Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Side 18
asdfasdf
V
insældir karókís, sem á
japönsku þýðir tóm hljóm-
sveit, hafa farið vaxandi
samkvæmt hinum ýmsu
eigendum slíkra bara og þá helst á
meðal ungu kynslóðarinnar. Að
sama skapi hefur megináherslan
færst frá hefðbundnum popplögum
yfir á heldur óþekktari slóðir
með þeim afleiðingum að
ýmsir sérhæfðir karókíbarir
hafa skotið upp kollinum. Iðj-
an hefur því sums staðar orðið
að hálfgerðri undirmenningu
með sínum fastagestum sem
snobba fyrir hinu og þessu.
Í London er til að mynda
hægt að þenja raddböndin á bör-
unum The Birdcage og The Alibi,
sem báðir eru austarlega í borg-
inni. Pönkið virðist eiga upp á pall-
borðið hjá Bretanum, en staðirnir
eru gjarnan troðfullir af rámum og
reykjandi þrjótum sem yggla sig
þegar óþolandi túristar, á borð við
undirritaðan, taka Believe með
Cher. Íslendingurinn fékk þó upp-
reisn æru eftir að hafa sogið nokkur
íþróttablys og öskrað „Judy Is a
Punk“ með bandarísku pönksveit-
inni The Ramones.
Því næst má nefna París og
Strassborg í Frakklandi, þar sem
stemningin er talsvert frábrugðin
þeirri í London. Bjórinn vék fyrir
rauðvíninu og Frakkinn sat rólegur
og starði angurblíður út í loftið á
meðan hver franski slagarinn á eftir
öðrum var sunginn. Erfitt var að
finna lög á ensku en hins vegar
mátti finna öll lög sjarmatröllsins
Serge Gainsbourg og því voru lögin
„Ballade de Melody Nelson“ og „Je
t’aime... moi non plus“ rauluð við
litlar undirtektir viðstaddra.
Í Berlín í Þýskalandi var andinn
svipaður og í London og ekki leið á
löngu þar til rambað var inn á karó-
kíbar sem sérhæfði sig í lögum eftir
meistara David Bowie. Staðurinn
var troðinn og margir að bíða eftir
hljóðnemanum. Biðin var þó vel
þess virði enda einstaklega
skemmtilegt að syngja „Rock ’n’
Roll Suicide“ með tilheyrandi lát-
bragðsleik. Vonbrigði þessarar
miklu karókímenningarferðar voru
þó klárlega Barselóna á Spáni.
Nærri öll lög sem finna mátti voru
drepleiðinlegir spænskir slagarar og
búið var að talsetja öll ensk lög á
spænsku. Að sama skapi voru við-
staddir einstaklega þurrir og engum
þótti fyndið þegar hent var í eitt
stykki orm á sviðinu. Það skal þó
tekið fram að ég kann hvorki að
breikdansa né syngja svo það er
mögulega skiljanlegt.
LONDON, PARÍS, BERLÍN OG BARSELÓNA
Karókí-
klúbbar
Evrópu
HIÐ ÓDAUÐLEGA LISTFORM KARÓKÍSÖNGS
VERÐUR AÐ TELJAST MEÐ BETRI LEIÐUM TIL AÐ
KYNNAST TÓNLISTARLÍFI STÓRBORGA, EN SLÍKU
FÉKK UNDIRRITAÐUR AÐ KYNNAST Á FERÐUM
SÍNUM UM EVRÓPU FYRIR SKEMMSTU.
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is
* Í London er til að myndahægt að þenja raddböndiná börunum The Birdcage og
The Alibi, sem báðir eru aust-
arlega í borginni.
Ferðalög
og flakk *Á milli Kreuzberg og Friedrichshain í Berlínmá finna einhvern magnaðasta næturklúbb íEvrópu, Berghain. Staðsetningin er fremursérstæð en skemmtistaðurinn er staðsettur ístóru yfirgefnu orkuveri sem lítur helst útfyrir að vera sviðsmynd kvikmyndarinnarThe Cabinet of Dr. Caligari. Staðurinn er
þekktur fyrir langa þjónustutíma, myrkra-
herbergi og er rómaður fyrir raftónlist.
Klúbbur í yfirgefnu orkuveri
Kæra Morgunblað.
Hér er ég stödd í miðju alheims, að mér finnst, þar sem Pétur Pan passar upp
á að enginn verði fullorðinn. Lundúnaborg hefur upp á margt að bjóða og helgin
er alltaf rétt að byrja. Í kvöld er fyrsti fimmtudagur mánaðarins og þá opnast dyr
gallería með nýskreyttum veggjum og ókeypis öli. Listin er jú lokkandi.
Föstudagar og laugardagar gleymast yfirleitt í dansi og þá tekur sunnudagur
við, það eru bestu dagarnir. Þeir byrja oftast á markaði eða almenningsgarði þar
sem farið er yfir stöðu mála í góðra vina hópi. Ef einhver afgangs orka er til stað-
ar þá er ekkert annað í stöðunni en að eyða henni í eðaljazz á hverfispöbbnum
þar sem maður getur þóst vera heimsborgari. Svo kemur mánudagur, en það er
allt í lagi því helgin er þá hvort sem er rétt að byrja. Það er gott að vera listamað-
ur í London.
Þangað til næst. Sigurrós Eiðsdóttir. Brick Lane getur verið heillandi. Allt er á hvolfi í Westminster.
Listin að lifa í London
Sigurrós nemur myndlist við Golds-
miths-háskólann í Lundúnaborg.
PÓSTKORT F
RÁ LONDON
Það er alltaf
vinsælt að t
aka The
Ramones á k
arókíbörum
.
Finna mátti
lög Serge
Gainsbourg
á karókí-
börum í
Frakklandi.
Sérhæfðir karó-kíbarir hafa skot-ið upp kollinum.