Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
Franska menningarsjónvarpsstöðin Arte Ac-
tion Culturelles hélt veislu í París á föstudag
til heiðurs alþjóðlegu listahátíðinni Ferskir
vindar í Garði. Hátíðin hlaut þann heiður í
vetur að fá styrk frá sjónvarpsstöðinni
frönsku. Í veislunni var hátíðin kynnt meðal
menningarfrömuða í Frakklandi og tónlist-
arfólk Ferskra vinda tróð upp af því tilefni. Þá
voru kvikmyndir og myndsýningar af lista-
verkum listafólksins frá hátíðinni sýndar
ásamt ýmsum óvæntum uppákomum.
Listahátíðin Ferskir Vindar hefur verið haldin
annað hvert ár frá árinu 2010. Á hátíðina er
boðið 50 listamönnum hverju sinni, víðs-
vegar að úr heiminum. Þeir starfa og búa í
Garði í fimm vikur.
FRÖMUÐIR KYNNAST GARÐI
VEISLA Í PARÍS
Næsta Ferskra vinda-hátíð hefst 15. desember
2015 og stendur til 17. janúar 2016.
Morgunblaðið/Eggert
Klais-orgelið Hallgrímskirkju er stærsta orgel
landsins og var formlega vígt árið 1992.
Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju
hefst með hátíðlegum hætti laugardaginn 14.
júní. Þetta er 22. sumarið í röð sem hátíðin
er haldin, eða allt frá því að Klais-orgel kirkj-
unnar var vígt árið 1992. Orgelið er stærsta
orgel landsins og gegnir mikilvægu hlutverki í
íslenskri tónlistarsögu. Björn Steinar Sól-
bergsson leikur á fyrstu tónleikum sumars-
ins. Hann hefur verið organisti við Hallgríms-
kirkju frá 2006 en áður starfaði hann við
Akureyrarkirkju í 20 ár. Fernir tónleikar
verða haldnir í hverri viku í sumar, frá 14.
júní til 17. ágúst, alls 38 tónleikar yfir sum-
artímann.
HÁTÍÐ Í HALLGRÍMSKIRKJU
ORGEL Í SUMAR
Einkasýning Þorgerðar
Þórhallsdóttur, Nobody
Will Ever Die, verður opn-
uð laugardaginn 14. júní kl.
17:00 í Kunstschlager,
Rauðarárstíg 1. Sýningin
hverfist um vídeóverkið
Everything is as it should
be, Nothing will ever
change, Nobody will ever
die. Verkið sýnir afa Þor-
gerðar, Gísla Magnússon
píanóleikara (1929–2001), æfa 4. píanókons-
ert Beethovens heima hjá sér. Gísli flutti kons-
ertinn ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands 16.
mars 1989, fjórum dögum eftir að Þorgerður
fæddist. Þorgerður útskrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands 2013 og hefur verið meðlimur í
Kunstschlager síðan í október það ár. Þetta er
hennar fyrsta einkasýning eftir útskrift. Í haust
stefnir hún á mastersnám í myndlist við Konst-
högskolan í Malmö.
MYNDLIST Í KUNSTSCHLAGER
ÆFING GÍSLA 1989
Þorgerður Þór-
hallsdóttir í
Kunstschlager.
Sjö íslenskir listamenn og tveir þýskir standa að sýningunni Plastic
Poetics eða Ljóðrænt plast sem opnuð var föstudaginn 13. júní í hinu
listamannarekna rými Salon Mutlu í Berlín. Íslensku listamennirnir
eru Árni Már Erlingsson, Hrefna Hörn Leifsdóttir, Hrund Atladótt-
ir, Gunnar Jónsson, Ingibjörg Jara Sigurðardóttir, Björk Viggósdótt-
ir og Petra Valdimarsdóttir. Þýsku listamennirnir tveir eru Boris
Fauser og Hanna Mattes. Sýningarstjóri sýningarinnar er Hrafnhild-
ur Gissurardóttir en hún útskrifaðist af myndlistarbraut Gerrit Riet-
veld Academie í Amsterdam árið 2011 og stundar nú mastersnám við
Universität der Kunste Berlin.
Í tilkynningu frá sýningarstjóra segir að sýningin gagnrýni notkun
og offramleiðslu plasts en upphefji þó samtímis plastið sem miðil.
Áhersla sýningarinnar er þannig á tvíræða afstöðu til plastsins. Á
sýningunni getur m.a. að líta skúlptúra úr frauðplasti, plastskúlptúra
unna með þrívíddarprenttækni, röð ljósmynda sem sýnir órætt lands-
lag með þremur sólum, innsetningu úr plasti sem myndar regnboga
innan rýmisins og myndbandsverk af dansandi plastpokum, sem tek-
ið er upp undir sjávaryfirborði við eyjuna Aruba í Karíbahafinu. Sýn-
ingin stendur til 1. júlí næstkomandi.
ÍSLENSKIR OG ÞÝSKIR LISTAMENN SÝNA Í BERLÍN
Unnið með
plast í Berlín
Stilla úr myndbandsverki eftir Björk Viggósdóttur. Verkið heitir Ear-
drum og má sjá á sýningunni en það er tekið upp í íslenskri náttúru.
Verk eftir Boris Fauser.
LISTAMENN VELTA FYRIR SÉR NOTKUN PLASTS SEM Á
SÉR MARGAR HLIÐAR, JÁKVÆÐAR SEM NEIKVÆÐAR.
Úr verki eftir Hrund Atladóttur.
Ljósmyndir/Árni Már Erlingsson
Menning
Flest laganna sem við spilum hafa lifað íþjóðarsálinni í langan tíma. Fólk sækir ísönglagaarfinn. Ég hef sérlega gaman
af viðbrögðum unga fólksins þegar það heyrir
lög sem ekki hafa verið spiluð að ráði í tugi
ára. Fólki finnst það kannast við lögin þótt
það hafi líklega aldrei heyrt þau áður. Söng-
lagaarfurinn er í erfðaefni Íslendinga,“ segir
Helgi Björnsson, söngvari, leikari og hesta-
maður, um tónlistina sem hann leikur með
Reiðmönnum vindanna. Sveitina skipa um
þessar mundir Stefán Már Magnússon gítar-
leikari, Hrafn Thoroddsen hljómborðsleikari,
Ingi Björn Ingason bassaleikari og Benedikt
Brynleifsson, sem leikur á trommur. Einar
Valur Scheving og Jakob Magnússon, sem
spilað hafa með sveitinni, eru vant við látnir í
þetta sinn. „Drengirnir úr Buff, þeir Hannes
Friðbjarnarson, Pétur Örn Guðmundsson og
Haraldur Sveinbjörnsson, eru síðan með okk-
ur líka,“ segir Helgi. „Þeir bæði radda og
spila. Röddunin á plötunum okkar er frá þeim
komin, þeir eru ótrúlega flottir í röddun.“
Helgi hefur verið í hestamennsku í mörg
ár, en sem þekkt er fylgir hestamennsku rík
söngvahefð. „Ég hafði látið mér detta í hug að
gera hestamannaplötu nokkuð fyrir útgáfu
fyrstu plötunnar okkar en aldrei látið verða af
því. Árið 2008 ákvað ég síðan að láta slag
standa og platan Ríðum sem fjandinn var tek-
in upp á einni viku, aðallega til gamans fyrir
mig og félaga mína. Við fórum með hana á
Landsmót hestamanna þá strax um sumarið
og þessi tónlist varð svo vinsæl að ekki varð
aftur snúið. Þannig urðu Reiðmenn vindanna
til. Það sem upphaflega átti að verða ein plata
með hestamannalögum er orðið að þremur
plötum og hljómsveit – hugmyndin fékk sitt
eigið líf og maður fær að vera farþegi í því.“
Sveitin hefur átt velgengni að fagna allar
götur síðan og gefið út tvær plötur til við-
bótar, Þú komst í hlaðið (2011) og Ég vil fara
upp í sveit (2012). „Fyrsta platan var mjög
nátengd hestamennskunni og lögin þar höfðu
mörg beina skírskotun í hesta. Þetta þema
víkkaðist hins vegar fljótt út og segja má að
seinni plöturnar tvær séu fremur tengdar ís-
lenska sumrinu en hestamennskunni ein-
göngu. Þetta eru lög sem fólk syngur í úti-
legum, uppi á fjöllum, í sumarbústaðnum og á
mannamótum undir berum himni.“
Tónleikar í Hörpu
Síðustu stórtónleikar sveitarinnar í Reykjavík
voru haldnir í Háskólabíói árið 2011. Leikurinn
verður nú endurtekinn í Eldborg Hörpunnar
hinn 16. júní næstkomandi. „Þetta var mikið
fjör hjá okkur síðast,“ segir Helgi. „Ég hef
tvisvar haldið tónleika í Eldborg í kringum 17.
júní. Ég fæ þá ýmsa tónlistarmenn í lið með
mér og við leikum íslenskar dægurlagaperlur.
Reiðmenn vindanna spila auðvitað íslenskar
dægurperlur líka, þannig að mér datt í hug að
halda tónleika með þeim í kringum
sautjándann í þetta skiptið.“ Helgi og félagar
hans í Reiðmönnum vindanna gáfu síðan í til-
efni tónleikanna út lagið „Viltu dansa“. Lagið
er eftir Magnús Eiríksson og var eitt hans
fyrstu laga. Með Helga í nýrri útgáfu lagsins
eru tónlistarkonurnar Bjartey Sveinsdóttir og
Gígja Skjaldardóttir. Þær eru meðlimir í hljóm-
sveitinni Ylju og munu koma fram á tónleik-
unum í Hörpu. Fleiri góðra gesta má reyndar
vænta á tónleikunum, því Jóhann Sigurðarson
(Jói Sig), Hilmir Snær Guðnason og Örn Árna-
son verða þar einnig. „Þeir voru með okkur í
Háskólabíói líka og við skemmtum okkur vel.
Þeir tóku lagið, sögðu sögur og brandara og
stemningin var eins og hún gerist best í hest-
húsunum,“ segir Helgi.
Spurður hvort sveitin muni ferðast um
landið í sumar og spila, þá jafnvel á sveita-
böllum, segir Helgi tónlistarbransann vera
nokkuð breyttan hvað sveitaböll varði. „Það er
af sem áður var, þegar menn endasentust í
hvert einasta félagsheimili landsins yfir
sumartímann. Sveitaböllum hefur fækkað
gríðarlega. Nú syngur maður mest á haustum
og vetrum, t.d. á þorrablótum og árshátíðum.
Á sumrin eru það helst bæjarhátíðirnar sem
bjóða upp á tækifæri fyrir tónlistarmenn.
Plöturnar okkar þrjár eru síðan auðvitað mik-
ið spilaðar yfir sumartímann, þetta er sumar-
og gleðitónlist.“
Þrjátíu ára söngafmæli
Helgi lætur ekki staðar numið við stórtónleika
í Hörpu með Reiðmönnunum, því haustið
verður annasamt hjá honum.„Í haust á ég
þrjátíu ára söngafmæli, þ.e. þrjátíu ár verða
liðin frá útgáfu fyrsta hljóðrituðu plötunnar
minnar. Þessum tímamótum hyggst ég fagna
með útgáfu safnplötu þar sem farið verður yf-
ir þennan þrjátíu ára feril. Þar fyrir utan ætla
ég að ferðast einn um landið með kassa-
gítarinn og spila fyrir þjóðina.“
HELGI BJÖRNS OG REIÐMENN VINDANNA HALDA TÓNLEIKA Í HÖRPU
„Sönglagaarfurinn
er í erfðaefni Íslendinga“
HELGI BJÖRNSSON OG REIÐMENN VINDANNA SLÓGU Í GEGN ÁRIÐ 2008 MEÐ PLÖTUNNI RÍÐUM SEM
FJANDINN. EKKI VARÐ AFTUR SNÚIÐ OG NÚ, TVEIMUR PLÖTUM SÍÐAR, HELDUR SVEITIN TÓNLEIKA Í HÖRPU.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna láta fjörið ekki vanta þegar tónleikar eru annars vegar.