Frúin - 01.10.1963, Side 10

Frúin - 01.10.1963, Side 10
Námsmeyjar sýna íslenzka þjóðbúninga frá ýmsum tímum, á árshátíð skól- ans. Fyrsti búningurinn (t. v.) er frá fimmtándu öld. Lengst til hægri er skautbúningurinn í dag. sagnfræðings. En tveir kvennaskólar voru settir nokkrum árum seinna, á Ytriey og Laugalandi. Frú Thora var mjög merk kona, stórhuga og fram- sýn og naut hún fyllsta stuðnings manns síns. Hún fann sárt til þess, hve menntunarskilyrði kvenna voru léleg hér á landi. Sjálf hafði hún, á- samt systur sinni, Ágústu, haft stúlknaskóla, en hann lagðist niður, er þær systur fluttust búferlum frá Reykjavik. Barátta frú Thoru fyrir þessu hugsjónamáli sínu, menntun kvenna, er aðdáunarverð. En hún naut stuðnings margra mætra manna og kvenna, innlendra og erlendra, og svo fór að hún setti Kvennaskólann í Reykjavík fyrsta október árið 1874 í húsi þeirra hjóna við Austurvöll. Húsnæðið var að sjálfsögðu alltof lítið, og .fór svo, að 4 árum seinna réðust þau hjónjn í nýja húsbygg- ingu á sama stað;' og þótti sú bygg- ing reisuleg. í því húsi var Kvenna- skólinn þar til núverandi skólahús var byggt árið 1909. í ritgerð, sem frú Thora Melsted birti í ísafold árið 1897 segir hún m. a.: „. .. menntunin er rétta undirstaðan undir öllu frelsi og öllum framförum. Vel uppalin og nokkur ár, en síðan bíður það þeirra flestra að annast heimilisstörf og ala upp börn sín, og við reynum að miða kennsluna við þetta hvort tveggja. — Hverjar eru helztu námsgreinar skólans? — Þær eru: íslenzka og erlendu málin: danska, enska og þýzka. Einn- ig er kennd stærðfræði og lesgrein- ar, svo sem saga, landafræði, náttúru- fræði, kristin fræði, ennfremur heilsu- fræði, hjúkrun í heimahúsum, upp- eldismál og félagsfræði. Við kennum einnig vélritun og bókfærslu, skrift og teiknun. Og svo að sjálfsögðu fatasaum, hannyrðir matreiðslu og leikfimi. Auk þess höfum við svo einn frjálsan tíma í viku í efsta bekknum og fáum rithöfunda og fræðimenn til að flytja erindi og lesa upp. — Einhvern tíma hefði það þótt góður kvenkostur, sem lært hefði allar þessar námsgreinar, varð frétta- manni að orði. — En meðal annarra orða, skóla- stjóri, þér sögðuð áðan, að Kvenna- skólinn væri næst elzti skóli lands- ins. Hvenær var hann stofnaður og hver var fyrsti skólastjóri hans? — Kvennaskólinn var stofnaður árið 1874, og stofnandi hans var frú Thora Melsted, kona Páls Melsted, Frú Thora Mel- sted (1907) 10

x

Frúin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.