Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
Ég? Svo er að skilja að það sé svarið við spurn-ingunni í fyrirsögninni. Alla vega var fullyrt
í fréttaþætti á RÚV að við sem erum andvíg aðild
Íslands að Evrópusambandinu óskuðum beinlínis
eftir þessari þrenningu; háu vöruverði, mikilli verð-
bólgu og háum vöxtum. Allt þetta þætti okkur sér-
staklega eftirsóknarvert og einmitt þess vegna
hefðum við skipað okkur í raðir andstæðinga ESB-
aðildar.
Nú er vöruverð mishátt innan Evrópusambands-
ins, sums staðar lágt, annars staðar hátt. Sama á
við um vexti, eins ótrúlegt og það kann að hljóma
eftir allar fullyrðingarnar um að til séu staðlaðir
Evrópuvextir á neytendamarkaði og að þeir séu
nánast við núllmarkið. Stýrivextir á evrusvæðinu
eru nú að sönnu lágir til að sporna gegn samdrætti
og stórauknu atvinnuleysi.
En þrátt fyrir það fyrirfinnast bæði lágir og háir
markaðsvextir innan ESB. Í heimi stjórnmálanna á
Íslandi þykja lágir vextir eftirsóknarverðir, alla
vega á góðri stundu þegar höfðað skal til lántak-
enda. Á því eru þó frægar undantekningar, til
dæmis þegar bankarnir reyndu að knésetja Íbúða-
lánasjóð um miðjan fyrsta áratuginn og til stóð að
sjóðurinn svaraði fyrir sig og byði upp á rýmkun
lána á hagstæðum vöxtum. Þá kvað við mikið rama-
kvein frá bönkunum – hinum sömu og vildu Íbúða-
lánasjóð feigan – og heyrist bergmálið af því kveini
enn. Lágir Íbúðalánasjóðsvextir – gagnstætt lágum
Evrópuvöxtum – þóttu nefnilega til þess fallnir að
auka þenslu.
Fyrir þá lesendur sem eru ekki alveg búnir að ná
þessu, þá þóttu lágir Íbúðalánasjóðsvextir efna-
hagslegt skaðræði en lágir Evrópuvextir allra
meina bót. Undir þetta tóku ekki ómerkari aðilar
en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og OECD. Lántak-
endur vildu hins vegar bara lága vexti!
Sjálfur hef ég lengi gagnrýnt hávaxtastefnu sem
stjórntæki og aldrei verið sérstakur aðdáandi verð-
bólgu þótt verst þyki mér atvinnuleysið.
En hver leyfa sér að afbaka afstöðu gagnrýn-
enda ESB með fyrrgreindum hætti?
Í vikunni kom fram áhugahópur sem undirbýr
stofnun stjórnmálaflokks með aðild Íslands að ESB
að meginmarkmiði.
Það er ágætt að hreyfing sé á flokkakerfinu, nýir
flokkar fæðist og gamlir deyi drottni sínum, smækki
eða stækki eftir atvikum. Stjórnmálaflokkar mega
aldrei verða að stöðnuðum stofnunum sem stuðnings-
fólkið heldur tryggð við af löngu gleymdri ástæðu.
Þess vegna er ekkert nema gott um það að segja
þegar hægrisinnað áhugafólk um inngöngu Íslands
í Evrópusambandið stofnar stjórnmálaflokk um
þetta brennandi áhugamál sitt.
En ekki lofar það góðu að hefja vegferðina á út-
úrsnúningum og rangtúlkunum á afstöðu þeirra
sem eru á öndverðum meiði.
Svo ég leyfi mér að tala fyrir eigin munn, þá vil
ég hagstætt vöruverð, litla verðbólgu og lága vexti.
Ég vil líka lítið atvinnuleysi, minna en er gegnum-
gangandi í ESB, rýmri möguleika til þjóðar-
atkvæðagreiðslna en ESB býður upp á, minni mið-
stýringu og meira lýðræði en gerist í Evrópu-
sambandinu!
* En ekki lofar það góðuað hefja vegferðina á út-úrsnúningum og rangtúlk-
unum á afstöðu þeirra sem
eru á öndverðum meiði
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur
Jónasson
ogmundur@althingi.is
Hverjir vilja hátt vöruverð, mikla
verðbólgu og háa vexti?
Það bregst ekki að sjónvarps-
maðurinn og Baggalúturinn Bragi
Valdimar Skúlason sé sniðugur
á Facebook. Í vik-
unni setti hann
inn stöðufærslu
sem hljóðaði svo:
„Þennan dag fyrir
100 árum var
djókurinn „Hvað
er þetta hvíta? – Kallinn var að
skíta“ fundinn upp.“ Edda Björg
Eyjólfsdóttir svaraði: „og stuttu
síðar þetta græna, kallinn er að
spræna...“ Fimmaurinn klikkar
ekki.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, á
tvo sniðuga stráka á skemmti-
legum aldri og
deilir hún gjarnan
því sem þeir taka
sér fyrir hendur
og ýmsum gull-
molum sem þeir
láta út úr sér.
„Helgi Matthías...frekar frústrer-
aður yfir því að þurfa að nota
kúta í sundlauginni: „Ég fót einu
sinni á sundnámskeið með
mömmu - en það mistókst. Glat-
að“,“ skrifaði hún í vikunni.
Börkur Gunnarsson, leik-
stjóri og rithöfundur, er greinilega
mikill fótboltaáhugamaður. Hann
komst að raun um að ekki deildu
allir sama áhugamáli. „Mér varð
litið útum gluggann núna áðan á
meðan leikurinn var enn í gangi
og sá að það var bíll á ferli úti á
götu.
Ok, já?
Það er semsagt einhver þarna
úti sem veit ekki að fótbolti er
tilgangur lífsins?
Greyið hann.“
Auður Jónsdóttir rithöfundur
er búsett í Berlín.
Einn morguninn
var sonur hennar
eitthvað ósam-
mála því hvernig
móðir hans útbjó
morgunverðinn
sinn. „Ég var að hella Chia-fræjum
yfir hafragrautinn minn í morgun
þegar sonur minn hrópaði æstur:
Nei, nei, ekki, mamma. Þetta er
matur fuglanna!“ skrifaði hún á
Facebook. Chia-fræ, alveg fárán-
legt!
AF NETINU
Vettvangur
þessu glam útliti. Cooper var kominn í glam-
gallann 1968 – löngu áður en þetta komst í
tísku.
Hún er góð vinkona okkar og fyrst bróðir
minn og Birgir trommari voru búnir að kaupa
sér ný og flott hljóðfæri bað ég hana að hanna
fyrir mig eitthvað flott fyrir þennan túr. Ég á
bara enn gamla gítarinn,“ segir Ingó og hlær,
en alls gerði Cindy fjóra búninga fyrir hann. Stefán Jakobsson með tilþrif á sviðinu. Einn af fjórum búningum sem Ingó fékk frá Cindy.
Selma Ragnarsdóttir Cindy Smith Dunaway
Þungarokkshljómsveitin Dimma hélt útgáfu-
tónleika í Hörpu í vikunni. Bandið er nýbúið að
gefa út diskinn Vélráð og var fullt út úr dyrum
á tónleikunum, þar sem boðið var meðal ann-
ars upp á sprengjur og annað sjónarspil.
Ingó Geirdal, gítarleikari hljómsveitarinnar,
og Stefán Jakobsson söngvari vöktu athygli
tónleikagesta fyrir ekki aðeins magnaða
frammistöðu heldur einnig fataval. Stefán
skartaði sérhannaðri flík sem Selma Ragnars-
dóttir, fatahönnuður og frænka hans, gerði en
Ingó hafði samband við sjálfa Cindy Smith Du-
naway, sem gerði búninga fyrir Alice Cooper.
„Við bræður erum búnir að vera að spila öðru
hvoru með upprunalegum meðlimum Alice
Cooper bandsins frá 1998. Kona bassaleikar-
ans, hún Cindy, var búningahönnuður Alice
Cooper og algjör frumkvöðull þegar kom að
Vélráð í hátísku