Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Side 8
35 ára í vikunni. Hann lést 20. jan-
úar 2012 aðeins 32 ára gamall.
Í kjölfar andláts hans var
stofnaður Minningarsjóður Lofts
Gunnarssonar sem berst fyrir
bættum hag utangarðsfólks á
Íslandi.
Eftir fráfallið hefur Loftur
orðið einskonar andlit barátt-
unnar fyrir bættum aðbúnaði
útigangsfólks á Íslandi, segir í
tilkynningu frá sjóðnum.
„Loftur hafði sérstakan stíl
sem vakti athygli. Margir þekktu Loft á
hermannajakka sem hann klæddist gjarnan.
Jakkanum breytti hann sjálfur og var hann
því einstakur. Nonni í Dead setti nokkur
handgerð prent á jakkann fyrir Loft og
ýmislegt bættist á jakkann með tímanum
svo sem barmmerki, nælur og fleira,“ segir
ennfremur.
Fyrsta markmiði sjóðsins var náð þegar
keypt voru tuttugu ný rúm í Gistiskýlið í
Þingholtsstræti árið 2013. Í byrjun árs
2014 var svo öðrum áfanga náð þegar sjóð-
urinn keypti ásamt fleiri félögum níu rúm í
Konukot. „Sjóðurinn hefur nú þegar komið
af stað nauðsynlegri umræðu í þjóðfélaginu
um aðbúnað útigangsfólks á Íslandi.“
Heimsíða sjóðsins: lofturgunnarsson.com.
Til styrktar næsta verkefni minn-
ingarsjóðs Lofts Gunnarssonar
verða framleidd fimmtu eintök
af hermannajakka, eins og þeim
sem Loftur klæddist gjarnan.
Þau verða seld í forsölu á
Karolina-fund til að fjármagna
framleiðsluna. Jakkinn verður
eins nákvæm eftirgerð og
mögulegt er af upprunalega
jakkanum. Allur ágóði af fram-
leiðslu jakkans mun fara í
næsta verkefni minningarsjóðs-
ins sem er að kaupa átta ný rúm á heimili
fyrir heimilislausa karlmenn á Njálsgötu
74.
Loftur Gunnarsson fæddist hinn 11. sept-
ember 1979 í Reykjavík og hefði því orðið
Endurgera jakka Lofts
MINNINGARSJÓÐUR LOFTS GUNNARSSONAR ENDURGERIR HERMANNA-
JAKKANN HANS TIL STYRKTAR ÚTIGANGSMÖNNUM Í REYKJAVÍK.
Hermannajakkinn góði.
Loftur Gunnarsson lést
aðeins 32 ára að aldri.
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Vettvangur
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, kýs aðfara undarlega leið í stjórnarandstöðuvegna fjárlagafrumvarpsins. Það gerir
hún með gífuryrðum um frjálshyggju sem hún
telur einkenna frumvarpið. Það kemur í sjálfu
sér ekki á óvart að vinstri menn leggist al-
mennt gegn fjárlagafrumvarpi hægri manna.
Fyrir því hafa vinstri menn alveg málefnalegar
ástæður, þ.e.a.s. ef litið er á málið frá þeirra
sjónarhóli. Fjárlagafrumvarp hægri manna á
ekki að fela í sér ríkisútgjöld nema að afar tak-
mörkuðu leyti. Það á heldur ekki að fela í sér
skattahækkanir. Og ef skattar hafa verið
hækkaðir af vinstri mönnum á næsta fjárlaga-
frumvarp hægri manna að fela í sér skatta-
lækkun. Allt þetta fellur vinstri mönnum illa.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2015 felur hins
vegar ekki í sér nokkurn samdrátt í ríkisút-
gjöldum heldur þvert á móti hækkun. Það felur
í sér verulega skattahækkun en reyndar einnig
skattalækkun. Svo kveður frumvarpið á um
eina allsherjar og fordæmalausa millifærslu á
fé milli hinna og þessara en þó ekki allra í
samfélaginu. Fyrir utan afnám vörugjalds og
lækkun efra vsk-þrepsins er lítið í frumvarpinu
sem á skylt við frjálshyggju. Einstaka einka-
framkvæmd á kostnað hins opinbera breytir
ekki heldur nokkru um þetta. Í frumvarpinu
liggur hins vegar jákvæð þróun í einföldun
skatta og sjálfsagt að umræða um hana verði
mikil á alþingi. Í þágu skattgreiðenda, líka um-
bjóðenda VG, er mikilvægt að hún verði mál-
efnaleg, heiðarleg og án allra upphrópana. Þá
er rétt að gera þá kröfu til þingmanna að þeir
nefni hlutina réttum nöfnum.
Formanni VG hrýs til að mynda hugur við
hækkun þess sem hún kallar „matarskatt“ og
vísar þar til lægra vsk-þrepsins. Hún nefnir
ekki þá staðreynd að margvíslegir aðrir skatt-
ar eru lagðir á matvæli, t.d. vörugjöld sem nú
er lagt til að falli niður. Tómatsósan sem fellur
í lægra skattþrepið, hvar sem það endar,
sleppur nú loks við þrenns konar vörugjöld. Á
majónes hefur hins vegar aldrei verið lagt
vörugjald en þrátt fyrir fjárlagafrumvarpið
mun það áfram bera 19 króna toll á hvern
lítra. Og hrökkbrauðið mun áfram bera 20%
toll. Hvað finnst formanni VG um það?
Kannski bara fegin, því það gæti jú verið
verra. Venjulegt brauð ber nefnilega bæði 20%
verðtoll og 6 króna toll á hvert kíló, ja nema
brauðið komi frá til dæmis frá Albaníu, Frakk-
landi eða Hong Kong, þá er magntollurinn 5
krónur. Hvar er málsvari heimilanna þegar
kemur að þessum matarsköttum?
Vill formaður VG ekki bara leggjast á árar
með frjálshyggjumönnum og stuðla að hófleg-
um sköttum, gagnsæi og jafnræði í skatt-
heimtu? Ekkert kæmi heimilunum betur.
Frumvarpið og frjálshyggjan
* Matvæli eru skattlögðmeð margvíslegumhætti, ekki bara með vsk.
Hverjir heyja baráttuna fyrir
heimilin gegn hinum skött-
unum? Ekki vinstri menn.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Ellen Jacqueline Calmon, for-
maður Öryrkjabandalags Íslands,
var ekki sátt á Facebook þegar hún
deildi frétt um yfirvofandi hækkun
matarskatts í 12%.
„Óhæfa? Heil-
brigðisþjónusta
hækkaði um 4%-
20% um síðustu
áramót, þá var
einnig viðbótarhækkun í júlímánuði
og nú er matarskatturinn hækk-
aður. Húsnæði er einnig rándýrt.
Hvernig ætlast ríkisstjórnin til þess
að fólk með skerta starfsgetu geti
lifað á um 180.000 krónum á mán-
uði, það er sama fólkið sem notar
heilbrigðisþjónustu einna mest.
Ótrúlegt en satt þá þarf þetta sama
fólk að búa einhvers staðar og nær-
ast.“
Fleiri veltu fyrir
sér þessu málefni
en Bragi Valdi-
mar Skúlason
skrifaði: „Rétt er
að halda því til
haga, svona skattlega séð, að þó að
fólk sé með tífaldar tekjur einhvers,
étur það ekki tífalt meira. Yfirleitt.“
Fólk notar Facebook á marg-
víslegan hátt og þar er bæði hægt
að kvarta, grínast og hrósa eins og
Stefán Pálsson gerði eftir að hafa
komist í klípu. „Margt af því sem
maður skrifar hér á FB ratar í fjöl-
miðla. Nú ætla ég að láta á þetta
reyna! Ég krefst þess að einhver FB-
fréttavinur minn skrifi um það
hversu ÁNÆGÐUR ég er með
VALMENNIN sem húsverðirnir í
Ráðhúsinu eru. Ég
læsti lyklana inni í
bílnum, en einn
þeirra bjargaði
málunum með
skrúfjárni og vír.“
Ferðalangar á Facebook lýstu líka
yfir mikilli óánægju með væntanlegt
brotthvarf Kaffitárs úr Leifsstöð.
„Einmitt! Af því að ferðalangar
þurfa harðpressaða pappasamloku
og grasa-safa á morgnana, en ekki
gott kaffi,“ skrifaði Ragnhildur
Sverrisdóttir en Joe and the Juice
á að koma í staðinn. Búið er að
stofna hópinn: „Við viljum KAFFI-
TÁR áfram í Leifsstöð“.
AF NETINU