Morgunblaðið - 25.11.2014, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.11.2014, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2014 Þriðju tónleikar Kamm-ermúsíkklúbbsins af allsfimm á þessum vetri, oghinir síðustu 2014, fóru fram í Norðurljósum Hörpu á sunnudag við að sýndist jafnvel meiri aðsókn en oft áður, jafnvel þótt láðist sem endranær að kanna nákvæmlega miðasölu kvöldsins og undanfarnar til samanburðar – hvað þá að grafast fyrir um hugs- anlegar ástæður. Hið í sjálfu sér girnilega samhengi eftirspurnar og orsakir hennar liggur því enn í lausu lofti. Allt um það blöstu við nokkrar fágætar hliðar á markaðslögmálum klassískrar músíkneyzlu í dag- skránni. Í fyrsta lagi hlutfallslega fáheyrð ljóðasöngslög Wolfgangs Amadeusar, er hér hafði fjölgað um helming frá upphaflega boðuðum tveimur í vetrarskrá KMK, nefni- lega Ridente la calma K152, Das Lied der Trennung K519, Als Luise K520 og Abendempfindung. Hjónin Marta Guðrún Halldórsdóttir og Örn Magnússon fluttu þau snöf- urlega við góðar undirtektir og kynnti söngkonan stuttlega texta- hlið verkanna í úrbótarskyni við söngtextaleysi tónleikaskrár. Næst var Píanókonsert Mozarts K413 í kammerumritun hans sjálfs fyrir píanó og strengjakvartett. Næsta nauðsynleg ráðstöfun á höf- undarréttarlitlum tímum – og til- tölulega auðveld í þokkabót þar eð frumgerðin gerði, auk strengja- sveitar, aðeins ráð fyrir 2 hornum og 2 fagottum, er píanóið lék þegar mest varði. Í örstuttri en ágætri umfjöllun tónleikaskrárritara saknaði maður annars aðeins gullkornanna úr bréfi höfundar til Papa Leopolds um að í nýrri þriggja konserta röð Wolf- gangs (K413-15) væri nú allt saman komið fyrir innvígða hlustendur, og „hina líka – þótt þeir viti ekki hvers vegna.“ Sem óneitanlega varpar skondnu ljósi á bráðþroska næmi Mozarts fyrir að láta listina „fela“ listina. Með fyrirvara um fíngerðari kröfur kammerútgáfunnar kom konsertinn býsna vel út, og sízt verr Fiðlukvartett Mozarts K378 eftir hlé í umritun Andrés fyrir klarínett í hlutverki 1. fiðlu er Ármann blés fallega; sérstaklega í líðandi söng- hæfa milliþættinum, þótt brenna vildi við að klarínettið ryddist stöku sinni ögn fram úr hópnum í I. þætti. Aðalupplifun kvöldsins var þó tví- mælalaust lokanúmerið, 1. strengja- kvartett Béla Bartóks frá 1909, er tókst með þvílíkum glæsibrag að næmi minnst einni aukastjörnu. Að jafnóreynt íslenzkt strengjafereyki (miðað við alþjóðastaðla) skyldi megna að hleypa þessu æskumeist- araverki á jafnmikið flug og raun bar vitni kom flestum í opna skjöldu. Hversu „frumleg“ sem túlkunin kann að hafa verið hjá tug- mörgum öðrum á alþjóðamarkaði má einu gilda. Mikilverðast var að þeim fjórmenningum tókst að magna upp það mikla dulúð, spennu og hrynseið að útkoman hélt hlust- endum á tánum allt til enda. Fyrir jafnafstrakt módernískt verk (a.m.k. fyrir sinn tíma) var það sannarlega ekki heiglum hent, og vakti ósjálfrátt spurninguna um hvort slík frammistaða kalli ekki á viðeigandi opinberan styrk til frek- ari framþróunar og útflutnings. Glæsibragur „Aðalupplifun kvöldsins var þó tvímælalaust lokanúmerið, 1. strengjakvartett Béla Bartóks frá 1909, er tókst með þvílíkum glæsibrag að næmi minnst einni aukastjörnu,“ segir m.a. um tónleika Camerarctica. Magnaður Bartók! Norðurljósum í Hörpu Kammertónleikarbbbmn Mozart: 4 sönglög; Píanókonsert í F K413 (umritun höfundar); Fiðlusónata í B K378 (umr. J. André). Bartók: Strengjakvartett nr. 1 (1908). Kamm- erhópurinn Camerarctica (Marta G. Halldórsdóttir sópran, Hildigunnur Hall- dórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðla, Svava Bernharðsdóttir víóla, Sigurður Halldórsson selló, Ármann Helgason klarínett og Örn Magnússon píanó). Sunnudaginn 23. október kl. 19.30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Saxófónleikarinn Anna Webber kemur fram á djasskvöldi Kex hos- tels í kvöld ásamt tríói píanóleik- arans Sunnu Gunnlaugsdóttur. Anna Webber er kanadísk og býr og starfar í New York. Aðrir hljóð- færaleikarar, auk Webber og Sunnu, eru Richard Andersson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Á efnisskránni verða standardar og bebop, að því er fram kemur í tilkynningu. Aðgang- ur ókeypis. Kex hostel er á Skúla- götu 28. Á djasskvöldi Kanadíski saxófónleikarinn Anna Webber. Anna Webber leikur á Kex hosteli Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 10/1 kl. 13:00 Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 11/1 kl. 13:00 Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Lau 3/1 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Sun 4/1 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins! Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 22/11 kl. 20:00 25.k. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k. Lau 13/12 kl. 20:00 Sun 23/11 kl. 20:30 aukas. Lau 6/12 kl. 20:00 Lau 29/11 kl. 17:00 aukas. Sun 7/12 kl. 20:00 Nýjar aukasýningar komnar í sölu! Gaukar (Nýja sviðið) Lau 29/11 kl. 20:00 17.k. Sun 30/11 kl. 20:00 18.k. Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur Hamlet litli (Litla sviðið) Lau 22/11 kl. 16:30 AUKAS. Sun 23/11 kl. 17:00 3.k. -Táknmálstúlkuð Táknmálstúlkuð sýning 23. nóv kl. 17 Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 28/11 kl. 19:00 17.k. Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 19:00 18.k. Fös 12/12 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas. ATH janúar sýningar komnar í sölu! Jesús litli (Litla sviðið ) Fim 27/11 kl. 20:00 1.k. Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 28/12 kl. 20:00 Fös 28/11 kl. 20:00 2 k. Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Mán 29/12 kl. 20:00 Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k. Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k. Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 29/11 kl. 13:00 1.k. Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 30/11 kl. 13:00 2 k. Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Sun 21/12 kl. 13:00 Sun 30/11 kl. 15:00 3.k. Sun 14/12 kl. 13:00 Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl. ★★★★ – SGV, MblHamlet – Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Útlenski drengurinn (Aðalsalur) Sun 30/11 kl. 20:00 Fim 4/12 kl. 20:00 Lau 6/12 kl. 20:00 Lífið (Aðalsalur) Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 15:00 Aðventa (Aðalsalur) Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00 Ævintýrið um Augastein (None) Sun 30/11 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 17:00 Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.