Frúin - 01.07.1962, Blaðsíða 41
VERÐANDI MÓÐIIR
börn þóttu hraustlegust, ef þau höfðu
kringlótta fitubolla í kinnum og á
lærunum. Nú á tímum eiga börn að
vera þrifleg, en samt ekki of feit og
mæðurnar eiga að vita hvað og hve
mikið þau eiga að borða.
Til allrar hamingju er einnig orðið
úrelt að tala smábarnamál við þessa
litlu sakleysingja, sem eiga að fara
að læra að tala. Sé talað rétt mál við
þau, alveg frá byrjun, er þeim gert
auðveldara fyrir að læra að tala, á
skynsamlegan hátt.
Það getur verið freistandi að
kaupa stærsta og dýrasta barna-
vagninn, sem fæst, krómaðan og snjó-
hvítan. En það sem mestu máli skipt-
ir, er að barnið geti verið ánægt í
vagninum í hæfilega langan tíma, og
að vagninn hafi gott „drif“, hemla
og þægilegt sé að aka honum upp á
og niður af gangstéttarbrúnunum.
Barnarúmið á ekki að vera lágt,
svo að maður þurfi ekki að beygja
sig of mikið í öll þau skipti, sem mað-
ur er að sýsla við barnið, búa um
rúmið eða ræsta það. Það er betra að
hafa rimla í hliðunum, heldur en
heilar hliðar, svo að barnið liggi ekki
eins og inni í lokuðu búri og sjái lít-
ið út frá sér. Botninn á að vera góð-
ur og traustur, og eins og allir vita
er bezt fyrir bakið á barninu, að hafa
engan kodda. í staðinn er gott að
hafa sérstakan, vel samanbrotinn
dúk.
Þess ber að minnast, að nýfædda
barnið á ekki eingöngu móður, held-
ur líka föður, sem á að fá að hafa
ánægju af því að snerta við og sýsla
með barnið. Faðir og barn ættu að
komast í nána snertingu hvort við
annað á hverjum degi. Á hinn bóg-
inn á faðirinn að sjá um, að það
fari vel um móðurina, þegar hún
gefur barninu að drekka. Hún ætti
að sitja í þægilegum stól og helzt
með skemil undir fótunum, svo að
engin hætta sé á að missa barnið.
Þó að móðurmjólkin hætti að
nægja barninu, eða jafnvel sé á þrot-
um, og maður verði að grípa til pel-
ans, þá er illa gert gagnvart barninu
að gefa því pelann í rúmið. Haldið
við sambandinu við barnið, takið
það í fangið á meðan drukkið er úr
pelanum. Þá gefst líka tækifæri til að
iáta barnið ropa í tæka tíð.
Bezta stærð á bleyjum eru 75X75
cm. Fínofnar gasbleyjur þorna á
skemmstum tíma og sjúga bezt í sig-
Sé barnið klætt í of litlar og þröngar
gúmmíbuxur á hverjum degi, þá
samsvarar það því, að gefa því stöð-
ugan salmíaks-bakstur sem svíður
undan. Barnið verður rautt og sárt
að neðan og stofnar heimilisfriðnum
í voða. Það skiptir miklu máli að
sjóða bleyjurnar vel og skola þær
mörgum sinnum rsekilega. Annars
setzt sápan í efnið og það verður stíft
og meiðir hörundið og getur ekki
sogið í sig.
Barnj sem fær pelamjólk í stað
brgósts, getur orðið óvært ef því er
gefinn pelinn á rangan hátt. Haldið
pelanum á ská upp í loftið. Sé pelan-
um haldið láréttum fær barnið eins
mikið af lofti og mjólkurblandi upp
í sig.
Það býður erfiðleikum heim, að
banna eldri systkinum að fást við ný-
fædda barnið. Þá verða stærri systk-
inin afbrýðisöm, eins og vonlegt er.
Og það væri gott, ef fjölskylda og
vinir myndu eftir að heilsa og kveðja
„þau stóru“, þó að það sé nýkomið
pínulítið barn á heimilið, sem allir
eru spenntir að sjá. Margir gleyma
því algerlega, þótt ótrúlegt sé.
Maður kemst æ betur að raun um,
að maðurinn lifir ekki af brauði einu
saman. Ást og þolinmæði eru nauð-
synleg hverju barni.
Þér ættuð aldrei að láta afa eða
ömmu fá yður ofan af eftirfarandi
ráðleggingu: Neyðiið aldrei mat í
barn, sem neitar að borða. Þetta geta
verið eðlileg viðbrögð barnsins við
ofeldi, í samræmi við einstaklings-
þarfir þess. Og leyfið líka yngsta
barninu að sulla svolítið út og tala
við borðið, og skammist ekki yfir
því. Borðhaldið á að vera skemmti-
legt. Notið aldrei rúmið sem refsingu
fyrir barnið. Látið því finnast gam-
an að komast í litla rúmið sitt.
Þó að þér eigið sjálfsagt dásamleg-
asta barn í heimi, þá ber yður að hafa
það hugfast, að metnaður foreldr-
anna er oft í hróplegu ósamræmi við
óskir og hæfileika barnsins. Metnað-
ur foreldranna getur orðið barninu
fjötur um fót og valdið vandkvæð-
um á því, sem allir foreldrar óska
fyrst og fremst börnum sínum til
handa: heilbrigði og hamingju.
V
FRÚIN
41