Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 35
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is
HEIMILISTÆKJADAGAR Í
20% afsláttur
Fyrsta kaffihúsið sem sérhæfir sig í
morgunkorni verður opnað í Bret-
landi í næsta mánuði, í Shoreditch-
hverfinu í austurhluta Lundúna. Þar
verður boðið upp á meira en eitt
hundrað tegundir af morgunkorni
og að minnsta kosti þrettán ólíkar
gerðir af mjólk. Viðskiptavinum er
frjálst að blanda morgunkorninu
saman að vild og allskyns kurl verð-
ur á boðstólum til að sáldra yfir
góðgætið.
Cereal Killer Café er í eigu tví-
burabræðranna Alans og Garys
Keerys og tilgangurinn með uppá-
tækinu er einfaldur: Að endurvekja
spennuna sem bræðurnir fundu
fyrir þegar fengu sér morgunkorn
sem börn. Það er gömul saga og ný
að lítið þurfi til að gleðja suma.
Bræðurnir eru sannfærðir um að
þáþráin muni blossa upp í gestum
þegar þeir heimsækja staðinn. Hver
á ekki sína minningu um morg-
unkorn?
Hnetusmjör í uppáhaldi
„Uppáhaldsmorgunkornið mitt um
þessar mundir er allt með hnetu-
smjörsbragði frá Bandaríkjunum,
sérstaklega Cap’n Crunch Peanut
Butter með jarðarberjamjólk,“ seg-
ir Gary í samtali við breska blaðið
The Independent. „Hvað klassíkina
áhrærir er ég alltaf jafnveikur fyrir
Shreddies með heitri mjólk.“
Auk morgunkorns mun kaffi-
húsið einnig bjóða upp á kaffi, rist-
að brauð, allskyns bökur og sitt-
hvað fleira sem menn kunna að
girnast í morgunsárið. Raunar er
ekki nauðsynlegt að koma að
morgni því Cereal Killer Café
verður opið til klukkan 20 á kvöld-
in.
Opna morgunkornskaffi
Hver á ekki sitt uppáhaldsmorgunkorn? Af ýmsu er að taka.
AFP
Þeir sem héldu að „cronut“ væri
bara tískubylgja sem væri að deyja
út virðast hafa haft rangt fyrir sér. Í
vikunni hóf hin stóra bandaríska
keðja Dunkin’ Donuts að selja
góðgætið. Cronut stendur fyrir
blöndu af „croissant“ og „donut“
og er uppfinning bakarís Dom-
inique Ansel í SoHo í New York.
Þessi sérstaki kleinuhringur virðist
því kominn til að vera og kemur sér
rækilega í meginstrauminn hjá
þessari keðju.
Blandan virðist höfða til fólks en
hún kom fyrst fram þann 10. maí
2013 hjá fyrrnefndu bakaríi. Ansel
var tvo mánuði að þróa uppskrift-
ina sem tókst loks þegar hann var
búinn að prófa tíu mismunandi að-
ferðir.
Svona lítur „cronut“ út hjá banda-
rísku keðjunni Dunkin’ Donuts.
AFP
Bragðgóður
bræðingur
Tæknin er ótrúlegt fyrirbæri og í
dag er hægt að prenta út alls konar
hluti með þrívíddarprentara, jafn-
vel líffæri og stoðtæki, og nú bæt-
ast fleiri í safnið. Fyrirtækið Nat-
ural Machines í Dublin kynnti í
vikunni prentarann „The Foodini“
sem prentar mat. Í viðtali við CNN
segir Lynette Kucsma, annar stofn-
andi Natural Machines, að prent-
arinn sé ekki svo ólíkur venjulegum
þrívíddarprentara sem prentar úr
plasti en munurinn er sá að þessi
prentar úr náttúrulegum efnum
sem má borða. Gaman verður að
fylgjast með framhaldinu.
Þetta glæsilega spaghettí var prentað
með Foodini-prentaranum.
Prentar heilar
máltíðir