Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 30
Matur
og drykkir *Rannsóknir hafa sýnt fram á að betraer að borða vel á morgnana og frekarsnarl á kvöldin. Það er í raun meira vit íþví þar sem að líkaminn þarfnast mik-illar orku áður en haldið er út í daginn.Hollur morgunmatur, heit máltíð í há-degi og léttur kvöldverður fyrir kl. 19 á
kvöldin er gott viðmið.
Stærri morgunverður, minni kvöldverður
Á
dögunum gaf Theódóra út matreiðslubókina Matargat
sem tileinkuð er börnum en hún sér um eldhúsið á hjalla-
stefnuleikskólanum Laufásborg í miðbæ Reykjavíkur.
„Bókinni hefur verið tekið mjög vel, framar mínum björt-
ustu vonum og það er gaman að segja frá því að brandararnir í
henni eru líka að slá í gegn sem er skemmtilegur bónus! Mat-
reiðslubókin er handa öllum börnum sem vilja taka þátt í elda-
mennskunni og síðar meir fá að gera allt sjálf. En hún er líka fyrir
alla aðra sem enn hafa barnið í sér og vilja prófa eitthvað nýtt,“ seg-
ir Theódóra. Matargatið hentar öllum aldri og má þar finna fjöl-
breyttar uppskriftir. „Ég heimsótti ömmu mína um daginn sem er
94 ára gömul og býr í Svíþjóð og færði henni eintak af Matargatinu.
Það kom mér skemmtilega á óvart, að amma mín háöldruð er farin
að elda upp úr Matargatinu, sem segir mér að þessi bók er svo
sannarlega fyrir alla, sama hvort þú ert fjögurra ára eða 94 ára.“
Theódóra er kennari að mennt, bæði leikskólakennari og heim-
ilisfræðikennari. Hún fluttist til Svíþjóðar ung að aldri og ólst þar
upp en þegar hún sneri til baka tók hún með sér helling af sænskri
matarmenningu. „Þannig er það með flest lönd sem ég hef heimsótt
og búið í. Hver staður, hvert land, hefur aukið áhuga minn á mat-
reiðslu og haft áhrif á mig og opnað ótal dyr að þeirri matarmenn-
ingu sem einkennir mig.“
Móðirin ýtti við dóttur sinni
Theódóra hefur haft áhuga á matargerð síðan hún man eftir sér og
segist bara ekki hafa áttað sig á því hversu mikinn áhuga á mat hún
hafði fyrr en móðir hennar sagði henni það. „Mæður hafa alltaf rétt
fyrir sér þannig að ég var ekkert að þrasa um þetta við hana. Í
framhaldi af því bætti ég starfsheitinu heimilisfræðikennari í safnið
og starfaði við það um tíma. Það veitti mér ómælda gleði. Mér
fannst samt kennsluefnið í heimilisfræði frekar fátæklegt og byrjaði
þá að velta fyrir mér matreiðslubók fyrir börn og unglinga sem væri
með uppskriftir sem þau elska og sem væri líka ögrandi, öðruvísi og
spennandi og gæfi þeim um leið tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Þannig að það eru nokkur ár síðan ég byrjaði að safna í hugmynda-
bankann og vinna hugmyndina mína að þessari bók.“
Theódóra segist eyða nánast öllum sólarhringnum í að hugsa um
mat og í raun snúist allt um mat frá því hún vaknar á morgnana og
þar til hún fer að sofa á kvöldin. „Mig dreymir meira að segja um
mat og þá er ég aðallega að elda mat. Ekkert er í raun og veru jafn
dásamlegt og að þeyta t.d. egg og sykur saman með góðum pískara
og sjá og finna hvernig hráefnin breytast í fallega froðu. Ég er pínu
klikkuð á þessu sviði,“ segir Theódóra og hlær.
Gott að borða saman í ró og næði
Það getur stundum verið erfitt að fá börnin til að borða fjölbreyttan
mat og gjarnan er grænmetið ekki ofarlega á óskalistanum. Aðspurð
um ráð við því segir Theódóra að hún gæti talað endalaust um það.
„Ég hef oft verið spurð að því hvers vegna börn borða oft betur í
leikskólanum en heima hjá sér. Ég hef oft velt þessu fyrir mér sjálf
og held að það skipti miklu máli að við borðum saman í ró og næði
og njótum stundarinnar saman, ræðum matinn, smökkum á honum
og finnist hann bragðgóður.“
Morgunblaðið/Ómar
ÁHUGI Á MATARGERÐ FRÁ BLAUTU BARNSBEINI
Réttir sem henta öllum
THEÓDÓRA J. SIGURÐARDÓTTIR BLÖNDAL ER FORFALLINN MATARUNNANDI. MATUR OG MATREIÐSLA
Á HUG HENNAR OG HJARTA OG FINNST HENNI FÁTT BETRA EN AÐ SJÁ FÓLK NJÓTA MATARINS
SEM HÚN BÝÐUR UPP Á. ÁSTRÍÐAN VARÐ TIL ÞESS AÐ HÚN GAF ÚT MATREIÐSLUBÓK.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Theódóra sér um eldhúsið
á leikskólanum Laufásborg
og fær stundum í heim-
sókn til sín fimm ára gull-
mola sem hjálpa til við
bakstur og matreiðslu.
Morgunblaðið/Ómar
Flest börn elska pönnukökur. Flest börn
elska líka nautahakk með tacobragði. Og
flest börn elska líka bræddan ost. Þannig að
hvað getur klikkað?
Crépes er franska og þýðir þunnar
pönnukökur. Pönnukökurnar geta verið
sætar eða ósætar líkt og í uppskriftinni sem
hér fylgir. Fyllingin fer svo eftir smekk og
áhuga hvers og eins. Uppistaðan í fyllingunni
hér á eftir er kjöt en getur að sjálfsögðu
verið aðeins grænmeti eða þá hvað sem
hugurinn girnist. Sem dæmi má nefna kjúk-
ling, skinku, beikon, rækjur, humar, bygg,
hrísgrjón, sveppi, tómata, kúrbít … listinn
er endalaus. Í fyllingunni er einnig hveitijafn-
ingur. Það má líka skipta á honum og nota
t.d. rjómaost. Jafningurinn gerir kjötfyll-
inguna þéttari í sér.
Byrjið á því að kveikja á ofninum og stillið
hitann á 180°C.
CRÉPES (PÖNNUKÖKUR)
10-15 stk.
4 egg
6 dl mjólk
3 dl hveiti
¼ tsk. salt
50 g brætt smjör
Þeytið egg og mjólk saman. Sigtið hveiti út í
ásamt saltinu. Látið smjörið bráðna og hell-
ið því saman við. Hrærið öllu saman í slétt
deig. Hitið pönnu, látið olíu eða smjör á
hana og steikið pönnukökurnar. Þær eiga að
vera í þynnra lagi.
KJÖTFYLLING
1 gulur laukur
2 hvítlauksrif
olía til steikingar
500-700 g nautahakk
2 teningar grænmetiskraftur
tacokrydd eftir smekk
smá svartur pipar
½ dl vatn
sjómaostur 100 g – ef jafningurinn er
ekki notaður
rifinn ostur til að setja inn í pönnu-
kökurnar, 2 dl
Skerið lauk og hvítlauk smátt. Hellið olíu á
pönnu og látið laukana mýkjast þar. Bætið
nautahakkinu við og brúnið það með laukn-
um. Setjið grænmetiskraft, tacokrydd ásamt
pipar og hrærið. Hellið vatninu saman við
og látið suðuna komi upp. Lækkið hitann
vel og látið kjötið malla rólega á meðan
jafningurinn er gerður. Ef þið viljið ekki nota
jafninginn er rjómaostinum bætt saman við
núna.
JAFNINGUR
1 ½ dl mjólk
½ dl vatn
½ dl hveiti
Mælið mjólkina og setjið hana í pott og lát-
ið suðuna koma upp. Hellið vatni og hveiti í
krukku, skrúfið lokið fast á og hristið sam-
an. Takið pottinn af hellunni, hellið hveiti-
þykkninu saman við mjólkina og þeytið á
meðan jafningurinn þykknar.
Blandið jafninginn saman við kjötblönd-
unina og takið pönnuna af hitanum.
SAMSETNING
Hafið bökunarplötu tilbúna með bök-
unarpappír ofan á. Leggið eina pönnuköku á
skurðbretti og setjið eina skeið af kjötfyll-
ingu á hana. Stráið rifnum osti yfir að vild
og lokið henni saman í þríhyrning. Leggið á
bökunarplötuna. Klárið allar pönnukök-
urnar og hitið svo í 8-10 mínútur í ofninum.
Berið fram t.d. með vatnsmelónusalati.
Það salat sem þú vilt – lambhagasalat,
klettasalat eða spínat, vatnsmelónubitar og
kirsuberjatómata.
Verði ykkur að góðu!
Crépes með tacokryddaðri
kjötfyllingu og vatnsmel-
ónusalat til hliðar