Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.6. 2014
* Flesta daga hljóp ég með sjónum og út að Gróttu. Égnotaði steina við hákarlaskúrinn, sem þar stendurennþá, sem lóð. Þetta var mitt World Class.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, í afmælisblaði Seltjarnarness.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Hjónin Halldór Georgssonog Sigríður Bragadóttirhafa verið bændur á Sí-
reksstöðum í Vopnafirði í hálfan
fjórða áratug. Nú eru þau með
sauðfé en hættu kúabúskap fyrir
nokkrum árum til að geta byggt
upp ferðaþjónustu.
Sigríður og Halldór eru hálfsjö-
tug en engan bilbug er á þeim að
finna. „Við höfum verið í ferða-
þjónustu síðan 2009. Það hafði
verið draumur í mörg ár að fara
út í þetta en við höfðum ekki
fjármagn til þess og eins erum
við þannig staðsett að á árum áð-
ur þótti alls ekkert vit í því. Nú
er viðhorf fólks mjög breytt; það
sækir í kyrrðina og eftir sam-
göngubætur erum við ekki nema
um það bil hálftíma
frá þjóðvegi 1,“
segir Sigríð-
ur í sam-
tali við
blaða-
menn.
„Ástæða
þess að við fór-
um út í þetta er líka
sú að við vorum með kúabúskap
og komið var að því að fara ann-
aðhvort út í miklar fjárfestingar
til að byggja hann frekar upp eða
hætta. Við ákváðum að hætta og
snúa okkar að þessu.“
Sigríður segir að ferða-
mannastraumur aukist jafnt og
þétt. „Fólk kemur þangað sem
eitthvað er í boði en það þarf líka
að vita af því. Við höfum staðið í
heilmikilli markaðssetningu.“
Hjónin bjóða upp á gistirými
fyrir 25 manns; álmu þar sem eru
átta 2ja manna herbergi og tvö
sumarhús að auki.
Veitingastaður var formlega
tekinn í notkun á dögunum. „Ég
bauð alltaf upp á morgunverð í
stofunni heima hjá
okkur; bærinn er
aðeins um 500
metra frá
gistihús-
unum, en
það var
orðið erf-
itt. Mjög
margir sem
komu áttu eftir að
fá sér að borða og þurftu þá að
fara út í þorp, sem er 20 kíló-
metra í burtu og voru jafnvel svo
seint á ferðinni að verið var að
loka veitingastöðum. Þess vegna
gerðum við könnun í fyrra: spurð-
um alla gesti okkar í júlí og 90%
þeirra sögðust myndu hafa borðað
hjá okkur ef það hefði verið í
boði. Svo við kýldum bara á það!“
Matseðillinn er hugmynd
hjónanna en hann, og aðra hluti
starfseminnar, hafa þau þróað
með Hansínu B. Einarsdóttur og
Jóni Rafni Högnasyni sem hafa
verið þeim til ráðgjafar. „Það var
gott að hafa þau og óþarfi að
finna upp hjólið. Nánast allt hrá-
efni er frá okkur sjálfum. Við
leggjum áherslu á lambakjöt en
við erum líka með þorsk sem við
fáum á Vopnafirði og svo stendur
til að vera með silung úr Nyk-
urvatni hér skammt frá, en það
hagar þannig til að klakinn er
ekki enn farinn af vatninu og því
ekki hægt að veiða ennþá. Sumir
réttir verða því árstíðabundnir.
En þemað okkar er lambið og
náttúran og kyrrðin í sveitinni.
Hingað kom um daginn fullorðinn
maður sem hefur búið lengi er-
lendis og var afskaplega hrifinn;
sagði að ef fólk vildi fá hvíld í ró
og næði og geta hlustað á náttúr-
una væri þetta staðurinn!“
VOPNAFJÖRÐUR
Fólk sækir
í kyrrðina
HJÓNIN Á SÍREKSSTÖÐUM Í VOPNAFIRÐI HÆTTU KÚABÚ-
SKAP OG SNERU SÉR AÐ FERÐAÞJÓNUSTU. SINNA HENNI
ÁSAMT SAUÐFÉ SÍNU OG HAFA OPNAÐ VEITINGAAÐ-
STÖÐU ÞAR SEM EIGIN FRAMLEIÐSLA ER Í HÁVEGUM.
Halldór og Sigríður, til hægri, ásamt Jóni Rafni Högnasyni og Hansínu Einarsdóttur sem hafa verið þeim til ráðgjafar.
Ljósmynd/Magnús Már
Veitingahúsið og gistiálman á Síreksstöðum í Sunnudal í Vopnafirði.
Lambasteik að hætti Sig-
ríðar á Síreksstöðum.
UM ALLT LAND
MOSFELLSBÆR
Hafnar eru
framkvæmdir
við Æðarhöfða
vegna nýs útibús
Lágafellsskóla.
Þar tekur til starfa í haust
leik- og grunnskóli fyrir 5
verða teknar í notkun fim
auk millibygginga. Þrjár ke
þegar á lóðinni.
SKAGAFJÖRÐUR
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins
Skagafjarðar hefur samþykkt varðveislusamning á milli
ru slands o
pstoppuðum irni, s
og hálfs árs frá undirr
ð í upphafi hafi ríkisvaldið gefi
tabjörninn yrði vistaður í Skagafirði til framtíð
kós a eftir gögnum þar að lútandi.
HVERAGERÐI
Útskriftarhópur
10. bekkinga í
Grunnskólanum
veragerðií H
styrkti í vikunni
neyðarsöfnun
UNICEF um 100.000 krónur. Um er
að ræða afgang af ferðasjóði barnanna
sem þau ákváðu að láta renna til hjálpar
börnum í Suður-Súdan. Á heimasíðu
UNICEF kemur eftirfarandi fram: Takk
innilega fyrir krakkar! Þið megið vera
virkilega stolt af ykkur og gangi ykkur se
allra best í framtíðinni!
ÁRNESHREPPUR
Sláttur er hafinn í
Árneshreppi á Ströndum.
Björn bóndi Torfason á
Melum sló um þrjá og
hálfan hektara um síðustu
helgi, skv. frétt Jóns G.
Guðjónssonar á fréttavefn tlihjalli.is. Björn
segist hafa slegið síðast sv nemma árið 2003, þá
var einmuna tíð og góð spretta líkt og nú. Einnig
hóf Gunnar Dalkvist í Bæ um helgina og sló
í fyrstu um tvo hektara, e u
hektara í viðbót til að get
seinni slátt, segir á vefnum
FJARÐA
rbAustu rú
Fjarðab