Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Blaðsíða 54
G
oðsögnin Ali Camp-
bell, röddin sem
syngur um „Rautt,
rautt vín“ og „I
got you Babe“ og
að hann „geti ekki gert að því að
hann sé að verða ástfanginn af
þér“ er á hinum enda línunnar.
Söngvari hljómsveitarinnar UB40
til áratuga elskar reggí og segir
tónlistina gefa heiminum ást en
UB40 er meðal allra söluhæstu
hljómsveita popptónlistarsög-
unnar, með yfir 70 milljónir
seldra platna og flestir geta
sungið með lögum þeirra frá 9.
og 10. áratugnum.
Ali Campbell er á leiðinni til
landsins með gömlu félögunum
sínum úr UB40, þeim Astro Wil-
son og Mickey Virtue, en í Hörpu
um næstu helgi, 19. september,
munu þeir flytja öll þekktustu lög
sveitinnar frá 8. og 9. áratugnum
og spila 2-3 lög af plötu sinni
sem kemur út í október.
„Ég vonast til að sjá eldgosið
þegar við komum. Síðast þegar
gaus á Íslandi, í Eyjafjallajökli,
man ég hvað ég var ótrúlega
heppinn og ég vona að við verð-
um það líka núna hvað flug-
samgöngur varðar. Ég nefnilega
flaug til Suður-Ameríku og vélin
sem ég tók var síðasta vélin sem
fékk að fara áður en flugbann
var sett á. Þegar ég snéri til
baka nokkrum dögum seinna fór
ég í fyrstu flugvélina sem fékk að
fara í loftið eftir að flug-
samgöngur höfðu legið niðri,“
segir Ali Campbell en hann segist
vera mikill áhugamaður um eld-
gos, jarðskjálfta og slíkt þótt
hann geri sér grein fyrir dauðans
alvöru.
„Ég veit ekki margt um Ísland
get ég sagt þér, ég þekki Björk,
en ég er í það minnsta með á
hreinu að þið búið á sprelllifandi
stórri eldstöð. Og í mínum huga
eru Íslendingar því afar, afar
hugrakkir!“
Vilja „bjarga arfleifðinni“
Það var núna í janúar sem aðal-
söngvarar UB40 til áratuga, Ali
Campbell og Astro Wilson ásamt
Mickey Virtue, tilkynntu að þeir
myndu koma saman til að taka
upp nýja plötu og hefja tónleika-
ferð um heiminn.
Ali Campbell stofnaði hljóm-
sveitina UB40 árið 1978 en árið
2008 kom það mörgum í opna
skjöldu er hann yfirgaf hljóm-
sveitina. Sjálfur segir hann það
hafa verið vegna mikillar
óánægju með stefnumótun og
rekstur hljómsveitarinnar á þeim
tíma en úr varð að Virtue fylgdi
honum þá einnig eftir. Astro varð
áfram eftir í hljómsveitinni en
hætti í fyrra vegna sömu
óánægju og þeir hafa nú myndað
hljómsveit – meðal annars til að
„bjarga arfleifð UB40“ eins og
hann segir sjálfur.
„Ég hætti í gömlu, góðu UB40
fyrir 6 árum. Á svipuðum tíma
hætti Mickey Virtue hljómborðs-
leikari einnig. Mig langaði alls
ekki til að yfirgefa eigin hljóm-
sveit, því ég stofnaði UB40, held-
ur neyddist ég til þess og það
sama gilti um Mickey. Á síðasta
ári gekk Astro svo til liðs við
okkur. Svo að í sex ár höfum við
þrír, kjarni sveitarinnar, ekki
spilað saman.“
Bróðir Ali Campbell, Duncan
Campbell, stökk inn í söngv-
arahlutverkið í staðinn og Ali
Campbell fer ekki leynt með
hversu ósáttur hann er með þró-
un mála á þeim bæ, hvorki í
þessu viðtali né öðrum úti í heimi
sem birst hafa við hann.
„Sveitin sem hefur verið starf-
andi núna upp á síðkastið í nafni
UB40 fór út í eitthvert bull. Hún
gaf út hljómplötu með poppskot-
inni þjóðlagatónlist eða kántrí-
tónlist. Þá sá Astro hvað var að
gerast og kom til mín því ef það
er eitthvað sem UB40 hefur aldr-
ei verið þá er það kántrí – hún
er reggí. Ég stofnaði hljómsveit-
ina til að breiða reggí út um
heiminn og það var æðsta mark-
mið okkar hljómsveitarmeðlim-
anna og það er ennþá minn æðsti
tilgangur með því að vera í tón-
list.“
Frá árinu 2008 hefur Ali
Campbell sinnt sólóverkefnum og
þrjár platna hans hafa endað á
topp tuttugu listanum í Englandi
en ný plata sem er væntanleg í
október er með tónlist þeirra
allra þriggja.
„Því miður hef ég undanfarin
ár þurft að hlusta á bróður minn,
Duncan, spila verr og verr og
gamla sveitin mín hefur fengið
færri og færri gigg. Duncan er
þjóðlagasöngvari og góður sem
slíkur en í hans meðförum hef ég
hlustað á hann gjöreyðileggja lög-
in mín undanfarin fimm ár. Í
fimm ár – hugsaðu þér. Og hann
hefur skaðað arfleifð UB40 mjög
mikið og var kominn langt á leið
með að skaða þá ímynd sem
hljómsveitin á að standa fyrir.“
Ali Campbell segir að þeir fé-
lagar séu núna að spila nafn
UB40 aftur til sín. „Það versta er
að þeir blekkja fólk. Þeir auglýsa
tónleika og nota til þessa gamlar
myndir af mér og Astro og Mic-
key en svo kemur fólk á tón-
leikana og þetta er engan veginn
UB40 eða hennar tónlist. Ég læt
því fólk vel vita þegar við auglýs-
um tónleikana okkar sem við höf-
um verið að halda allt þetta ár að
fólk sé að koma að sjá Ali Camp-
bell og UB40 svo fólk veit að
þetta er alvöru sveitin. En ég
veit að margir hafa haldið sig
vera að fara á tónleika með okk-
ur upprunalegu sveitinni og
hlusta á röddina sem er að baki
UB40 og verður fyrir von-
brigðum.
Við spilum á stórum tónleikum
um allan heim. Við erum ný-
komnir frá Hollandi, Einthoven,
og við erum að hitta gömlu aðdá-
endurnar okkar en líka nýja en
því miður er gamla hljómsveitin
lítil kráarhljómsveit í dag. Ef fólk
vill sjá upprunalegu söngvarana,
hlusta á upprunalegu tónlistina
og alvöru reggí á það að koma og
sjá okkur. Ef fólk vill sjá hina
hljómsveitina – þá gerir fólk það
bara.“
Mikið hefur verið fjallað um
endurkomu Ali Campbell og fé-
laga hans í fjölmiðlum ytra en á
tónleikum sem þeir hafa haldið
um allan heim einbeita þeir sér
að því að „færa UB40 aftur til
fólksins“ – eins og Campbell
orðar það sjálfur. „Við erum að
spila alla slagarana okkar frá 9.
og 10. áratugnum en á þeim tíma
áttum við um 40 lög sem fóru í
efstu sæti vinsældalista um allan
heim. Svo detta inn 2-3 lög af
nýju plötunni okkar. Þetta verður
frábært – ég vona að þið þekkið
tónlistina okkar,“ segir Ali Camp-
bell og blaðamaður ræskir sig og
syngur nokkur helstu UB40-stefin
til að færa sönnur á þau orð að
svo sé.
„Við höfum verið að ferðast
mjög vítt og breitt, við erum ný-
komnir frá Hollandi og vorum í
Afríku um daginn. Það hefur
komið okkur ánægjulega á óvart
að sjá að tónlist okkar hefur lifað
milli kynslóða og við vorum mjög
hissa á að sjá unglinga syngja
lögin okkar og kunna textana,
jafnvel lög sem eru ekki þau allra
frægustu. Það er alveg frábær
tilhugsun að Íslendingar þekki
lögin og kunni að meta þau.“
Allir skilja boðskapinn
Það eru ekki margir reggítónlist-
armenn í heiminum sem hafa náð
að gera þessa gerð tónlistar jafn
vinsæla og UB40, má þar helst
nefna nöfn eins og Bob Marley.
„Það er frábær tilfinning að
vera með gömlu félögunum í að
spila og búa til tónlist sem við
kunnum svo vel. Það er mikið
hlegið og góð dýnamík.“
Hvað er það við reggí sem lað-
ar fólk að?
„Fyrir mína parta er þetta
kynþokkafyllsta tónlist í heimi.
Afdráttarlaust. Hraði hennar er
sá sami og hjartsláttur. Ég held
að reggí hafi síðustu árin haft
meiri áhrif á nútímatónlist en
hún hefur nokkurn tímann haft.
Það er einhver taktur í reggí sem
sameinar fólk. Enda snýst reggí,
Ætla að búa
til eigin reyk
EFTIR VIKU EIGA ÍSLENDINGAR ÞESS KOST AÐ HLUSTA Á NOKKUR VINSÆLUSTU
POPPLÖG 9. OG 10. ÁRATUGARINS OG UB40-SÖNGVARINN ALI CAMPBELL
SEGIST JAFNFRAMT VONAST TIL AÐ KOMAST Í ÞYRLU Á GOSSTÖÐVAR.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
* Síðast þegar gaus á Íslandi, í Eyjafjallajökli, man ég hvað ég var ótrúlega heppinn og ég vona
að við verðum það líka núna hvað
flugsamgöngur varðar.
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.9. 2014
Viðtal