Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.6. 2014 Matur og drykkir M ér finnst alltaf svolítið skemmtilegt að hræra saman fólki sem þekkist ekki endilega mikið. Fyrst er það ferlega vandræðalegt en ég býð ávallt upp á rótsterka kokteila þannig að vandræða- gangurinn endist í mesta lagi í fimm mínútur,“ segir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir sem bauð heim vinkonum úr ólíkum áttum. Guðrún Veiga er rísandi sjónvarpsstjarna á nýrri sjónvarpsstöð sem fer í loftið í júlí; isTV, og verður þar með matreiðsluþætti sem bera yfirskriftina Nenni ekki að elda. „Ég væri að ljúga ef ég svaraði því játandi að ég væri dugleg að halda matarboð og fólk er líka ekkert alltaf að rifna úr spennu þegar ég fer að senda út boð í mat. Ég þarf alveg að fara ítarlega yfir hvað verður í boði og svona – ég á það nefnilega til að galdra alls kyns undarlegheit fram úr erm- inni og ætlast til þess að fólk smakki það sem mér dettur í hug að hræra saman hverju sinni,“ segir Guðrún Veiga sem eldaði mat sem heppnaðist hins vegar ógurlega vel og gestirnir voru afar sáttir. „Ég skil ekki fólk sem nennir að keyra sig gjörsamlega út af stressi fyrir eitt matarboð. Ég er lítið gefin fyrir flókna eldamennsku og færi hreinlega langleiðina yfir um ef ég ætlaði að standa í eldhúsinu frá morgni til kvölds út af einu boði. Það er vel hægt að halda gleðilegt matarboð með einföldum réttum. Annars mæti ég yfirleitt í matarboð af því ég hef gaman af því að vera í góðum félagsskap, maturinn sem slíkur skiptir mig yfirleitt minna máli.“ Maturinn hjá Guðrúnu Veigu var ekki aðeins einfaldur og góður heldur var hann líka skrautlegur og skemmtilegur. „Kjúklingarétturinn er dásam- lega einfaldur, tekur enga stund að útbúa hann og smakkast alveg hrikalega vel. Ávaxtaspjót eru fljótleg en rosalega falleg á borði finnst mér. Sangrían er sniðugur kokteill og frekar ódýr í framkvæmd. Ég stunda svo gríðarlega mikið af tilraunastarfsemi með popp þannig að það er ávallt á mínum borð- um. Það kemur fólki alltaf virkilega á óvart hvað það er gott.“ Man Guðrún Veiga eftir eftirminnilegum matarboðum? „Ætli mitt eftirminnilegasta matarboð sé ekki hádegisverður sem ég bauð fjölskyldu minni í á aðfangadag. Ég eyddi öllu þorláksmessukvöldi í eldhús- inu við að skapa ostaköku eftir uppskrift Jóa Fel. sem ég hélt að yrði meist- araverk. Ég dansaði um með hvítvínsglasið í hendinni og þorláksmessu- tónleika Bubba í eyrunum og veit ekki hvað gerðist. Eitthvað fór að minnsta kosti úrskeiðis. Ostakakan var hreinn og klár viðbjóður. Eins og hafragrautur sem hafði verið hrært saman við súra mjólk. Ég vissi vel af mistökunum en ákvað nú samt að bjóða upp á dýrðina, ég var svo fjári lengi að búa hana til. Það kom bara ekki til greina að láta hana flakka í ruslið! Ætli sagan af Guðrúnu Veigu og ógeðslegu óætu ostakökunni sé ekki með vinsælli sögum í fjölskyldunni. Hún ætlar bara ekki að deyja.“ GESTGJAFINN SEM ENGINN VEIT HVAÐ GERIST HJÁ Skrautlegt og skemmtilegt * „Ég á það nefni-lega til að galdraalls kyns undarlegheit fram úr erminni“ GUÐRÚN VEIGA GUÐMUNDSDÓTTIR BÝÐUR ALDREI UPP Á NEITT FLÓKIÐ EN STUNDAR MIKLA TILRAUNAMENNSKU. POPPIÐ HENNAR Í ÝMSUM ÚTGÁFUM ER ALLTAF MEÐ Í ÖLLUM MATARBOÐUM. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is 1 heill kjúklingur, hlutaður niður 3 dl tómatsósa 3 tsk. karrí 3 tsk. nýmalaður svartur pipar 1 tsk. salt 250 ml matreiðslurjómi Hrærið tómatsósu og kryddi saman og smyrjið yfir kjúklinginn. Hitið í eldföstu móti í 30 mínútur við 200°C. Takið þá fatið út, hellið rjómanum yfir og eld- ið áfram í ofninum í 30 mínútur. SUMARSALAT 1 búnt lambhagasalat 1 box kirsuberjatómatar ½ gúrka nokkrar ferskar döðlur nokkur fersk jarðarber pekanhnetur eftir smekk ½-1 krukka fetaostur Skerið grænmetið, döðlur og jarðarber niður í bita eftir smekk og blandið í skál. Stráið pekanhnetum og fetaosti yfir og berið fram með kjúklingaréttinum. Gott er að bera hrísgrjón fram með matnum. Raggi Reykás með sumarsalati 1 flaska af góðu rauðvíni 1-2 skot gin ½ l engiferöl ½ l appelsínusafi smávegis sykur sprite eftir smekk ferskar appelsínur, sítrónur og lime eft- ir smekk Blandið öllum vökva saman og setjið syk- urinn að síðustu saman við og hafið hann eftir smekk, best er að smakka drykkinn til. Skerið niður appelsínur, sítrónur og lime og skreytið drykkinn með ávöxtunum. Sangría Guðrúnar Veigu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.