Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 59
Í fyrra sló Vísindabók Villa rækilega í gegn og nú er komin ný bók. Í Vísindabók Villa 2 heldur Vilhelm Anton Jónsson áfram að fjalla um undur alheimsins og vísindanna, meðal annars dínamít, lofthjúpinn, andefni, steingervinga og snjókorn. Í bókinni er svo að finna spennandi og skemmtilegar til- raunir sem börnin geta gert heima, án þess að hrella foreldra sína um of Jólabók fyrir forvitin og fróðleiksfús börn. Undur vísindanna 9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 Leitin að Blóðey er fyrsta bók Guðna Líndal Benediktssonar, en hún bar sigur úr býtum í samkeppninni um barna- bókaverðlaunin 2014. Hér er á ferð viðburðarík saga þar sem alls kyns undur gerast. Þegar Kristján er sendur snemma í rúmið ákveður afi að segja honum sögu. Saga afa er engin venjuleg saga því þar koma við sögu galdramenn, ljónhestar og drekar, ófreskjur og tröll og dularfull eyja sem hvergi finnst á korti. Afar vita ýmislegt og þessi afi fullyrðir vitanlega að saga sín sé dag- sönn. Bókin er fyrir börn á aldr- inum sjö til tólf ára og er myndskreytt af Ivan Cappelli. Viðburðarík verðlaunabók Draugagangur á Skuggaskeri er ný barna- bók eftir hina vinsælu Sigrúnu Eldjárn. Bók- in er framhald sögunnar Strokubörnin á Skuggaskeri sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin er ætluð lesendum frá níu ára aldri og er ríkulega myndskreytt af höfundi. Strokubörnin eru fundin en neita að snúa heim fyrr en fullorðna fólkið hefur lagfært það sem eyðilagt var í stríði. Börn setja skilyrði Ný bók Arnaldar Indriðasonar, Kamp Knox, tyllir sér á topp metsölulistans. Glæpasagna- kóngurinn er mættur með fína bók þar sem Erlendur rann- sakar árið 1979 mannslát sem tengist herstöðinni á Mið- nesheiði en hefur einnig hug- ann við örlög ungrar stúlku sem hvarf aldarfjórðungi áður. Arnaldur kann sitt fag og aðdáendur hans verða ekki sviknir af þessari nýjustu bók hans. Arnaldur á toppnum Arnaldur og ýmislegt fleira góðgæti NÝJAR BÆKUR NÝ BÓK ARNALDAR INDRIÐASONAR, KAMP KNOX, ÆTLAR AÐ SLÁ Í GEGN LÍKT OG FYRRI BÆKUR HÖFUNDAR. JÓLABÓKAFLÓÐIÐ ER Í HÁ- MARKI OG ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER GLÆSILEGT EIGA ALLIR AÐ FINNA EITTHVAÐ VIÐ SITT HÆFI HVORT SEM ÞEIR ERU BÖRN, UNGLINGAR EÐA FULLORÐNIR. Litlu dauðarnir er ný bók eftir Stefán Mána og nokkuð ólík síðustu bókum hans. Daginn sem Kristófer missir vinnuna byrjar veröld hans að molna. Kristófer flýr með fjölskyldu sína út á land en eins og við eigum öll að vita getur maður ekki svo auð- veldlega flúið sjálfan sig né fortíðina – og fortíð Kristófers byggist á svik- um, leyndarmálum og lygum. Ný skáldsaga frá Stefáni Mána Læknirinn í eldhúsinu - Veislan endalausa er ný mat- reiðslubók eftir Ragnar Frey Ingvarsson lækni. Bók- in er sneisafull af girnilegum uppskriftum af öllu tagi sem munu alveg örugglega slá í gegn. Hver vill ekki borða camembert-kartöflumús og langeldað osso- buco og humar með rjómaostasósu? Og svo er pip- arsósan með grænu piparkornunum himnesk. Bók fyrir alla sælkera. Matarveisla hjá lækninum *Mér skilst að tónlist Wagners sé betrien hún hljómar. Mark Twain BÓKSALA 29. OKT - 4. NÓV Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason 2 Egils saga – ensk 3 Veislan endalausaRagnar Freyr Ingvarsson 4 OrðbragðBragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir 5 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson 6 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason 7 Kamp Knox - flugstöðvarútgáfaArnaldur Indriðason 8 ArfurinnBorgar Jónsteinsson 9 Í innsta hringViveca Sten 10 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson Íslenskar bækur 1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason 2 Veislan endalausaRagnar Freyr Ingvarsson 3 OrðbragðBragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir 4 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson 5 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason 6 Kamp Knox - flugstöðvarútgáfaArnaldur Indriðason 7 ArfurinnBorgar Jónsteinsson 8 Í innsta hringViveca Sten 9 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson 10 Jólin Hans Hallgríms MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Brennt barn forðast eldinn. Guðni Ein- arsson blaðamaður er höfundur bókarinnar Hrein- dýraskyttur. Þar segja karlar og konur, á ýms- um aldri, sport- veiðimenn og leið- sögumenn hreindýra- veiðimanna frá ævintýrum sínum á hrein- dýraveiðum á Íslandi og Grænlandi. Einnig er fjallað um fyrirkomulag hreindýraveiða. Leiðsögumaður hreindýraveiðimanna gef- ur svo góð ráð um undirbúning hrein- dýraveiða. Bók fyrir alla hreindýra- veiðimenn. Hreindýraskyttur Í sjálfsævisögu sinni Líf mitt segir knatt- spyrnumaðurinn Lu- is Suárez frá æsku sinni í Úrúgvæ, sem einkenndist af mikilli baráttu, og lýsir æskuástinni sinni. Hann segir frá litrík- um knattspyrnuferli sínum og þar koma vitanlega við sögu af- ar dramatískir at- burðir heimsmeist- aramótsins 2014. Íslenskir knattspyrnuáhugamenn hafa vafalítið mikinn áhuga á að kynna sér hvað einn besti knatt- spyrnumaður samtímans hefur að segja, en lífs- hlaup hans hefur verið ansi ævintýraríkt og mað- urinn sjálfur umdeildur, enda engan veginn skaplaus. Ævisaga Suárez
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.