Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 13
„Bananarnir sem eru á plöntunum hér þessa
dagana eru býsna vænir og senn fullvaxta.
Nokkrir klasar verða teknir niður í næstu
viku og þá fyllist hér allt af ávöxtum,“ segir
Elías Óskarsson á Reykjum í Ölfusi.
Garðyrkjudeild Landbúnaðarháskóla Ís-
lands er á Reykjum við Hveragerði. Þar hef-
ur Elías unnið mörg undanfarin ár við ýmis
ræktunarstörf í gróðurhúsum skólans.
Í húsunum kennir ýmissa grasa, í orðsins
fyllstu merkingu. Sumt þar er sjaldséð hér á
landi, svo sem bananaplöntur. Það er jarðhit-
inn sem skapar þau skilyrði að yfir höfuð
hægt sé að rækta banana á Íslandi. Raunar
eru slíkir hvergi í Evrópu ræktaðir í sama
mæli og gerist í Ölfusinu, þó afurðirnar þar
dugi aðeins til heimabrúks. Bjúgaldin það
sem Íslendingar fá kemur að stærstum hluta
frá Afríkulöndum og Ástralíu.
Hiti og mikill raki
Það var árið 1942 sem fyrstu bananaplöt-
urnar komu að Reykjum og áratug síðar var
byrja að rækta þær í sérbyggðu gróðurhúsi.
Starfsfólki Garðyrkjuskóla ríkisins, sem þá
var og hét, sinnti á þessum tíma ýmsum til-
raunum á því hvaða ræktun grænmetis og
ávaxta hentaði best hér á landi. Tómatar,
gúrkur, paprika og ýmsar káltegundir þóttu
koma best út. Bananabúskapur var hins veg-
ar ekki að gera sig, enda var fyrirséð að
framleiðslan yrði ekki næg svo arðbær yrði.
Úr því ákveðin reynsla hafði fengist við rækt-
un á bjúgaldinum var hins vegar ákveðið að
halda áfram, að öðrum þræði til gamans.
„Nei, það er ekki svo ýkja flókið að rækta
banana. Hitinn í gróðurhúsunum þarf að vera
um 20-25°C og rakastigið um 80 til 90% en
plönturnar sjálfar skapa þennan háa loftraka,“
segir Elías. Hann er öllum hnútum kunnugur
í þessari ræktun frá gamalli tíð, því afi hans
Guðjón H. Björnsson sem lengi var verknáms-
kennari að Reykjum var upphafsmaður þess-
arar ræktunar og sinni henni lengi.
Einn klasi á æviskeiðinu
Um 100 bananaplöntur eru í gróðurhúsinu
að Reykjum og skilar hver þeirra einum
klasa á æviskeiði sínum. Uppskeran fæst
árið um hring, en strax þegar henni er náð
þarf að fella plönturnar. Nýjar spretta svo
upp af rótarstofni, en þumalputtareglan er
sú að eitt og hálft ár líði fá því fyrsti sprot-
inn kemur upp úr moldinni uns bananarnir,
gulir og þroskaðir, eru tíndir af plöntu.
ÖLFUS
Fullvaxta klasar og allt fullt af ávöxtum
HVERGI Í EVRÓPU ERU BANANAR
RÆKTAÐIR Í SAMA MÆLI OG Í
GARÐYRKJUSKÓLANUM Á REYKJUM.
Elías Óskarsson með banana í gróðurhúsunum að Reykjum, þar sem senn kemur að uppskerutíð.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
U Thant framkvæmdastjóri SÞ kom í heimsókn til
Íslands 1966. Þeir Emil Jónsson utanríkisráðherra
brögðuðu á bönunum á Reykjum.
Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Íslandspóstur vill loka afgreiðslu sinni í Sandgerði og
að þess í stað fari póstbíll um bæinn. Bæjarráð telur
þetta óeðlilegt og telur lokunina koma sér illa fyrir
íbúa jafnt sem fyrirtæki á staðnum.
Sandgerði
Til stendur að fá Skúla Andrésson og Sigurð Má Dav-
íðsson frá Arctic project til að gera myndaband um
Skeiða- og Gnúpverjahrepp. 1,3 millj. kr. verða lagðar í
myndina sem á að auglýsa sveitarfélagið sem góðan stað.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Sy ru sson Hönnunar hús
Síðumúla 33
Fallegar vörur fyrir heimilið