Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 48
„Ég var því fegin að vera lögð inn en um leið upplifði ég sem ung stelpa mikið óöryggi þar inni. Ég deildi herbergi með öðrum sjúklingi, sem ég vissi ekkert um. Ég vissi ekki við hverju var að bú- ast,“ segir Silja Björk Björnsdóttir. É g hugsaði með mér að kannski væri það sem ég gekk í gegnum ekki til einskis. Kannski væri rík ástæða fyrir því að tilraun mín til að taka eigið líf misheppnaðist. Ég vil að aðrir viti það sem ég vissi ekki,“ segir Silja Björk Björnsdóttir sem síðasta eina og hálfa árið hefur haldið fyrirlestra í mennta- og grunnskólum og sagt ungmennum sögu sína. Silja Björk er aðeins 22 ára gömul og veikt- ist af alvarlegu þunglyndi þegar hún var í menntaskóla. Þegar hún fór að fara yfir grunn- og menntaskólaárin og sá að forvarnir og fræðsla um geðsjúkdóma voru af afar skornum skammti langaði hana til að gera eitthvað í málunum. „Ég hringdi eitt símtal og spurði hvort það væri einhver fræðsla í grunn- og menntaskólum – hvort það kæmi einhver og héldi tölu um þunglyndi fyrir nem- endur og komst fljótt að því að svo var ekki. Ég bauðst því að sjálfsögðu til að taka bara verkið að mér,“ segir Silja brött. Sjálf upplifði Silja skilningsleysi á hennar eigin vanlíðan. „Ég var lengi svekkt yfir því að hafa farið í gegnum menntaskólaárin án þess að njóta þeirra. Ég vildi óska að einhver hefði getað sagt mér að það hvernig mér leið í menntaskóla var ekki mér að kenna heldur sjúkdómi sem var ekki verið að meðhöndla.“ Áfallið talið of léttvægt Silja er fædd og uppalin á Akureyri og átti ljúfa æsku og umvefjandi fjölskyldu. „Það er saga um þunglyndi í fjölskyldunni en það var aldrei rætt neitt um það og ég hafði í raun aldrei heyrt neitt um þunglyndi. Ég á frænda sem tók eigið líf ungur og benti eitt sinn á mynd af honum og spurði hver þetta væri og hvað hefði komið fyrir en það var fátt um svör. Það er svo margt kennt í skólum en engu að síður er skautað framhjá þessu. Auð- vitað kom manni á óvart að fullorðna fólkið, kennarar og skólayfirvöld, og líka fjölskylda, skyldu ekki átta sig á að ég væri einfaldlega veik en ekki ómöguleg og erfið. En það er bara staðreynd að þunglyndi og geðsjúkdóma er svo oft reynt að skrifa á eitthvað annað, og það má líka segja að ég hafi verið dugleg að fela það eftir bestu getu.“ Þegar Silja var í öðrum bekk í menntaskóla lenti hún í bílslysi sem hún telur hafa fært undirliggjandi sjúkdóm upp á yfirborðið. „Ég hafði aldrei lent í neinu, aldrei misst neinn, ekkert komið fyrir mig, varla brotið bein. Það sluppu allir lifandi úr þessu slysi en þung- lyndið fór að láta á sér kræla þarna. Ég tók ranga ákvörðun á miðvikudagskvöldi, fór upp í bíl með strák sem ég var ógurlega skotin í og vini hans en þeir voru undir áhrifum áfengis. Við lentum á litlum Toyota Yaris ut- an í pallbíl. Það næsta sem ég man er að vakna á spítala. Ég skaddaðist á mjöðm og baki og finn enn í dag fyrir doða í andliti og hef farið í gegnum óteljandi tíma hjá sjúkra- þjálfara. En miðað við andlega þáttinn er það smávægilegt. Mörgum fannst afar skrýtið og sumum næstum aumingjalegt að ég virtist ekki geta gleymt slysinu, þar sem enginn hefði dáið, en þetta snýst ekkert um stærð áfalla og ég er alltaf að sjá það betur í kring- um mig.“ Silja fór að finna fyrir skeytingar- og áhugaleysi. Tilhugsunin um að fara fram úr rúminu og bursta í sér tennurnar hljómaði eins að fjallganga. „Ég fór til geðlæknis fljót- lega eftir slysið sem sagði við mig að ég væri svo flott og klár stelpa að ég ætti bara eftir að jafna mig. En ég beið í mörg ár eftir því að það gerðist en aldrei jafnaði þetta sig. Til- finningarnar sem fóru að gera vart við sig voru djúpstæðar og sterkar. Ég upplifði sjálfshatur og vonbrigði yfir það heila með allt og sjálfa mig líka. Á alla kanta fór mér að finnast ég misheppnuð. Ég festist í hugsunum – fór að hugsa það sama aftur og aftur og ef fólk sagði eitthvað við mig sem heilbrigð manneskja hefði ekkert spáð í tók ég því eins og árás og smám saman missti ég tökin á hugsunum mínum.“ Lítill skilningur Verst þótti Silju að missa áhugann á hugð- arefnum sínum. „Ég hafði verið fyrir- myndarnemandi með toppeinkunnir og hefði aldrei dottið í hug að skrópa í tíma. Auk þess var ég allt í öllu, var í ræðuliðinu, var formað- ur leikfélagsins, í árshátíðarnefndinni. Það var eins og þessari manneskju væri skipt út fyrir einhverja aðra sem gat ekki farið fram úr á morgnana. Ég reyndi áfram að sinna þessum verkefnum en var ekki að valda hlutverkinu.“ Þunglyndið braust fram í hálfgerðum per- sónuleikabreytingum og Silja fór að rekast á veggi. „Ég kenni engum persónulega um þetta. Unglingar og þunglyndi er mál sem einfaldlega þarf að vekja samfélagið til með- vitundar um. En þegar ég sagði frá því að mér liði illa fékk ég að heyra allt í kringum mig að ég ætti að hætta þessu væli, ég hefði ekkert að kvarta yfir. Viðkvæðið var; „Eru ekki bara allir að fá einhverja greiningu?“ Eins og það væri slæmt að fólk væri að fá lausn sinna vandamála. Kannski er innbyggt í okkur Íslendinga að maður eigi að þrjóskast við og harka allt af sér. Sem eftir á er svo erfitt fyrir mig að skilja, í dag skil ég ekki af hverju fólki fannst ég ekki eiga jafnmikið heima undir höndum fagfólks og ef ég hefði fótbrotnað í skólaferðalagi eða veikst af öðr- um sjúkdómi.“ Þegar Silja var komin í þriðja bekk í menntaskóla var hún kölluð á fund aðstoðar- skólameistara. „Ég var farin að mæta illa, einkunnir hríðféllu og þar að auki braust van- líðan mín þannig út að ég var orðin hortug og dónaleg við kennarana mína sem skildu ekk- ert í mér. Ég hugsaði með mér að ég skyldi segja aðstoðarskólameistaranum hvað mér liði illa og að mér hefði lengi liðið illa og að ég vissi hreinlega ekki hvað væri í gangi. Við- kvæðið var að það væri ekkert að mér svo að það sæist, ég gæti staðið upp á morgnana virtist vera. Líkamlega gat ég það þótt það væri mikið átak. Hann spurði mig líka hvort ég ætlaði að kasta menntun minni á glæ. Ég er viss um að viðmótið sé annað í dag og veit það raunar, ég hef fengið bréf síðar frá kenn- urum sem hafa sagt mér að þeir hefðu óskað þess að þeir hefðu áttað sig á hvernig ástand- ið var. En þetta viðmót er líka ástæðan fyrir því að ég vil hafa kennara og skólayfirvöld viðstödd þegar ég held fyrirlestra í skólum. Það er ekki nóg að nemendurnir viti þetta.“ Heima fyrir tók Silja sömu breytingum, hún hafði átt mjög gott samband við foreldra sína en það snarbreyttist. Hún var líka dug- leg að fela það hve illa hún mætti í skólann. Hún vaknaði á sama tíma og foreldrarnir, klæddi sig, borðaði morgunmat og fór út á strætóstoppistöð. Þegar móðir hennar var far- in í vinnuna gekk hún til baka og lagðist aftur upp í rúm. Rétt áður en móðir hennar kom heim úr vinnunni um eftirmiðdaginn dreifði hún úr skólabókunum á borðstofuborðið eins og hún hefði verið að læra. „Eitt sinn faldi ég mig inni í skáp þegar yngri systir mín kom óvænt heim úr skólanum í hádegishléi. Hún var vön að kíkja inn í herbergið mitt og ég sá hana út um gluggann vera að koma. Ég hljóp fram í forstofu, sótti skóna mína og úlpu og fór með þetta með mér inn í skáp þar sem ég hékk allt hádegishléið hennar.“ Silja segist ekki skilja hvernig henni tókst að útskrifast úr menntó. „Ég útskrifaðist, en með lélegri einkunnir en ég hefði óskað og búin að brenna brýr að baki mér. Foreldrar mínir voru í fyrstu ekki að kveikja að ég þyrfti hjálp þrátt fyrir að samskipti okkar færu versnandi. Ég held hreinlega að for- eldrar séu oft ekki viðbúnir því að svona geti þunglyndi skollið skyndilega á og séu ráð- þrota. Þegar það fóru að renna tvær grímur á mömmu, að þetta væri eitthvað meira en afar erfiður unglingur og hormónar eða hvað þetta var, var ég orðin sjálfráða og lét það sem vind um eyru þjóta. Svo kom þetta í tímabilum líka. Vondu tímabilin stóðu í nokkrar vikur í senn, stundum í nokkra mánuði.“ Skellur eftir árangursríka meðferð Silja fékk að heyra það í fyrsta skipti þegar hún var orðin tvítug að hún væri þunglynd. Þá fór hún í fyrsta skipti til sálfræðings. Á þeim tíma var hún farin að haga sér eins við þáverandi kærasta sinn og foreldra hans sem hún bjó hjá; gera ekkert á daginn meðan allir aðrir fóru til vinnu og í skólann. „Ég var farin að þekkja það að það komu góðir tímar eftir þunglyndisköst. Ég hugsaði um það þegar ég var langt niðri og þraukaði. Frestaði því endalaust að leita mér hjálpar. Kærasti minn þurfti að stilla mér upp við vegg og það hljómar harkalega en ég er honum þakklát. Hjá sálfræðingnum kom í ljós að vandamál mitt snerist um miklu meira en að vinna úr bílslysi. Þótt ýmis áföll, og jafnvel líka gleði- legir atburðir, fæðingar og giftingar, geti leyst undirliggjandi þunglyndissjúkdóm úr læðingi, er ekki þar með sagt að þessir at- burðir sem slíkir geri það að verkum að mað- ur verði þunglyndur. Ef það hefði ekki verið fyrir þetta bílslys þegar ég var 17 ára hefði það bara verið eitthvað annað. Ég átti við sjúkdóm að stríða, hann hefði getað komið fram síðar á ævinni en það gerðist þarna.“ Silja fór í gegnum árangursríka meðferð hjá sálfræðingi fyrir norðan. Hún lærði hug- ræna atferlismeðferð sem reyndist henni afar vel þar sem hún vann með hugsanir sínar og að ráðast að ákveðinni hugsanaskekkju. Hún fór í um 4 mánaða meðferð. „Þetta var mikill léttir fyrir alla í kringum mig og mig sjálfa. Mér leið vel og ég hugsaði með mér: „Já flott, núna er þetta bara á bak og burt.“ En eins og kom fljótt í ljós þá er þetta verkefni sem verður ekki leyst á einni nóttu. Þunglyndi og kvíði gerðu aftur vart við sig þegar ég hafði flust til London og starfaði þar sem au pair. Ég þekkti einkennin – ég vissi að þetta var þunglyndi sem var að láta á sér kræla. Ég flutti heim en var þá orðin mjög illa haldin. Fljótlega eftir að ég flutti heim, í júní í fyrra, náði ég ákveðnum botni. Ég hafði oft hangið í neðstu þrepunum andlega en ekki á þessum ógurlega svarta stað. Ég hafði að vísu komist nærri einu sinni; þegar ég fékk bílinn hans pabba míns lánaðan, keyrði út í fjörð þar sem er þverhnípt niður og hugsaði hvað allt væri auðvelt ef ég myndi bara láta bílinn renna fram af. Ég hætti við því ég hugsaði um hvað það væri leiðinlegt að pabbi þyrfti að kaupa sér nýjan bíl – ekki að hann missti barnið sitt! Og þetta var sama hugsun og lét á sér kræla þennan dag í júní. Ég vorkenndi for- eldrum mínum ekki að missa mig, ég var að gera þeim greiða því ég vorkenndi mínum nánustu frekar fyrir að eiga svona ömurlegt barn, systur og vinkonu. Það er algengur mis- skilningur að fólk sem tekur eigið líf geri það af eigingjörnum hvötum; eins furðulega og það hljómar, er það að hugsa um aðra.“ Silja Björk innbyrti öll þau lyf sem hún fann í lyfjaskápnum í júní fyrir ári. Kvíðastill- andi lyf, verkjalyf, steralyf sem faðir hennar hafði fengið eftir aðgerð, allt sem hún fann. Hún hafði þá einnig farið á netið og fundið út hvernig útbúa ætti snöru til að hengja sig í og útbjó eina slíka úr grænni þvottasnúru. Með lyfjunum drakk hún sterkt áfengi úr vín- skápnum. „Meðan ég datt inn og út fannst mér hring- urinn vera að lokast, þetta yrði frelsi. Ég sá ekki fyrir mér að þessum sársauka myndi linna nema með því að drepa mig. Ég man að ég átti mjög erfitt með að anda og grét sáran. Ég gat ekki ímyndað mér annað en að eftir smávegis sorgarferli myndu mínir nánustu öðlast betra líf; að þurfa ekki að hafa eilífar áhyggjur af mér. Ég vildi að ég gæti sagt að ástæðan fyrir því að ég hringdi á hjálp væri sú að ég hafi séð foreldra mína fyrir mér Hélt að ég væri að gera þeim greiða SILJA BJÖRK BJÖRNSDÓTTIR SEGIST EINSKIS ÓSKA FREMUR EN AÐ UNGLINGAR VITI AÐ ÞEIR GETI FENGIÐ HJÁLP VIÐ ÞUNGLYNDI. SJÁLF ER HÚN Á BATAVEGI EFTIR ERFIÐ VEIKINDI SEM ENDUÐU MEÐ SJÁLFSVÍGSTILRAUN. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is * Ég hafði verið fyrir-myndarnemandimeð toppeinkunnir og hefði aldrei dottið í hug að skrópa í tíma. Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.11. 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.