Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Qupperneq 49
14.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
inn að búa til nein aukahljóð, enginn að spila
ranga nótu eða að reyna að spjalla við fiðlu-
leikarann sér við hlið þegar það er verið að
æfa. Allir eru einbeittir og einbeita sér að
því að búa til list. Andrúmsloftið við tökur á
The Knick er alveg eins. Það eru allir partur
af þessari maskínu við að búa þættina til.“
Mikil menningarfjölskylda
Ylfa er fædd og uppalin í Reykjavík en bæði
móðir hennar og faðir eru frá Þýskalandi.
„Mitt DNA yrði ekki meðtekið í Íslenskri
erfðagreiningu heima,“ segir Ylfa og skellir
upp úr. „En ég tala ágætis íslensku og er
með íslenskt vegabréf. Ég elska landið mitt,
Ísland. Þetta er landið mitt.“
Föðuramma hennar og afi, Heinz og Char-
lotte Edelstein, flúðu hingað til lands frá
nasistum í Þýskalandi í kringum 1939.
„Heinz kom hingað fyrst árið 1937 og fór síð-
an til baka til Þýskalands að sækja fjölskyld-
una sína árið 1938. Það er ótrúleg saga þar
að baki, hvernig þau náðu að koma sér í skip
á leið til Íslands og læddust fram hjá nas-
istum. Bæði afi Heinz og amma Charlotte
misstu fjölskyldur sínar í útrýmingarbúðum.“
Heinz spilaði á selló og fékk stöðu innan
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Einnig stofnaði
hann Barnamúsíkskólann sem í dag er Tón-
menntaskóli Reykjavíkur. Faðir Ylfu, Stefán
Edelstein, er skólastjóri þar og hefur verið
síðastliðin 40 ár. Móðir hennar Anne-Marie
Egloff var leiðsögukona en hún lést árið
1988.
„Listir og menning var alltaf ríkur þáttur í
mínu uppeldi. Ég fór alltaf með á myndlist-
arsýningar, tónleika og í leikhús. Þetta var
hluti af æsku minni og fyrir það er ég mjög
þakklát,“ segir Ylfa.
Hún ólst upp í Laugarneshverfi í Reykja-
vík. „Ég gekk í Laugarnesskóla og þaðan á
ég mínar elstu vinkonur. Ég byrjaði sex ára í
ballett hjá Eddu Scheving. Hún hringdi í mig
rétt fyrir jólin og bauð mér hlutverk í Jóla-
stundinni okkar fyrir RÚV. Ég átti að leika
Litla Stúf. Ég man ennþá eftir því þegar ég
sat með símtólið upp við litla eyrað og sat í
skrifborðsstól pabba með danglandi leggi. Ég
sagði: „Takk Edda! Ég skal standa mig ofsa-
lega vel.“.“
Ylfa gekk í Menntaskólann við Sund og
lagði stund á dansnám hjá Dansstúdíói Sól-
eyjar. „Sóley Jóhannsdóttir var mikill men-
tor fyrir mig á unglingsárum og án hennar
held ég að ég hefði ekki haft hugrekki til að
fylgja draumum mínum. Hún studdi mig og
gerir það enn.“ Eftir stúdentspróf flutti Ylfa,
19 ára gömul, til St. Louis í Bandaríkjunum
og lærði við Webster University í tvö ár en
danskennari hennar Cornelius Carter hafði
mælt með skólanum. „Eftir tvö ár í St. Louis
ákvað ég að flytja til New York og fór þar í
leiklistarskóla sem hét The Actor’s Space,
lærði hjá Fred Kareman sem sérhæfði sig í
svokallaðri Meisner-tækni og útskrifaðist það-
an tveimur árum síðar.“ Að loknu námi í New
York flutti Ylfa til Los Angeles en segir að
New York hafi ávallt togað í hana.
„Munurinn á þessum tveimur borgum er
mikill. LA er dásamleg en allt öðruvísi en
New York. Þar er veðrið alltaf rosalega gott,
allir alltaf í göngutúrum og svona. Allir mjög
heilsusamlegir og fallegir, enda mjög heltekn-
ir af því að eldast ekki! Í New York er and-
rúmsloftið mun afslappaðra. Ein af ástæðum
þess að ég elska að búa hér í New York er
hvað þetta er mikil listaborg og menning-
arborg og allt saman alveg innan seilingar.
Hér geng ég út og stíg beint inn í Central
Park eða listagallerí. Hér á ég vini sem vinna
í fjölbreyttum listum og sæki því mikið á opn-
anir af ýmsu tagi. Það er alltaf nóg um að
vera hér. Þetta er svo dásamleg borg og
skemmtileg.“ Aðspurð hvort Ylfa muni ein-
hvern tíma flytja aftur heim segir hún það
ólíklegt. „En aldrei að segja aldrei!“
Missti móður sína ung
Í sumar fór Ylfa í ferð til Þýskalands að
heimsækja frænda sinn sem hún er skírð í
höfuðið á, Wolfgang Edelstein. Venjan er þó
að heimsækja Ísland og fjölskylduna. „Ég
kem heim á hverju ári og hitti fjölskyldu
mína, bræður og börn Kristjáns bróður míns
– þrjár litlar stjörnur, alveg frábærir krakk-
ar. Ég reyni að koma til Íslands eins oft og
ég get. Ég hef stundum unnið eitthvað heima
og er alltaf til í að koma heim og gera eitt-
hvað skemmtilegt. Ef þú vilt vera umboðs-
maður minn, þá endilega komum einhverju í
gang,“ segir Ylfa hlæjandi.
„En í sumar stóð valið milli þess að fara til
Íslands eða Þýskalands. Ég ákvað að heim-
sækja yndislega frænda minn, Wolfgang
Edelstein, og fjölskyldu hans í Berlín og síð-
an lá leiðin í Svartaskóg til Freiburg þar sem
móðir mín ólst upp. Amma mín sem fór til Ís-
lands á sínum tíma flutti aftur til Þýskalands
eftir stríðið. Ég fór því alltaf þangað á sumrin
sem krakki með mömmu en þar bjuggu báðar
ömmur mínar. Móðir mín dó þegar ég var
ung og þarna vorum við mikið saman svo ég
vissi að ég þurfti að fara í þessa ferð, sem var
yndislegt. Þetta er ótrúlega fallegur staður.“
Hugleiðsla mikilvægt tól
Samhliða hlutverki sínu í The Knick hefur
Ylfa fleiri járn í eldinum. Hún fer reglulega í
áheyrnarprufur og stuttu eftir viðtalið fór
hún í prufu fyrir hina vinsælu þætti Orange
is the New Black. Einnig er hún hluti af leik-
hóp í New York sem nefnist Naked Angels.
Hópurinn hittist í hverri viku og þróar reglu-
lega ný verk. „Það er ástríða hjá mér að þróa
ný leikverk. Leikhópurinn setur stöðugt upp
ný verk og vinnustofur. Nú er haustið að
koma og þá fara af stað ýmis verkefni að nýj-
um sýningum. Síðustu árin hef ég líka verið
að skrifa svolítið sjálf. Ég vona að hlutverk
mitt í The Knick komi sér vel og lofar fram-
haldið góðu,“ segir hún. „Líf leikarans er svo
mikil óvissa. Ég valdi þetta og það hentar
mér vel. Ég gæti ekki hugsað mér að vera í
9-17 vinnu á meðan það hentar öðrum betur.
Þetta er það sem ég elska og tek bara einn
dag í einu. Þegar ég landaði hlutverkinu sá
ég fram á að vera með vinnu frá september
og fram í janúar og vissi hvað ég myndi taka
mér fyrir hendur næstu mánuðina sem var
stórt skref fyrir mig. Þetta verður ekki auð-
veldara eftir því sem aldurinn færist yfir en
ég er svo ánægð að hafa valið það sem ég
vildi gera í lífinu og lifi því lífi sem ég kýs.
Ég hef ávallt fylgt hjartanu og hugsa vel um
sjálfa mig,“ segir Ylfa einlæg. Hugleiðsla og
jóga telur Ylfa vera ákveðinn lykil að því að
vinna stöðugt í sjálfum sér að því að verða
betri manneskja. „Hugleiðsla hjálpar mér
mikið að stefna að því og einnig jóga. Það er
gott fyrir líkama og sál að róa hugann og ég
vil einbeita mér að því að lifa í augnablikinu.“
Ljósmynd/Mary Cybulski, Cinemax.
Ylfa kann vel við sig í New York, hinni miklu menningarborg en fjölskylda hennar var mikið í listum.
Ljósmynd/Patrik Andersson.
* Líf leikarans er svo mikil óvissa. Ég valdi þetta og það
hentar mér vel. Þetta er
það sem ég elska og tek
bara einn dag í einu.