvestantil og sums staðar súldarloft, einkum við ströndina, en
skýjað með köflum norðaustantil. Hiti 10 til 18 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 3-10 m/s. Skýjað víðast hvar og
rigning eða súld með köflum, einkum vestantil. Lengst af þurrt og
fremur bjart norðaustantil. Hiti 10-20 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
Ari Bragi Kárason er tromp-
etleikari að atvinnu og bæj-
arlistamaður Seltjarnar-
ness. Í fyrra fór hann að æfa
frjálsíþróttir, á dögunum
var hann valinn í landsliðið
og setti um helgina Íslands-
met með boðhlaupssveit Ís-
lands í Evrópukeppni lands-
liða í Georgíu. „Ég ákvað í
nóvember að byrja að æfa
reglulega og nú á þetta hug
minn og hjarta,“ segir Ari.
»4
Bæjarlistamað-
urinn í landsliðinu
Beðið er eftir niðurstöðu Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA, í
máli Luis Suárez. Sá frestur sem FIFA
gaf Suárez og úrúgvæska
knattspyrnusambandinu
til að svara fyrir sig
rann út klukkan átta í
gærkvöld að íslensk-
um tíma. Búist er við
niðurstöðu í dag.
FIFA er vandi á
höndum. Ekkert
mál þessu líkt
hefur verið á
borði sambands-
ins áður. »1
Beðið eftir niðurstöðu
FIFA um Luis Suárez
Argentína, Nígería, Frakkland og
Sviss tryggðu sér farseðilinn í 16-liða
úrslitin á HM í Brasilíu í gær. Riðla-
keppninni á heimsmeistaramótinu
lýkur í kvöld og verður fróðlegt að sjá
hvort Aron Jóhannsson og félagar
hans í bandaríska liðinu komast
áfram en þeir etja kappi við sterkt lið
Þjóðverja og dugar báðum liðum jafn-
tefli til að komast áfram. »2-3
Komast Aron og félagar
áfram á HM?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Oftast er flugfært hingað til Hafnar. Á veturna
heyrir til undantekninga að dagur falli úr, en á
sumrin verða stöku sinnum frátafir, til dæmis þeg-
ar köld gola af hafinu með þoku kemur hér inn yfir
Nesjar. Þó er þetta frekar fátítt; fjöll eru engin fyr-
irstaða hér, aðflugstækin góð og flugmennirnir
öruggir,“ segir Vignir Þorbjörnsson.
Sjómaður á Suðurfjörur
Óhætt er að segja að Vignir sé táknmynd flugs-
ins á Höfn í Hornafirði. Hann hefur í um hálfa öld
starfað á flugvellinum þar og haft afgreiðslu far-
þegavéla með höndum. Lengst fyrir Flugfélag Ís-
lands en frá 2007 fyrir Flugfélagið Erni.
Þjónusta við flugið eystra er embætti sem geng-
ur í erfðir. Þegar Flugfélag Íslands hóf þangað flug
árið 1939 hafði afi Vignis, Sigurður Ólafsson skip-
stjóri, starfið með höndum. Traustan sjómann
þurfti til starfsins, en allt til 1965 var flugvöllur
Hornfirðinga á Melatanga á Suðurfjörum vestan
óss Hornafjarðarfljóts. Þurfti að fara á bát úr kaup-
túninu á tangann til þess að komast í flug. Þau Þor-
björn Sigurðsson og Ágústa Vignisdóttir, foreldrar
Vignis, tóku við flugafgreiðslunni síðar. Það var svo
1965 sem núverandi flugvöllur á Höfn, upphaflega
kenndur við bæinn Ánanes, var tekinn í notkun. Þá
var Vignir byrjaður í flugafgreiðslunni, formlega
árið 1970.
Blikfaxi kom fyrstur
„Maður lifir og hrærist í þessu,“ sagði Vignir
þegar Morgunblaðið hitti hann eystra í vikunni.
„Þegar ég byrjaði voru Douglas DC-3-vélarnar frá
Flugfélagi Íslands í aðalhlutverki. Þegar þessi flug-
völlur var svo opnaður 22. september 1965 var
Fokker Friendship að taka við. Fyrsta vélin sem
hér lenti var þeirrar gerðar, Blikfaxi, þá nýkomin
til lands. Síðan þá hefur ýmsum gerðum véla verið
flogið til Hafnar og nú J32 Jetstream hjá Erni.“
Vignir segir ánægjulegt að farþegum í Horna-
fjarðarflugi fjölgi, meðan fækki á öðrum leggjum.
„Þegar Ernir tók við flugi hingað fyrir sjö árum
voru farþegar á ári um 10.000 en verða í ár minnst
þúsundinu fleiri. Þarna ræður að ferðamönnum
fjölgar. Jöklarnir heilla. Þá er talsvert umleikis í at-
vinnulífi hér; ferðaþjónustu og sjávarútvegi,“ segir
Vignir. Hann telur þetta staðfesta mikilvægi innan-
landsflugsins fyrir byggðir úti á landi. Þá megi ekki
heldur gleyma öryggissjónarmiðunum. Á síðasta
ári hafi sjúkraflugvélar komið um fimmtíu sinnum
til Hornafjarðar – þá að jafnaði vikulega.
Dótturdætur til starfa
„Áður fyrr var ég í turninum og leiðbeindi flug-
mönnum til lendingar og í afgreiðslu. Nú dugar það
síðarnefnda,“ segir Vignir Þorbjörnsson. Starfinu
hafa þau Sigríður Eymundsdóttir kona hans sinnt
og margir fleiri. Börn þeirra hafa komið að málum
og nú dótturdæturnar Vigdís María og Ragnhildur
Lind. Allt gengur í hringi – fimmti ættliðurinn er
kominn til starfa á Hornafjarðarflugvelli.
Flugið er samofið tilverunni
Vignir í hálfa öld á
Hornafjarðarflugvelli
Fimmti liður til starfa
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lesning Vignir Þorbjörnsson. Mörg var sendingin og hið daglega Morgunblað er auðvitað ómissandi.
Ernismenn Sigurbjörn Ragnarsson flugstjóri og
Ólafur Haukur Ólafsson við skrúfuþotuna.
Einn merkasti atburðurinn í flugsögu Íslands
var þegar hinn sænski Eric Nelson flugkappi
kom til Hornafjarðar fyrir 90 árum, 2. ágúst
1924. Ísland var einn viðkomustaða Nelsons
í fyrsta fluginu umhverfis hnöttinn. Sjó-
flugvél sinni lenti hann úti á Hornafirðinum.
Hélt svo áfram – eins og byr gaf – og náði
til New York í septemberbyrjun. Eru Horn-
firðingar áfram um að halda þessu sögulega
afreki Nelsons á lofti og um það eru tvö
minnismerki; annað hjá hótelinu á Höfn og
hitt við flugvöllinn.
Í núinu er veruleikinn hins vegar sá að
flugmenn sem koma handan um höf mega
ekki lenda á Hornafirði, sakir gildandi reglna
um öryggismál og landamæri.
Nelson til New
York fyrir 90 árum
VIÐKOMUSTAÐUR Í HNATTFLUGI