Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 3
F RÚIN
Lvenna hhi
1. ARG.
JULI 1962
1. TBL.
TIL LESENDA
Þetta nýja blað, sem nú er að hefja göngu sína, ber nafnið
„Frúirí'. Nafngiftin hefur verið valin með tilliti til þess, að blaðið
flytur eingöngu efni sem ætlað er kvenfólki, ekki aðeins giftum
konum og húsmæðrum, heldur konum á öllum aldri.
Vitanlega eru áhuamál lesenda eins mörg og fjöldi þeirra. Þó
verður reynt að verða við óskum sem flestra um efnisval. Annað mál
er svo það, hvernig til tekst, en vonandi láta lesendur til sín heyra
um það, áður en langt um líður. Undanfarin ár hafa fremur fá
kvennablöð komið út hér á landi og ekki mörg mánaðarlega. „Frú-
irí' mun fylla flokk mánaðarritanna, þar sem henni er ætlað að
koma út einu sinni í mánuði.
Blaðið er ekki eingöngu bundið við Reykjavík heldur verður
reynt að sníða efni þess við hæfi lesenda um allt land. Því verður
stefnt út um landsbyggðina eins og unnt verður. Hvers konar leið-
beiningar um efnisval verður tekið með þökkum svo og efni, sem
birta mætti í blaðinu. Ætlunin er að „Frúirí' flytji íslenzkum kon-
um sem f jölbreyttastan fróðleik um sem flesta þætti þjóðlífsins i
borg og byggð.
Við vonum, að lesendur taki vel á móti blaðinu, en það megi
liins vegar verða þeim til ánægju og nokkurs gagns. — Ritstj.
VUa
Ungu hjónin lifi lengi,
leiki við þau sæld og gengi,
land og sjór þeim gefi gæði,
guð þau leiði sérhvert spor;
þeirra ást æ stöðug standi,
sterk, sem bjarg, er ekkert grandi;
lengi hjónin lifi ungu,
lengi og vel, það ósk er vor.
Jón Thoroddsen.
Efnisyfirlit:
BIs.
Frú Amalia Fleming skrifar
Ég hef verið svo hamingjusöm 4
Bréf og umsagnir 7
Vortízka 9
Vigdís Finnbogadóttir: Leiklist 10
Benedikt Gíslason fró Hofteigi:
Frá liðnum dögum 12
Lífið kvatt, heimsókn í
klaustur 14
Bréf frá Kína: Listin að lifa 16
Húsagagnatízkan, viðtal við
Svein Kjarval arkitekt 18
Marlon Brando:
Þannig er konan 20
Handavinna 22
Kötturinn, sem sagði VOFF 24
Michael Drury:
Ástin hefur þúsund andlit 26
Heimsókn í húsmæðraskóla
Reykjavíkur 28
Matur er mannsins megin 29
Lesendur skrifa 34
Þau voru alltaf að rífast 35
Líkamsrækt 37
Lög og réttur 37
íslenzkar stúlkur á erlendum
vettvangi 38
Góð ráð handa verðandi móður 40
Hvíld og afslöppun 42
Ingibjörg Lárusdóttir:
Bólu-Hjálmar 44
Blómaþáttur 46
Eldhúsgarðurinn 47
Frá „Frúnni“ til frúarinnar 48
Ljóð 7, 45
Skrítlur og spakmæli 21, 29, 47, 48
FRÚIN
3