Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 19
undir sem orsaka það, að efnið hrind-
ir vel frá sér, sem er veigamikið at-
riði varðandi þrif.
— Er nýlega farið að vinna úr
þessu „teak“ efni?
Getjunaráklæðin breytast sílellt í litum
og munztrum, því ræður tízkan hverju
sinni.
Eilt breylist þó ekki, vöruvöndun verk-
— Það er ekki ýkjalangt síðan
það var tekið í notkun almennt, en
í Austurlöndum hefur „teak“ verið
notað í húsgögn í margar aldir. Það
má til gamans geta þess, að smiðir
eru ekki eins hrifnir af „teak“ og
húsmæðurnar, vegna þess að það
inniheldur kísil sem tekur bit úr öll-
um verkfærum.
Híbýlamenningu fleygir fram.
— Hvað ber helzt að athuga við
val á húsgögnum?
— Ég svara þessu þannig, að ég
ráðlegg fólki að einblína ekki á verð-
ið á hlutunum sem keyptur er, held-
ur athuga gæðin og notagildið. Ef
fólk kaupir upp á til dæmis 30 ára
tímabil, þá skiptir ekki máli hvort
hluturinn er nokkur hundruð krón-
um dýrari til eða frá. Hins vegar ber
að athuga vel efnisval og vinnu-
brögð. Ég myndi nú t. d. telja mjög
æskilegt, að húsmóðirin væri með í
ráðum um val húsgagna á heimilum,
en vil þó engan veginn gera lítið úr
smekkvísi karlmanna.
— Ég vona að ég móðgi engan,
sagði Sveinn, þótt ég láti hafa eftir
mér, að húsgagnamenning á íslandi
geti varla talizt nema um 30 ára
gömul og almenningseign hefur hún
ekki verið fyrr en nú allra síðustu
árin. Húsgögn voru yfix-leitt ekki til
fyrir 30 árum nema á ríkismanna-
heimilum og þá yfirleitt skrautleg og
erfið varðandi þrif. Þessi gömlu
skrautlegu húsgögn eru nú að hverfa
og ég held að enginn þurfi að sjá eft-
ir þeim. í stað þeirra hafa komið
létt og íburðarlítil eða íburðarlaus
húsgögn sem eru þægilegri á allan
hátt. Til dæmis er nú farið að nota
mikið plastsvamp til fóðrunar í stað
svamps og gorma. Ekki er enn unnt
að segja um endingu plastsvampsins
þar sem tiltölulega lítil reynsla er
enn fyrir hendi, en hann er léttur
og lifandi og þægilegur í meðförum.
FRÚIN
J
19