Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Qupperneq 17
14.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Í Jógasetrinu byrja í næstu viku jóganámskeið fyrir 8-11
ára og 12-14 ára. Kenndar eru ýmsar jógastöður og æf-
ingar sem styrkja jafnvægi, einbeitingu og samhæfingu.
Kennari er Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
Jóga fyrir börn og unglinga* Bækur eru saklausir hlutir, en rit-höfundar eru ægilegar verur.
Þórbergur Þórðarson, Mitt rómantíska æði
Anna Ellen Douglas ljósmyndari, sem
rekur ljósmyndastofuna Stúdíó Dou-
glas, svarar spurningum um eftirlæti
fjölskyldunnar í dag. Sambýlismaður
hennar er Valgeir Valgeirsson brugg-
meistari hjá Borg brugghúsi. Þau eiga
drengina Helga Myrkva, níu ára, og
Húna Georg, sem verður fjögurra ára
í október.
Þátturinn sem allir geta horft á? Þar
sem það er talsverður aldursmunur á
strákunum okkar er stundum erfitt að
koma sér saman um sjónvarpsefni en
þeir eru þó ótrúlega sveigjanlegir. Í
fyrra og hittifyrra fylgdumst við
spennt með Merlín-þáttunum, þó þeir
væru kannski örlítið of spennandi fyr-
ir þann yngri sem var þá bara eins til
tveggja ára! Hann var bara um eins
árs þegar hann var farinn að raula
með titillaginu. Það eru líka allir sáttir
að horfa á dýralífsþættina hans David
Attenborough.
Maturinn sem er í uppáhaldi
hjá öllum? Þegar við erum of
þreytt til að elda og viljum hafa
einhvern smá lúxus þá fáum við
okkur „Crispy duck“ með
pönnukökum sem fæst í tilbúnu „kitti“ í matvörubúðum. Alveg rosalega
gott og einfalt. En ætli hakk og spagettí sé ekki okkar uppáhalds hversdags-
matur.
Skemmtilegast að gera saman? Við höfum alltaf verið mikið fyrir að fá
gesti í kaffi eða mat. Þá eru það oft vinir okkar sem eiga börn á svipuðum
aldri og við eða bara afi og amma. Þetta er alltaf mjög afslappað og gaman
þegar fólk stoppar lengi. Kaffiboð getur auðveldlega þróast yfir í að við pönt-
um saman pitsu eða taílenskt um kvöldið. Krakkarnir eru líka oft settir í heita
pottinn og við fullorðnu getum þá spjallað betur saman. Á sumrin förum við
oft í sveitina til afa og ömmu, til tengdaforeldra minna sem eiga gamalt eyði-
býli sem þau nota sem sumarhús fyrir norðan Skagaströnd. Það er æðislegt
að komast svona út fyrir borgarmörkin og margt hægt að gera þar eins og til
dæmis að veiða og njóta útiverunnar. Núna í sumar fórum við svo í fyrstu
tjaldútileguna öll saman og fórum hringinn með vinafjölskyldu. Við stefnum
að því að vera dugleg í tjaldferðum á sumrin þar sem þetta lukkaðist svo vel.
Borðið þið morgunmat saman? Yfirleitt reynum við það á virkum dögum.
Það á þó til að vera meira afslappað um helgar en þá eru strákarnir stundum
búnir að bjarga sér sjálfir með morgunmat yfir barnatímanum meðan for-
eldrarnir dorma örlítið lengur.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Þar sem strák-
arnir eru mjög orkuríkir látum við oft renna í pottinn og leyfum þeim að fífl-
ast þar í dágóða stund. Strákarnir suða líka reglulega um að hafa kósíkvöld
og það felur í sér náttföt, teppi, upp í sófa með popp og nammi og góða bíó-
mynd í tækinu. Við foreldrarnir höfum stundum leitað uppi myndir síðan við
vorum krakkar og leyft strákunum að horfa á þær, annars er það bara nýj-
asta fjölskyldumyndin á VoD-inu.
Öll fjölskyldan hefur líka gaman af legó og það er alveg hægt að gleyma sér
í því. Legóið á heimilinu er meðal annars frá manninum mínum síðan hann
var drengur.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Anna Ellen
Douglas
Kaffiboð sem verða
að matarveislum
Samkvæmt nýrri rannsókn verður
að taka stríðni systkina alvarlega
en stríðni eða einelti systkina getur
valdið þunglyndi síðar á ævinni.
Yfirleitt er það eldra systkinið sem
níðist á því yngra, að því er fram
kemur í grein á vef Guardian.
Rannsóknin var samvinnuverk-
efni háskólanna í Oxford, Bristol
og Warwick. Alls voru sjö þúsund
tólf ára gömul börn spurð hvort
systkini þeirra hefðu sagt eitthvað
ljótt um þau, logið um þau, hunsað
þau eða barið þau. Þessi sömu
börn voru spurð um andlega heilsu
sína þegar þau höfðu náð átján ára
aldri.
Góðu fréttirnar eru þær að flest
börn höfðu ekki lent í svona
slæmri stríðni af hálfu systkina
sinna. Verri fréttir eru hinsvegar
þær að þau sem höfðu slíka upp-
lifun að baki voru tvöfalt líklegri til
að fá þunglyndi, kvíða eða stunda
sjálfskaðandi hegðun.
Hingað til hefur verið horft
meira til áhrifa foreldra á þróun
persónuleika en á áhrif systkina.
Samskipti við systkini geta haft
áhrif á hvernig fólk myndar önnur
sambönd á ævi sinni. Misnotkun af
ýmsu tagi snemma á ævinni getur
til að mynda valdið því að erfitt
getur verið fyrir fólk að treysta
öðrum.
ÞAÐ VERÐUR AÐ TAKA SYSTKINASTRÍÐNI ALVARLEGA
Áhrif á önnur sambönd
Systkini stríða gjarnan hvort öðru en mikilvægt er að fylgjast vel með sam-
skiptunum því þau geta haft áhrif út ævina, ekki síst á andlega heilsu.
Getty Images
STRÍÐNI EÐA EINELTI HJÁ SYSTKINUM GETUR VALDIÐ ÞUNGLYNDI SÍÐAR Á ÆVINNI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hollar vörur úr náttúrunni
í hæsta gæðaflokki
Hamp fræ Kinoa fræ Chia fræ Möndlumjöl
H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
FRÁBÆR
T
VERÐ
Það að hitta forseta Bandaríkjanna í eigin per-
sónu getur tekið á, hvað þá að hitta hann í
Hvíta húsinu. Það getur jafnvel verið það erfitt
að maður hendi sér á sófann í skrifstofu forset-
ans. Þetta kom að minnsta kosti fyrir son leyni-
þjónustumanns sem fór með mömmu sinni og
pabba að hitta Barack Obama. Foreldrar vita
að svona mjúkir sófar eru ómótstæðileg freist-
ing fyrir ung börn. Þeir eru bókstaflega gerðir
til þess að slengja sér í og helst hoppa í þeim.
Myndin fer allavega í flokk fyndinna fjöl-
skyldumynda hjá þessari fjölskyldu en sumar
myndir dansa á línunni að vera fyndnar eða
vandræðalegar. Fjölskyldumyndir heppnast
ekki alltaf sem skyldi og útfærslurnar eru mis-
góðar. Góð leið til að verða ánægður með eigin
fjölskyldumyndir er að skoða síðuna awkw-
ardfamilyphotos.com en þar er að finna mynd-
ir sem fá mann sannarlega til að hlæja. Sér-
stakur hnappur er á síðunni þar sem ófeimnir
geta deilt vandræðalegum fjölskyldumyndum
af sjálfum sér.
Fyndnar fjölskyldumyndir
Strákurinn stóðst ekki mátið og stakk sér í sófann hjá Obama.
Ljósmynd/Hvíta húsið - Lawrence Jackson