Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.6. 2014
Matur og drykkir
A
fmæli fjölskyldumeðlima eru öll í sama mánuði svo það er
stundum skellt í eina góða afmælisveislu fyrir alla. Það er voða
praktískt út af afmælisskreytingunum,“ segir Erna Kaaber,
vert á veitingastaðnum Icelandic Fish & chips sem bauð í af-
mælishádegisverð á dögunum.
„Mér finnst engin máltíð almennileg án salats svo ég ákvað að það yrði
í aðalhlutverki. Salöt eru seðjandi og næringarrík án þess að keyra melt-
inguna í yfirvinnu. Það er góð uppskrift að vellíðun á sumardegi og það
er engin ástæða til að taka matargerðinni of hátíðlega, það er ávísun á
leiðindi. Það er nánast hægt að henda hverju sem er saman í skál og
skella yfir vínagrettu. Baksturinn læt ég hins vegar börnunum mínum eft-
ir. Þar þarf að fylgja eftir reglum sem mér finnst of heftandi. Þau eru
mun betri bakarar en ég.“
Erna eyðir drjúgum tíma í eldhúsinu, annaðhvort heima eða í vinnunni.
„Það er hægt að búa til endalaust margar útgáfur af réttum með mismun-
andi hráefnum og á meðan ég er að elda eina fæ ég hugmyndir að öðrum.
Að ganga í gegnum matvöruverslun getur verið kveikja að mannmörgu
boði. Lyktin og litirnir kveikja á minningum í bragðpalettunni sem koll-
varpa öllum ráðagerðum um eitthvað fljótlegt. Oft er ég komin af stað
með óljósa hugmynd um eitthvað sem verður svo að mörgum réttum.“
Erna segist eiga afar erfitt með að halda sig innan marka uppskrifta,
það sé eins og að mála eftir númerum. „Sumar uppskriftir eða hlutar
þeirra krefjast þess engu að síður að farið sé eftir þeim í einu og öllu ef
maður þekkir ekki efnafræðina á bak við, til dæmis ris eggja eftir tiltekna
þeytingu við ákveðið hitastig. Þá getur verið gott að googla mismunandi
afbrigði af sama rétti til að átta sig á hvað er nauðsynlegt og hverju má
breyta. Eða fletta upp í Harold McGee, hann er besta heimildin í þeim
efnum. Eldhúsið er eins og skapandi efnafræðistofa en ólíkt þeirri í skól-
anum þá má smakka á öllum tilraununum, hvernig sem þær takast. Það
er bara ein regla sem maður verður að halda í heiðri, matargerðin verður
alltaf að vera skemmtileg.“
Veislan var hundrað prósent glútenfrí og bakstur í höndum barnanna.
Sumarlegir melónubitar setja svip á öll
veisluborð en salöt voru í aðalhlutverki.
SUMARLEG SALÖT OG BAKKELSI
Margföld af-
mælisveisla
*Mér finnstengin máltíðalmennileg án sal-
ats svo ég ákvað
að það yrði í að-
alhlutverki. Salöt
eru seðjandi og
næringarrík án
þess að keyra
meltinguna í yf-
irvinnu.“
ERNA KAABER BAUÐ VINUM OG FJÖLSKYLDU HEIM Í AF-
MÆLI OG BAUÐ UPP Á 100 PRÓSENT GLÚTENFRÍA VEISLU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
600 g bleikja
21/2 dl hvítar baunir
600 g soðnar kartöflur
1 fennelhaus, þunnt skorinn
1 búnt steinselja
2 lúkur spínat
1 búnt radísur, þunnt skornar
1 appelsína, skorin í munn-
bita
1 búnt karsi (má sleppa)
LÍMÓNUGRETTA
1 sítróna, saft og börkur
1 1/2-2 dl kaldpressuð repjuolía
2 msk. hunang
salt og svartur pipar
Hægeldið bleikju í ofni í hálftíma við 110° og sjóðið kartöflur. Kælið
bleikju og kartöflur, bútið niður og blandið saman við grænmeti og
jurtir. Sítrónusafi er kreistur og börkur rifinn út í blandara. Hunangi
bætt saman við og þeytt á hægum hraða. Olíu bætt saman við rólega.
Kryddað með pipar og salti. Límónuvínagrettu dreift yfir, karsi og
mynta rifin yfir og salat borið fram.
Bleikjusalat
1 dl hirsi
2 dl vatn
1 tsk. turmerik
1 tsk. svartur pipar
200 g smáár gænar baunir (fást einungis
frosnar hérlendis)
200 g sykurbaunir
200 g haricot baunir
1 búnt mynta, rifin af stönglum
1 dl svartar ólífur
1 rauðlaukur, skorinn í strimla
200-300 g fetaostur
ólífuolía
sítrónusafi úr 1/2 sítrónu
salt og svartur pipar
1/4 vatnsmelóna
Setjið hirsi í dl af vatni og blandið við það turmerik
og svörtum pipar, látið allt sjóða samkvæmt leið-
beiningum á pakka, látið kólna. Blandið saman græn-
meti, jurtum og hirsi. Bætið ólífuolíu, sítrónusafa,
salti og pipar saman við. Skreytið með feta, svörtum
ólífum og osti. Gott af hafa grillaðar kjúklingalundir
með salatinu. Saltið vatnsmelónu létt. Berið fram
með salati.
Grískt vorsalat
Veitingar voru sérlega fallega fram
bornar og mikið lagt í skreytingar.