Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 41
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
SPORTÍS
OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 12 - 18 - LAU. KL. 12-16
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mikið úrval af jóla- og árshátíðarkjólum
H
ver hefur ekki upplifað það að eiga fullan fataskáp af engu. Að
lenda í ströggli hvern morgun og vita ekkert í hvað við eigum
að fara er ekki sérlega góð leið til að byrja daginn. Í raun
mætti segja að þetta væri hin fullkomna leið til að gera dag-
inn alveg glataðan. Að líða eins og okkur vanti alltaf eitthvað er ekki góð-
ur staður að vera á. Og trúið mér – ég hef oft upplifað þetta …
Ég gat því ekki annað en brosað út í annað þegar ég sá „skets“ úr grín-
þættinum Stelpurnar þar sem Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona fór með
hlutverk móður sem var að troða sér í hverja flíkina á fætur annarri og
einhvern veginn virtist fataskápurinn hafa hlaupið eitthvað í þvotti. Þeg-
ar hún var búin að reyna við nánast hverja einustu flík í fataskápnum
endaði hún á því að fara í föt af manninum sínum
Ég tengdi mjög vel við þetta því ég veit ekki hversu oft ég hef keypt
mér eitthvað sem passaði kannski
ekki alveg nógu vel af því ég var
ekki í alveg nógu góðu jafnvægi
þegar fatakaupin fóru fram. Okk-
ur kvenpeningnum hættir nefni-
lega til þess að stökkva út í búð og
kaupa okkur eitthvað þegar lífið er
kannski ekki alveg eins og við vilj-
um hafa það. Þá er eitthvað svo of-
urauðvelt að skella sér í næstu
verslunarmiðstöð og reyna að fylla
upp í götin, sem geta myndast í
hjartanu við minnsta tilefni, með
því að kaupa sér eitthvað fallegt.
„Retail therapy“ er þekkt hugtak í
enskri tungu og hefur verið rann-
sakað ítarlega. Niðurstaðan er alla
jafna sú að hún veiti bara augna-
bliksánægju.
Ég held að þetta sé að hluta til
ástæðan fyrir því að við eigum oft
fullan fataskáp af engu. Fatakaup eiga ekki að vera framkvæmd á hlaup-
um og alls ekki í ójafnvægi heldur þarf að hugsa þau vel og vandlega.
Fæstir vaða í peningum og hafa alls ekki efni á því að eiga fullan fataskáp
af fatnaði sem þeir nota ekki – fyrir utan náttúrlega hvað þessi skort-
hegðun er óumhverfisvæn.
Þegar ég horfi til baka hefði kannski oft og tíðum verið mun gáfulegra
að hringja í vinkonu og fá hana með sér í langan göngutúr þar sem lífs-
gátan væri leyst í fersku lofti, í stað þess að æða í næstu verslunarmið-
stöð og kaupa eitthvað sem svo aldrei var notað.
Á þessum árstíma þar sem það tíðkast að laga aðeins betur til heima
hjá sér en venjulega er ekki úr vegi að fara í gegnum fataskápinn. Mögu-
lega komumst við að þeirri niðurstöðu að við eigum heilmikið af fötum
sem mætti kannski aðeins laga. Kannski þarf að stytta buxurnar sem
hafa hangið ónotaðar inni í skáp síðan í síðustu Ameríkuferð og mögulega
er jakkinn sem við ætluðum að grenna okkur í ennþá örlítið of þröngur
yfir handleggina. Ef við sjáum vandamálin við fötin sem hanga inni í skáp
þá er mögulega hægt að leysa þau með einföldum hætti.
Þó að ég kunni að sauma og hafi ætlað mér töluverðan frama í því sviði
á mínum yngri árum hefur lífið einhvern veginn þróast þannig að ég hef
bara aldrei tíma til að taka fram saumavélina. Þess vegna varð ég svo
glöð þegar ég uppgötvaði að í næstu götu við mig er saumastofa þar sem
almennilegar íslenkar miðaldra konur halda um stjórnartaumana. Þegar
ég kem með larfana af sjálfri mér taka þær brosandi á móti mér. Sumir
myndu segja að þær gætu breytt vatni í vín …
martamaria@mbl.is
Fötin hérna vinstra megin mætti mögulega þrengja.
Stundum dettum við í þann pytt að
kaupa okkur eitthvað sem við
notum svo aldrei.
Fullur fataskáp-
ur af engu …