Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 27
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 E-60 Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð Verð frá kr. 24.300 Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.iswww.facebook.com/solohusgogn E-60 Bekkur Verð frá kr. 59.000 Fáanlegur í mismunandi lengdum. Eldhúsborð og stólar Íslensk hönnun í gæðaflokki Retro borð Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti og harðplastlagðri plötu. Stærð og litur að eigin vali. Verð frá kr. 85.000 E60 stóll, verð frá 24.300 Hönnunarmiðstöð Íslands hlaut sérstök hvatningarverðlaun fyrir gott markaðs- starf árið 2014 á markaðsverðlaunahátíð ÍMARK þann 6. nóvember. Þetta er í fyrsta skipti sem hvatningarverðlaun eru veitt við það tækifæri. „Eitt af því sem er nýlunda er að veita sérstök hvatningarverðlaun en þau eru veitt fyrirtæki eða stofnun sem fyrir einhverra hluta sakir vakti athygli dómnefndar. Hér getur verið um afmarkaðan þátt markaðsstarfsins að ræða en ekki heildstætt mat eins og gerð er krafa um þegar markaðsfyrirtæki ársins er valið,“ sagði dr. Þórhallur Guðmundsson, dósent í markaðs- fræði við Háskóla Íslands og for- maður dómnefndarinnar, meðal annars í ræðu sinni við afhendingu verðlaunanna. Hönnunarmiðstöð við verðlaunaaf- hendinguna. Sari Peltonen, Greipur Gíslason, Halla Helgadóttir, Sara Jónsdóttir, Ólöf Rut Stefánsdóttir og Arnar Fells. Hönnunar- miðstöð hlýtur hvatningar- verðlaun Guðrún Valdimars- dóttir vöruhönnuður frumsýndi borðið Hyl á HönnunarMars síðastliðið vor. Guð- rún segist hafa fengið fjölda fyrirspurna eft- ir að borðið var sýnt en það er nú komið í sölu í versluninni Epal. „Borðið státar af mjög sterkum og einföldum línum, það er úr hnotu og með hvítum borðplötum, en síðast en ekki síst leynist geymsluhólf aftast á borðplötunni sem felur allar snúrur, hleðslutæki og fjöltengi sem virðast fylgja nútíma lífi,“ útskýrir Guðrún. Guðrún hlaut í júní styrk frá Hönn- unarsjóði fyrir áframhaldandi þróun og hönnunarvinnu að fleiri húsgögnum í sömu línu og Hylur. Guðrún segir styrkinn breyta miklu og flýta fyrir ferlinu. Þá hafi hún mögu- leika á því að einbeita sér að hönn- unarvinnunni. „Ég ætla meðal annars að gera nátt- borð og kommóðu eða skúffueiningu. Þetta verður ein lína úr sama efni. Mér fannst svo gaman að vinna með kontr- astinn milli hnotunnar, dökka viðarins, og alveg hvíts efnis.Ég hef alltaf verið í smávörum hingað til, gert kertastjaka og glerbakka, og þetta er mjög krefjandi og skemmtileg áskorun.“ Guðrún hannaði borðið Hyl fyrir tveimur árum síðan þegar hana vantaði sjálfa skrifborð í vinnurýmið sitt á heim- ilinu sem er inn af stofunni. „Ég þurfti því fallegt og nett borð og ég vildi alls ekki hafa snúruflóð hangandi niður á gólf. Ég leitaði vel og lengi að hentugu borði áður en ég ákvað að ráðast í verkefnið sjálf.“ Fleiri vörur úr línunni verða sýndar á HönnunarMars 2015. Skrifborðið Hylur er nú komið í sölu. Guðrún stefnir á að sýna fleiri vörur úr sömu línu og Hylur. Guðrún Valdimarsdóttir Krefjandi áskorun Sunnudaginn 9. nóvember mun Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, leiða spjall við nokkra af þeim hönnuðum sem eiga verk á sýningunni Prýði, af- mælissýningu Félags íslenskra gull- smiða, sem unnin er í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands. Rætt verður við Sigurð G. Steinþórsson, Erling Jóhannesson, Orra Finnbogason og Helgu G. Friðriksdóttur. Viðburð- urinn hefst kl. 14.00 á Hönn- unarsafni Íslands. Spjallað við ís- lenska gullsmiði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.