Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 29
S
tíllinn minn er frekar afslappaður, það sem
heillar er eitthvað persónulegt og öðruvísi
og mér finnst ofboðslega mikilvægt að hafa
þægilegt, sérstaklega inni á heimilinu þar
sem fjölskyldan á sinn örugga stað og kemur sam-
an eftir annríki dagsins,“ segir Sigríður Margrét
eða Sigga Magga, framkvæmdastýra hjá Litlu
hönnunarbúðinni á Strandgötunni í Hafnarfirði.
Sigga Magga býr ásamt eiginmanni sínum Elvari
og tveimur sonum þeirra, Benedikt og Ingiberg,
15 og 12 ára, í afskaplega fallegri íbúð í Hafn-
arfirði.
Sigga Magga sækir innblástur á mismunandi
staði og segist hún elska göngutúra með hund-
unum sínum enda segir hún náttúruna veita mik-
inn innblástur.
„Svo er það á bloggsíðum hérlendum og erlend-
um, pinterest og svo skemmtilegum tímaritum eins
og RUM, Bolig magasinet, Hús og Híbýli, Man
Magasin og Home Magazin og svo er eitt tímarit
sem mér finnst alger snilld, það er KKliving.“
Siggu Möggu finnst ósköp gaman að finna eitt-
hvað einstakt og gamalt með sál og þá er Góði
hirðirinn eða smáauglýsingarnar mikið notaðar.
„Ég hef líka rosalega gaman af að eiga eitthvað
eftir aðila sem vinna hlutina sjálfir, svo eru það
búðir eins og Habitat, Ikea og Pier sem stundum
er kíkt í.“
Sigga Magga segir nýjan sófa efstan á óskalist-
anum fyrir heimilið og rebba-kertastjaka eftir Sól-
veigu, vinkonu sína og skólasystur.
Aðspurð hvað sé mikilvægast að huga að við
innréttingu heimilisins svarar Sigga Magga: „Mik-
ilvægast er huga að því hver á að vera tilgang-
urinn með rýminu og hverjir munu koma til með
að nota það og vinna svo út frá því.“
Litríka málverkið og stóri spegillinn setja
svip sinn á rúmgóðan ganginn.
Heillandi tréfuglar eru á heimilinu.
Rebba-kertastjakinn eftir Sólveigu, vinkonu
Siggu, er í miklu eftirlæti hjá Siggu.
Marglita Iitala-stjakarnir taka sig vel út á
silfurlituðum kertabakka.
Náttúran veitir
innblástur
SIGRÍÐUR MARGRÉT JÓNSDÓTTIR HEFUR KOMIÐ SÉR OG FJÖLSKYLDU
SINNI VEL FYRIR Á FALLEGRI HÆÐ Í HAFNARFIRÐI OG SEGIR HÚN
ÞÆGINDI SKIPTA MIKLU MÁLI INNI Á HEIMILINU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
HEILLANDI HEIMILI Í HAFNARFIRÐI
Stofan er afskaplega notaleg.
Flotta flotgólfið gefur heimilinu
heillandi yfirbragð.
Sigga Magga hefur mikinn áhuga á hönnun en hún rek-
ur Litlu hönnunarbúðina á Strandgötu 17.
Þetta fallega hreindýrahöfuð úr pappír
kemur vel út á stofuvegggnum.
Falleg, uppstoppuð rjúpa sem Sigga
Magga fékk frá föður sínum.
Skemmtileg smáatriði í stofuglugganum.
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
REYK JAV ÍK | AKUREYR I
BRIGHTON 3JA SÆTA SÓFI
Litir: Koníaksbrúnt, dökkbrúnt
og svart. Vandað ekta leður.
Stærð: 3ja 204 x 80 H: 77 cm.
2ja sæta 150 x 80 H: 77 cm.
AÐEINS KRÓNUR
254.972
Fullt verð kr. 319.990
TAXFREE
VERÐ
3JA SÆTA. LEÐUR.
AÐEINS KRÓNUR
215.131
Fullt verð kr. 269.990
TAXFREE
VERÐ
2JA SÆTA. LEÐUR.
KOMDUOG
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ!
OPIÐ ALLA
HELGINA
REYKJAVÍK