Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Side 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Svar: „Skelfilega segi
ég. Alveg skelfilega.“
Sjöfn Traustadóttir, 63 ára.
Svar: „Þetta er bara bull
og algjörlega fáránlegt.“
Karel Sigurðarson, 22 ára
Svar: „Agalega. Þetta er vond
hækkun fyrir fólk sem á lítið.“
Ursula van Balsgum, 84 ára.
Svar: „Ég ætla að segja að þetta
sé fáránlegt. Bull og vitleysa.“
Svavar Cesar Hjaltested, 22 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING DAGSINS HVERNIG LÍST ÞÉR Á BOÐAÐA SKATTAHÆKKUN Á MATVÆLI?
Hildur Ársælsdóttir
og móðir hennar Sól-
veig Eiríksdóttir sam-
eina krafta sína í nýju
matarbloggi. Þær gefa
uppskrift að dýrindis
berjasaft sem er meinholl
og bragðgóð. Matur 30
Í BLAÐINU
Þú meiddist aðeins í síðasta leik. Mæt-
ir þú spræk til leiks á laugardaginn? Jú
ég meiddist aðeins, ég fékk högg á lærið. Það eru all-
ar líkur á því að ég verði orðin spræk á laugardaginn.
Þú varst valin íþróttakona Kópavogs í fyrra,
það hlýtur að hafa verið mikill heiður? Já, það
kom mjög á óvart, virkilega mikið af topp-íþróttafólki í
Kópavogi og það var mikill heiður fyrir mig að vera
valin úr þessum hópi fólks, líka þar sem ég
spila hópíþrótt finnst mér að allt liðið mitt
eigi þátt í þessari viðurkenningu því
að ég náði þessum góða ár-
angri ekki ein.
Nú hefur þú
verið lykilkona Breiðabliks í þónokkurn
tíma, hvernig heldur þú þér í svona góðu
formi? Ég reyni að fá sem mest út úr hverri æfingu
hjá Breiðablik. Þar er boðið uppá fjölbreyttar æfingar
sem nægja alveg til að halda sér í mjög góðu formi ef
maður mætir með rétt hugarfar og viljann til að bæta
sig. Svo fer ég annað slagið útá sparkvöll með vinum
mínum, maður er aldrei of gamall fyrir það.
Skiptir máli að vera fyrirmynd í bolt-
anum? Já, maður
finnur kannski ekki
mikið fyrir því en
maður veit það
að litlar stelp-
ur líta upp til
okkar sem er-
um eldri og erum í landsliðinu svo
það er mikilvægt að setja þeim gott
fordæmi um hvað maður þarf að gera til
þess að ná langt.
Hvað viltu segja við ungar stúlkur sem
langar að byrja að æfa fótbolta? Ég myndi
hvetja þær til að drífa sig á æfingu. Maður kynnist fullt af
fólki, þetta er góð hreyfing og stuðlar að heilbrigðum lífsstíl og svo er fótbolti bara svo hrika-
lega skemmtileg íþrótt.
Ertu bjartsýn á framhaldið? Ég reyni að vera alltaf bjartsýn á lífið, það gerir allt svo
miklu skemmtilegra. Hvað varðar landsliðið þá klárum við þessa tvo leiki sem eftir eru á þessu ári
með sóma og svo tekur við ný keppni og við ætlum að halda áfram að bæta okkar leik og fara alla
leið í lokakeppni EM 2017.
Morgunblaðið/hag
RAKEL HÖNNUDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Rétt hugarfar mikilvægt
Forsíðumyndina tók
Patrik Andersson
Talmeinafræðingar eru of fáir og bið eftir
meðferð er talin í árum. Ástandið er slæmt
segir formaður Félags tal-
meinafræðinga enda
skipti miklu máli að grípa
snemma inn í þegar mál-
örðugleikar gera vart við
sig. Fjölskyldan 16
Díana Bjarnadóttir og fjölskylda hleypa
lesendum inn á hlýlegt heimili sitt. Hún segist
nota sparistellið daglega og á heimilinu sé í
fínu lagi að nota sófann fyrir hvers kyns leiki.
Heimili og hönnun 26
Hjálmar Jónsson,
formaður Blaðamanna-
félags Íslands, fer utan
til að fylgjast með
knattspyrnuleikjum
minnst tvisvar á ári.
Hann er meira fyrir að
heimsækja lítt þekkt lið
en heimsþekkt stórlið.
Ferðalög 20
Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er fædd og uppalin á Akureyri en flutti í Kópavoginn fyrir um þremur árum. Tíu ára
byrjaði hún að æfa fótbolta og er í dag ein af þeim bestu í boltanum. Rakel starfar hjá Despec og segist vinna með góðu
fólki sem hefur mikinn skilning á þeim tíma sem það tekur að vera knattspyrnukona. Leikur Íslands og Ísraels í forkeppni
HM kvenna í knattspyrnu hefst kl. 16.50 á laugardag.. Rakel spilar sem framherji og miðjumaður. Áfram Ísland!