Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Page 38
„Ég þekki ekki
þessa rafmagns-
kamba nógu vel
til að geta
dæmt eitthvað
um þá. Góð og
vönduð kembing
skilar öruggum
árangri í að
losna við lús.
Það er aðferð sem hefur verið
til lengi og virkar mjög vel,“
segir Ása Atladóttir hjúkr-
unarfræðingur og verkefnastjóri
á sóttvarnasviði hjá embætti
landlæknis.
Með nútímatækni er hægt að
gera lúsarleitina mun einfaldari
en áður. Bæði Elko og Heim-
ilistæki selja rafmagnskamba
sem eru vinsælir þegar fréttir af
lús byrja að berast. Kaufmann
kambur fæst í Elko og kostar
4.995 krónur og Medisana kamb-
ur fæst í Heimilistækjum og
kostar það sama.
Ása segir að hún hafi ekki
prófað þessa rafmagnskamba og
það geti vel verið að þeir virki
en það sé betra að kemba hárið
með stálkambi á eftir til að
vera alveg viss að lúsin og nit
hennar sé farin.
„Það þarf að kemba til að gá
hvort lús er í hárinu fyrir og
eftir meðferð. Mjög góðir stál-
kambar fást nú hér á landi. Því
miður hef ég ekki prófað þessa
rafmagnskamba og hef ekki rek-
ist á neinar greinar sem lýsa
árangri af notkun þeirra. Allir,
einkum foreldrar ungra barna,
ættu að eiga góðan kamb og
kemba börnum sínum og sjálfum
sér reglulega. Þannig geta þau
sparað mikla peninga sem ann-
ars fara í kaup á rándýrum
lúsadrepandi efnum,“ segir Ása.
Rafmagnskamburinn myndar
rafhleðslu á milli teinanna og
nær þannig, samkvæmt leið-
arvísi, að drepa lúsina og nitina
með.
Ekki er sögð hætta á að ein-
staklingurinn fái í sig rafhleðslu
og er því notkunin sársaukalaus.
„Rafmagnskamburinn á að
virka betur en þessi sjampó sem
hafa verið að fást í apótekum.
Lúsin getur allavega ekki orð-
ið ónæm fyrir rafstuði,“ segir
Hlöðver Þorsteinsson hjá Heim-
ilistækjum. benedikt@mbl.is
Lúsameðal
nútímans?
Kamburinn pípir um leið og hann finnur eitthvað lifandi í hárinu, sendir
rafstraum í gegnum það og sprengir. Drepur þannig lúsina.
Morgunblaðið/Þórður
Skjáskot úr kennslumyndbandi um
Medisana rafmagnskamb.
RAFMAGNSKAMBUR GÆTI VERIÐ SVAR NÚTÍMANS
VIÐ LÚSINNI. KAMBURINN SENDIR RAFSTUÐ OG
DREPUR LÚSINA OG NITINA MEÐ. ÁSA ATLADÓTTIR
HJÁ LANDLÆKNI ER EKKI ALVEG VISS UM ÞAÐ OG SEGIR
AÐ EKKERT KOMI Í STAÐINN FYRIR VANDAÐA KEMBINGU.
Ása Atladóttir
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Græjur og tækni
Í vikunni seldist milljónasta eintakið af
leikjatölvunni PS4 í Bretlandi en greining-
arfyrirtækið GfK Chart Track greindi frá
tíðindunum. PS4 hefur einnig yfirburða-
stöðu í Evrópu, hefur selst í 3,8 milljónum
eintaka á móti 1,2 milljónum eintaka af
nýjustu Xbox-leikjatölvunni sem er helsti
keppinautur PS4.
Milljónasta PS4 seld í Bretlandi
EKKI
... setja inn tvíræðar stöðuuppfærslur þar sem
þú ýjar að einhverju en segir ekki alla söguna.
Stöðuuppfærslur á borð við „...get ekki sagt að þessi dagur
hafi boðað gott...“ eða „Nú er ég brjáluð!!!“ eða „Oohh ekki sáttur!!!“
segja nákvæmlega ekkert en sá/sú sem setur þær inn er augljóslega að
biðja um að vera spurð(ur) út í ástæðurnar á bakvið þær. Segðu það
sem þú vilt segja frekar en að biðja um athygli út á tvíræðnina.
... koma upp um þig
Það er alþekkt að fólk njósnar um náungann á Facebook. En ef þú ert
að skoða myndir af gömlum kærustum (eða nýju kærustunum þeirra) ...
jafnvel mörg ár aftur í tímann gerðu þá ekki þau mistök að ýta á „like“
takkann. Það er ekkert eins hallærislegt og að verða uppvís að því að
hafa fengið nostalgíukast yfir gamalli mynd á síðkvöldi. Þú meinar
kannski vel, en kemur alltaf illa út.
... læka eigin stöðuuppfærslur.
Slepptu þessu af sömu ástæðu og þú segir ekki brandara í
partíi og hlærð svo hæst sjálf(ur).
... benda á stafsetningar- og málvillur hjá öðrum
Það er óþolandi. Fólk er allavega og má vera ólíkt. Sumir
eru sleipir í stafsetningu, aðrir ekki. Leyfum fólki að vera eins
og það er á Facebook.
… setja inn myndir af þér í 30 stiga hita og sól
þegar það er glatað veður á Íslandi.
Ástæður fyrir þessu eru augljósar.
... segja að þú eigir skilið Thule.
Allir eiga skilið klapp á bakið eftir daginn. Það stóðu sig yf-
irleitt allir vel og margir áttu ábyggilega erfiðari dag en þú. Þetta er
bara óþarfi.
... láta vita að þú hafir verið á æfingu.
Það þurfa allir að hreyfa sig til að viðhalda heilsu. Það er ekkert til
að stæra sig af. Farðu bara út að hlaupa og fáðu þér svo vatn að
drekka. Heimurinn þarf ekkert að vita af þessu.
... lifa í gerviheimi.
Það er enginn glaður 365 daga á ári og börnin eru ekki alltaf
skemmtileg og krúttleg. Vertu þú sjálf(ur).
... læka allt sem þú sérð.
Þá missir lækið gildi sitt.
Farðu sparlega með lækin svo
vinir kunni að meta það þegar þú
splæsir læki á stöðuuppfærslur og
myndir af þeim.
... setja prófílmynd af maka
þínum.
Það er bara skrítið.
... setja inn leiðinlegar stöðuuppfærslur um flensu,
biluð raftæki og að þú sért svangur/svöng.
Öllum er sama. Ef þú ert lasinn liggðu þá í rúminu og reyndu að
drekka mikinn vökva. Ef eitthvað bilar farðu þá með það í viðgerð.
Ef þú finnur til hungurs ... fáðu þér þá að borða.
Ekki vera
óþolandi á
Facebook
LÍFIÐ Á SAMFÉLAGSMIÐLINUM FACEBOOK GETUR
VERIÐ TALSVERT FRÁBRUGÐIÐ ÞVÍ SEM Á SÉR STAÐ
Í RAUNHEIMUM. SUNNUDAGSBLAÐIÐ TÓK SAMAN 11
DÆMI UM HEGÐUN SEM ER GOTT AÐ FORÐAST VILJI
FÓLK VERA Í HEILBRIGÐUM SAMSKIPTUM Á FACEBOOK.
Ekki gera þau mistök að
láta gamlan kærasta eða
kærustu vita að þú sért að
skoða myndir af honum/
henni og nýja makanum.
Það kemur illa út fyrir alla.
Morgunblaðið/Ómar