Morgunblaðið - 25.11.2014, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.11.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2014 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Snjólaust hefur verið á snjóathug- unarstöðvum dögum saman. Það er heldur óvenjulegt svo seint í nóv- ember, en ekki einsdæmi, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Sigurður Þór Guðjónsson, áhuga- maður um veður, vakti athygli á því á bloggi sínu (nimbus.blog.is) á sunnudag að þá hefði alls staðar ver- ið snjólaust á snjóathugunar- stöðvum nema hvað flekkótt jörð var í Svartárkoti í Bárðardal. Honum þótti þetta snjóleysi svo seint í nóv- ember vera merkilegt. Trausti veðurfræðingur sagði í gær að hvergi hefði verið alhvítt á landinu síðan 12. nóvember. Í gær voru snjólausu dagarnir því orðnir 12 í mánuðinum. Hins vegar hafði verið flekkótt á nokkrum stöðum. Hann sagði að síðasta syrpa snjó- lausra daga á þessum árstíma, sem var lengri en þessi, hefði verið árið 2002. Þá var hvergi alhvít jörð í 14 daga samfleytt og lauk þeirri syrpu þann 4. desember 2002. Árið 1976 kom 13 daga tímabil snjólausra daga, en flestir þeirra voru í október og lauk þeirri syrpu 1. nóvember. Samkvæmt veðurspá má búast við að það verði einhvers staðar alhvítt á landinu næstu daga. Ekki er ólíklegt að það geri einhvers staðar él. Í október síðastliðnum var alhvítt í Reykjavík í tvo daga en aldrei al- hvítt í borginni í nóvember það sem af var í gær. Það er þó ekki mjög óal- gengt að nóvember sé alauður í Reykjavík, að sögn Trausta. Það gerðist síðast árið 2008. Alhvítt hefur þegar verið á Ak- ureyri í fimm daga í nóvember. Árið 2007 var alhvítt þar í fjóra daga í nóvember. Þá var ekki nema einn al- hvítur dagur í október á Akureyri en núna voru þeir níu. Árið 2011 voru ekki nema sjö alhvítir dagar allan nóvember. Mánuðurinn er ekki bú- inn og því óvíst hvað alhvítir dagar verða margir. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Brekkurnar eru auðar í Hlíðarfjalli. Síðast var alhvítt á snjómælingastöð þann 12. nóvember. Snjólaust á snjómæl- ingastöðvum landsins  Líklegt að einhvers staðar festi snjó í mánuðinum „Já, það er rétt. Ragnheiður gegnir stöðu innanríkisráðherra meðan Hanna Birna Kristjánsdóttir er í leyfi erlendis,“ sagði Ingvar Pétur Guðbjörnsson, aðstoðarmaður Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðn- aðarráðherra, í gærkvöldi. Hún hef- ur enn ekki verið lögformlega leyst frá störfum sem innanríkisráðherra. Ekki liggur fyrir hve lengi hún dvelst utanlands.Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að loknum þingflokksfundi í gær að hann vonaðist til þess að gengið yrði frá skipan arftaka henn- ar eftir helgi. Heimildarmenn telja að valið standi helst á milli Einars K. Guðfinnssonar, Birgis Ármanns- sonar og Ragnheiðar Ríkharðs- dóttur. Er Einar talinn líklegastur ef hann sækist eftir embættinu, sem er óvíst. gudmundur@mbl.is Ragnheiður gegnir störfum Hönnu Birnu  Nýr ráðherra eftir næstu helgi Morgunblaðið/Golli Fundað Einar K Guðfinnsson kem- ur til þingflokksfundar í gær. Tveir karlmenn voru í gærkvöldi úrkurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um að hafa stungið mann með hnífi á Hverfisgötu í fyrrakvöld. Fórn- arlambið gekkst undir aðgerð í fyrrakvöld og er í lífshættu. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rann- sóknardeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu, er talið að ráðist hafi verið á manninn í heimahúsi. Lögreglan hefur lýst eftir Arka- diusz Lech Ustaszewski, 21 árs, í tengslum við rannsóknina. Þeir sem vita hvar hann er niðurkominn eða geta veitt upplýsingar um ferðir hans eru beðnir að hringja í 112. Tveir í gæsluvarð- hald og einn eft- irlýstur eftir árás Arkadiusz Lech Ustaszewski Guðmundur Magnússon Agnes Bragadóttir Framlag til Landspítalans á fjár- lögum næsta árs verður líklega hækkað um einn milljarð króna að tillögu ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu fjárlagafrumvarpins á þriðjudag í næstu viku. Umræðan átti að hefjast á fimmtudaginn, en samkomulag varð á milli stjórnar- liða og stjórnarandstæðinga um að fresta henni fram yfir helgi vegna þeirra stóru breytingartillagna sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að flytja. Auknar tekjur ríkisins Tekjur ríkissjóðs hafa reynst meiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir þegar fjárlagafrumvarpið var samið í sumar. Fram kom í gær, að tekjuhlið ríkissjóðs verður á milli átta og níu milljörðum króna hag- stæðari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Af þeim sökum hefur mynd- ast svigrúm sem ríkisstjórnin vill nýta til aukinna fjárveitinga til heil- brigðiskerfsins, menntakerfisins og Landhelgisgæslunnar og fleiri verk- efna. Greindi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra frá þessu í ræðu á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins á laugardag- inn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fær Landspítalinn mesta hækkun, en að öðru leyti er ekki ljóst hvernig auknar fjárveitingar skiptast á milli fjárlagaliða. Fram hefur þó komið að hluti aukinna fjárveitinga fer til að niðurgreiða lyf enn frekar og hækka húsaleigu- bætur. Til stóð að kynna tillögur ríkis- stjórnarinnar á fundi fjárlaganefnd- ar í gærmorgun, en það gekk ekki eftir. Breytingartillögurnar verða kynntar á fundi nefndarinnar eftir hádegi í dag. Neðra þrepið 11 prósent Á fundinum í gærmorgun var greint frá því að neðra virðisauka- skattþrepið yrði 11%, en ekki 12% eins og til stóð. Neðra þrepið er í dag 7%. Með breytingunni er verið að koma til móts við harða gagnrýni á þennan þátt frumvarpsins. Eink- um var það hækkun skatts á mat- væli og bækur sem sætti gagnrýni. Breytingin felur í sér tveggja millj- arða tekjutap ríkissjóðs sem mætt verður með hinum auknu tekjum. Sjúkraflutningar undanþegnir Fjárlaga- og efnahagsráðuneyti hefur sent efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis fjölmargar aðrar breytingartillögur við lagafrum- varpið um virðisaukaskatt o.fl. Eru þær aðgengilegar á vef Alþingis. Þær eru bæði efnislegar og tækni- legar. Meðal efnislegra breytinga er að sjúkaflutningar verða áfram undanþegnir virðisaukaskatti, en til stóð að þeir yrðu það ekki. Skil- greining á söfnum er skerpt og hef- ur það áhrif á hvaða söfn falla undir ákvæði um virðisaukaskatts- greiðslur. Sama gildir um ákvæði um ferðaþjónustu þar sem nýjar skilgreiningar er að finna. Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi búast við að breytingin úr 12 prósentum í 11 í neðra þrepi skatts þýddi að matarútgjöld hækk- uðu af þeim sökum um innan við tvö prósent. Kvaðst hann fagna þessari breytingartillögu alveg sér- staklega. Landspítalinn fær mest  Tillögur ríkisstjórnarinnar verða kynntar á fundi í fjárlaganefnd Alþingis í dag  Samkomulag þingflokkanna um að fresta 2. umræðu um fjárlög til 2. desember Frumvörpum breytt » Landspítalinn fær einn milljarð króna til viðbótar í fjárlögum næsta árs. » „Matarskatturinn“ hækkar úr 7 í 11 prósent en ekki 12 eins og áformað var. » Ýmis lyf lækka með auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði. » Húsaleigubætur hækka. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aukið fé Talið er að ríkisstjórnin ætli að setja um einn milljarð króna í rekstur Landspítalans til viðbótar við það sem nú er í fjárlagafrumvarpinu. Fundi Félags prófessora og samn- inganefndar ríkisins, sem frestað var á föstudag en átti að fara fram í gær, hefur á nýjan leik verið frest- að. Ráðgert er að hann fari fram um miðjan dag í dag. Rúnar Vil- hjálmsson, formaður félagsins, sagði við mbl.is í gær erfitt að segja til um hvers vegna fundinum hefði á nýjan leik verið frestað. „En ég vil vera bjartsýnn og vona að þetta sé að þokast í rétta átt.“ Félag prófessora hefur boðað til verkfalls 1.-15. desember nk. náist samningar ekki. Kjarafundi prófess- ora aftur frestað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.