Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Qupperneq 39
14.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
*Nördar eru fólk sem elskar eitthvað svomikið að öll smáatriði skipta máli.Marissa Mayer forstjóri Yahoo
GAMLA GRÆJAN
Trúlega hefði þetta
iTrip ekki virkað hér á
landi enda Létt 96,7 á
rásinni. Þá heyrðist
ekki neitt í iPodinum.
iTrip í bílinn
Skömmu eftir að iPodinn kom á markað 2001 birtist einn vinsælasti
fylgihlutur tónlistarveitunnar Griffin iTrip, sem gerði notendum kleift að
hlusta á iPodinn í bílnum.
iTrip var stungið í tækið og var þá hægt að stilla útvarpið í
bílnum á ákveðna tíðni þannig að tónlistin úr iPodinum heyrð-
ist.
Reyndar gerðist það oftar en ekki að aðrar rásir
komu inn á tíðnina sem iTrip gaf upp en það var síðar
lagað.
Íslendingar fengu iTrip seint í búðir vegna
laga um útvarpssendingar. Árið 2005 af-
létti EES banninu en það voru þó margir
með slík tæki í bílunum sínum sem þeir
höfðu keypt erlendis og smyglað hing-
að til lands.
Lögin um iTrip voru þó furðu-
legri í Bretlandi en þar mátti
selja tækið út úr búð en ekki
nota það!
Í dag eru flestir nýir bílar með svo-
kallað AUX-tengi eða hreinlega iPod-snúru
og því lítið not fyrir iTrip. Síðasta framleiðsla
Griffin á fylgihlutnum leit dagsins ljós árið 2006.
Enginn kemst með tærnar þar
sem Thomas Edison hefur hælana
þegar kemur að því að sækja um
einkaleyfi. Alls sótti Edison um
1093 einkaleyfi á sinni ævi en
hann lést 1931 eftir skammvinn
veikindi.
Ekki urðu allar hugmyndir hans
að veruleika þótt ljósaperan,
plötuspilarinn, röntgenmyndavélin,
kvikmyndavélin, límpappír, raf-
magnslestir og aðrar uppfinningar
gerðu heiminn betri og oftar en
ekki einfaldari.
Edison fékk fyrsta einkaleyfið
árið 1869, þegar hann var aðeins
22 ára gamall en þá hafði hann
fundið upp rafknúna kosningavél.
Þegar hann fann upp fjórfaldan
ritsíma (e. quadruplex telegraph)
fóru hjólin að snúast og frægð-
arsól Edison reis hátt og skín sú
sól enn í dag.
Western Union keypti hug-
myndina að ritsímanum og notaði
Edison gróðann til að koma sér
upp uppfinningarstöð þar sem
hann fann upp plötuspilarann árið
1877 og einnig símabúnað og
fjöldann allan af merkilegum og
ómerkilegum hlutum.
Í grein um Edison sem birtist í
Morgunblaðinu skömmu eftir and-
lát hans stóð að hann hefði verið
þekktur fyrir að unna sér ekki
hvíldar fyrr en hann væri búinn að
úthugsa pottþétta leið til að út-
færa hugmyndir sínar.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Konungur einkaleyfanna
Thomas Edison fékk fyrsta
einkaleyfið 22 ára gamall.
Apple kynnti í vikunni nýja símann sinn, iPhone 6, og
sömuleiðis Apple-úrið. Úrið mun fást í þremur útgáfum –
Apple Watch, Apple Watch Sport og Apple Watch Edi-
tion. Ódýrasta útgáfan mun kosta 349 dollara eða rúm-
lega 41 þúsund krónur í Bandaríkjunum en ekki gaf Tim
Cook, forstjóri Apple, upp nákvæma dagsetningu, hve-
nær viðskiptavinir mættu búast við úrinu. Hann minntist
heldur ekki neitt á endingu á batteríinu og tækniheim-
urinn varð ekkert sérlega hrifinn af því. Hver vill eiga úr
sem dugar aðeins nokkra klukkutíma? Markmið Apple
var samt að framleiða besta úr allra tíma og það verður
fróðlegt að sjá, þegar úrið kemur loks á markað, hvort
það hefur tekist.
Úrið er að sjálfsögðu með snertiskjá en einnig með
hringlaga takka á hliðinni, takka sem er venjulega til að
trekkja upp úr. En þessi takki trekkir ekki neitt heldur
stýrir hann fjölmörgum aðgerðum sem úrið býður upp á.
Úrið mun fást í tveimur stærðum og hægt verður að
föndra eitthvað með ólarnar. Þeir ríku geta síðan keypt
18 karata gullúr.
APPLE WATCH KYNNT Í VIKUNNI
AFP
Áhyggjur af rafhlöðunni
Apple-úrið er
litríkt en ekki er
vitað hvað raf-
hlaðan endist
lengi.
11" verð frá 159.990.-
13" verð frá 179.990.-
Apple TV
Varpaðu myndefni og tónlist úr
iPhone, iPad og tölvunni þinni
þráðlaust í sjónvarpið.
Verð 16.990.-
Libratone LOOP
Nýjasti hátalarinn frá Libratone. Glæsileg hönnun, tær
og hreinn hljómur. AirPlay og PlayDirect tækni til að
spila þráðlaust, jafnvel án WiFi nets.
Verð94.990.-