Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.09.2014, Síða 55
Það sem er einkennandi fyrir þekktustu slagara UB40 er rödd Alistair
Campbell, eða Ali eins og hann er jafnan nefndur að fyrra nafni.
Ali Campbell hefur alltaf verið vinsælt umfjöllunarefni bresku
blaðanna enda yfirleitt líf og fjör í kringum hann og hans fjöl-
skyldulíf.
Ali Campbell er fæddur árið 1959 í Birmingham. Faðir hans
var þekktur breskur þjóðlagasöngvari, Ian Campbell.
Ali Campbell á átta börn, þar af tvö með núverandi eig-
inkonu sinni.
Auk þess að sinna UB40 og eigin sólóferli og gefa út þrjár
plötur, hefur Ali Campbell sinnt öðrum verkefnum og var til
dæmis í þriggja manna dómnefnd New Zealand́s Got Talent
ásamt Jason Kerrison og Rachel Hunter.
Ali Campbell hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og
verðlaun fyrir tónlist sína og meðal annars verið tilnefndur til
Grammy-verðlaunanna.
ALISTAIR CAMPBELL
Röddin á bak við allt
lagatextarnir og allur boðskapur
tónlistarinnar, um að færa fólk
saman í nafni frelsis. Að því leyti
er tónlistin mjög byltingarkennd.“
Hver er lykillinn að velgengni
UB40?
„Þegar fólk spyr okkur hver sé
lykillinn að velgengni þá svara ég
því að það sé einmitt ekkert
leyndarmál. Lykillinn er sá að við
spilum gott reggí og fólk um all-
an heim hlustar á reggí og það
er eftirspurn eftir gæðareggí. Það
skiptir engu máli hvaða tungumál
fólk talar – allir skilja þann boð-
skap sem tónlistin hefur fram að
færa.“
UB40 mun dvelja í tvær nætur
á landinu en Ali Campbel segir
það regluna, sérstaklega þegar
þeir ferðist til nýrra staða, að
hafa að minnsta kosti einn dag
þar sem þeir geti skoðað sig um.
Og hvað ætla þeir að gera? Það
er greinilega allt á hreinu:
„Við hreinlega verðum að leigja
þyrlu til að geta séð gosið ef það
er hægt. Og við ætlum að
skemmta okkur, ég vona að Ís-
lendingar séu tilbúnir til að
skemmta sér með okkur. Við er-
um mjög opnir og það er alltaf
gaman að eignast nýja vini, við
höfum hugsað okkur að kíkja út
á lífið. Við vonum bara að gos-
mökkur stoppi okkur ekki. Við
ætlum að koma og búa til okkar
eigin reyk!“
Félagarnir úr UB40, Astro
Wilson, Ali Campbell og
Mickey Virtue, eru á leið
til landsins og spila í Hörpu
um næstu helgi.
14.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55