Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 28
mÉÉíNHfí ■ 1 11 _ áiftk á
| f fl yJW? ^lwig 1 "•* SSSS9K ' -^*** Kmb jnB j
He'wAckn
í HúAnuefoaAkcla féeifkjatíkur
Húsmæðraskóli Reykjavíkur, að
Sólvallagötu 12, hefur nú starfað um
20 ára skeið. Skólann hafa ævinlega
á hverjum vetri sótt stúlkur alls
staðar að af landinu. Alls hafa skrif-
ast út úr skólanum á fjórða þúsund
nemendur. Sjálfur skólinn starfar í
9 mánuði og búa stúlkurnar í heima-
vist. Þá eru starfrækt tvö dagnáms-
skeið við skólann og verður nú sá
háttur tekinn upp, að fyrra námskeið-
ið stendur yfir frá því í miðjum
september til jóla, en hið síðara frá
janúarbyrjun til maíloka. Hingað til
hafa þessi námskeið verið jafnlöng.
Einnig eru sex kvöldnámskeið haldin
yfir veturinn og sækja þau árlega
180—190 stúlkur. Kennsla í skólan-
um og á námskeiðunum er bæði
verkleg og bókleg. Skólastjóri Hús-
mæðraskólans er frk. Katrín Helga-
dóttir og hefur hún starfað við skól-
ann í 13 ár, þar af 8 sem skólastjóri.
Kcnnarar eru 6 fyrir utan skólastjóra
og 4 tímakennarar.
Einn liður í skólastarfinu er að auka
kynni milli skólans og heimila nem-
endanna.Er það gert með því að halda
hinn svokallaða ,,mæðradag“. Upp-
haflcga var haldinn einn „mæðradag-
ur“ yfir veturinn, en síðari árin hef-
ur nemendum fjölgað það mikið í
skólanum, að „mæðradagarnir“ eru
orðnir 4 og skiptast þeir á milli deild-
anna.
Þessir dagar eru mjög vinsælir
bæði af kennurum, nemendum og
gestum.
Gcstirnir koma í skólann í mat,
kalt borð, kl. 5 síðdegis og dveljast
í skólanum fram eftir kvöldi. Þeim
er sýndur allur skólinn og yfirleitt
allt það, sem þá langar til að skoða,
handavinnu nemendanna, fylgjast
með hvernig kenslan fer fram o. s.
frv. — Myndirnar sem hér fylgja,
voru teknar á „mæðradegi“ um
miðjan mai síðastliðinn. Skólaslit
fara jafnan fram 6. júní.