Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Side 6
Verður Elísabet að lokum bara drottn-ing Litla Englands og hvað á Fil-ippus, hertogi af Edinborg, að kalla
sig ef Skotar velja sjálfstæði? Geta Wa-
lesbúar stutt Celtic áfram? Þetta er eins
og að nema brott hjartað úr breska þjóð-
arlíkamanum, segja sumir. Svo samslungin
sé saga þjóðanna. Skotland hafi ekki um
langt skeið verið kúgað af Englendingum.
Sjö af forsætisráðherrum Bretlands gegn-
um tíðina hafi verið innfæddir Skotar og
fjöldi annarra áhrifamanna í pólitík, fjár-
málum og atvinnulífi hafi verið með skoskt
blóð í æðum.
Ráðsettir valdamenn í London eru furðu
lostnir en reyna að forðast óenska tilfinn-
ingasemi. Líka þeir sem rekja ættir sínar
til Skotlands.Þeir hafa allir lagt sig fram
um að vara Skota við efnahagsáföllum, rutt
úr sér tölunum og um leið lofa þeir á síð-
ustu metrunum aukinni valddreifingu, jafn-
vel á sviði skattlagningar. Sumir kalla þetta
mútur. En þá er spurt hvort skoskir þing-
menn í London eigi að hlutast til um
skattalög í Englandi. Eiga Englendingar þá
ekki rétt á þingsætum í Edinborg?
Hægrisinnaðir sambandssinnar hampa
hins vegar sameiginlegri sögu Breta og
breskum gildum. Stoltinu. Bretar hafi stað-
ið fyrir miklum framförum í heiminum, um-
burðarlyndi, lýðræði og öfgaleysi. Ríkið sé
nú eins og mósaíkmynd nokkurra þjóða
sem allar gegni lykilhlutverki.
Skotar séu lengra til vinstri en Englend-
ingar, meiri stuðningsmenn Evrópusam-
bandsins og mótvægi við stærstu þjóðina,
segir velskur sambandssinni í bréfi til tíma-
ritsins Spectator. Hann og fleiri bréfritarar
nánast grátbiðja Skota um að hverfa ekki á
brott, þeir vilji ekki hafa það á tilfinning-
unni að Skotland sé orðið „útland“.
Aftur heim eftir fimm ár?
En ein af röksemdum sjálfstæðissinna er
að Skotar geti haft það betra efnahagslega
Skotar vilja
flengja elítuna
LEIÐTOGAR BRESKU FLOKKANNA ERU SAKAÐIR UM AÐ HAFA
BRUGÐIST Í SJÁLFSTÆÐISDEILUNNI. ÞEIR HAFI EKKI RÉTTA
TUNGUTAKIÐ OG SKORTI GÓÐAR RÖKSEMDIR.
Sigurviss sjálfstæðissinni í Edinborg, klæddur
pilsi í litum Saltire, skoska fánans. Kannanir gefa
til kynna að lítill munur sé á fylkingum.
AFP
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
* Þjóðir eru þjóðir ef þeim finnst þær vera þjóðir og næröllum Skotum finnst að þeir séu þjóð.Alex Salmond, leiðtogi skosku heimastjórnarinnar.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
Takk fyrir komuna!
Vatnið var aðdráttarafl fyrir þúsundir gesta sem lögðu leið sína á Þjórsár-
og Tungnaársvæðið í sumar, stærsta orkuvinnslusvæði Landsvirkjunar.
Líkt og fyrri ár opnaði Landsvirkjun aflstöðvar sínar fyrir gestum sem vildu
kynna sér starfsemi fyrirtækisins og raforkuvinnslu úr endurnýjanlegum
orkugjöfum. Yfir 15 þúsund manns sóttu fyrirtækið heim, í Kröflu, Búrfellsstöð,
að vindmyllunum á Hafinu og Kárahnjúkastíflu.
Yfir helmingur gestanna voru erlendir ferðamenn sem sýndu orkuvinnslu úr
vatni, jarðvarma og vindi mikinn áhuga, enda Ísland eitt af fáum löndum í
heiminum sem vinna nánast allt sitt rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína til okkar kærlega fyrir komuna.
Myndin sýnir þversnið af Kaplan
hverfli í Búðarhálsstöð, nýjustu
aflstöð Íslendinga. Í stöðinni
vinna tveir slíkir hverflar rafmagn
úr miklu vatnsmagni við fremur
lága fallhæð.