Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 22
Þ
að að drekka mikið af mjólk
minnkar ekki líkurnar á
beinbrotum, segir ný rann-
sókn sem birt var í British
Medical Journal. Rannsóknin, sem
fór fram í Svíþjóð, leiddi í ljós að
konur sem drukku meira en þrjú
mjólkurglös á dag voru líklegri til
að beinbrjóta sig en þær sem
drukku minna. Rannsakendurnir
segja þó að þetta megi ekki túlka á
þann veg að mikil mjólkurneysla
valdi beinbrotum. Aðrir þættir á
borð við alkóhólneyslu og þyngd
geta haft áhrif.
Mjólk hefur þótt góð uppspretta
kalks og því hefur verið mælt með
neyslu hennar. Rannsóknir á því
hvort mjólkin geri beinin sterkari
eru misvísandi.
Fylgst með yfir 100.000 manns
Sænskir vísindamenn fylgdust með
mataræði 61.400 kvenna á árunum
1987-1990 og 45.300 karla árið 1997
og fylgdust síðan með heilsu þeirra
næstu árin.
Á tuttugu ára tímabili kom í ljós
að konurnar sem drukku meira en
þrjú glös á dag, 680 ml, af mjólk
voru líklegri til að bráka og brjóta
bein en þær sem höfðu drukkið
minna. „Konur sem drukku þrjú eða
fleiri glös voru tvöfalt líklegri til að
deyja í lok rannsóknartímans en
þær sem drukku minna en eitt glas
á dag. Þær sem drukku mikla mjólk
voru líka 50% líklegri til að bráka
mjaðmabein,“ sagði Karl Michaels-
son, prófessor hjá Uppsala-háskóla
sem stóð fyrir rannsókninni.
Fylgst var með karlmönnunum í
um ellefu ár eftir upphaflegu könn-
unina og voru niðurstöður svipaðar
en þó ekki eins afgerandi.
Hinsvegar þegar litið var til
neyslu gerjaðra mjókurdrykkja var
niðurstaðan öfug, fólk sem borðaði
meira jógúrt var ólíklegra til að
bráka bein. Michaelsson segir að það
geti verið vegna mjólkursykursins en
einhverjar rannsóknir á dýrum hafa
sýnt fram á að hann hraði öldrun.
Áætlað er að rekja megi 1.000-
1.200 beinbrot á Íslandi til bein-
þynningar og eru úlnliðsbrot og
samfallsbrot í hrygg algengust en
mjaðmarbrot, sem eru alvarlegust,
eru um 200 árlega og mun þeim að
óbreyttu fjölga verulega með hlut-
fallslegri öldrun þjóðarinnar, segir á
vefnum Doktor.is. Færni og lífsgæði
margra minnka verulega í kjölfar
beinbrota með aukinni þörf á að-
stoð.
Fyrr á þessu ári voru teknir upp
nýir ráðlagðir dagskammtar fyrir
kalk hérlendis og má sjá grein um
þetta á Beinvernd.is. Karlar og kon-
ur yfir 18 ára eiga að neyta 800 mg
á dag og börn á bilinu 540-900 mg
eftir aldri. Ráðlagðir dagskammtar
fyrir kalk eru nú heldur minni en
þeir voru en mikilvægt er að
tryggja inntöku D-vítamíns því kalk
og D-vítamín verða að haldast í
hendur. D-vítamín hefur áhrif á
upptöku kalks úr meltingarveginum.
Ljósmynd/Getty
SÆNSKIR VÍSINDAMENN RANNSÖKUÐU ÁHRIF
MJÓLKURDRYKKJU Á TUTTUGU ÁRA TÍMABILI
Þrjú glös á
dag of mikið
MIKIL MJÓLKURDRYKKJA VIRÐIST EKKI MINNKA
LÍKURNAR Á BEINBROTUM. ÞAÐ HEFUR HINSVEGAR
JÁKVÆÐ ÁHRIF AÐ NEYTA GERJAÐRA MJÓLKURVARA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Heilsa og
hreyfing *
Hamast við húsverkin
Það þarf ekki alltaf að fara í ræktina til að koma
blóðinu á hreyfingu og ná upp púlsinum. Til
dæmis brennir 75 kg manneskja 50 kkal með því
að ryksuga í 15 mínútur, 40 kkal á almennum
þrifum á sama tíma og 25 kkal er brennt með því
að strauja í 15 mínútur. Ef leggja á út í almenn
húsþrif að innan sem utan þá má brenna um 225
kkal á klukkustund með því að taka vel á.
„Hæfilegt er að fá sér tvö glös, diska eða dósir af mjólk eða mjólk-
urmat á dag, eða sem samsvarar 500 ml yfir daginn. Einn skammtur
samsvarar mjólkurglasi, lítilli skyr- eða jógúrtdós eða osti á tvær
brauðsneiðar. Best er að velja fitulitlar og lítið sykraðar vörur. Ost-
ur getur komið í stað mjólkurvara að hluta til. 25 grömm af osti jafn-
gilda einu glasi eða diski af mjólkurvörum. Þeir sem ekki velja mjólk
geta valið kalkbætta sojamjólk og aðrar kalkbættar vörur eða tekið
kalktöflur,“ segir í bæklingi Embættis landlæknis, Ráðleggingar um
mataræði og næringarefni fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára
aldri. Bæklingurinn kom út árið 2011 en var endurskoðaður 2013.
Íslenskar ráðleggingar
100% hreinar
Eggjahvítur
Þú þekkir okkur á hananum
Án allra aukaefna!
Gerilsneyddu eggjahvíturnar frá Nesbú eru frábær valkostur í jólabaksturinn.
Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbú.
Ís
le
ns
k framleiðsla