Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 20

Frúin - 01.10.1963, Blaðsíða 20
Kristín Sigfúsdóttir frá Syðri-Völlum: /eiíih til lakhiA etta er ný hugmynd — tilbrygði af sögu frá þeim tíma er talsam- band Guðs og manna var svo auðvelt og algengt að enginn gat efast. Einn- ig hafa allar helgisögur þann sama rétt að þær hafi getað gjörzt, þó ekki séu öll atriði þeirra í Biblíunni, og þrátt fyrir allar þær heimildir er við styðjumst við þaðan, hafa Gyðingar mjög skiptar hugmyndir um Krist og stara margir þeirra enn á fyrir- heitin um sinn Messías — sem auð- vitað á að verða þeirra og aðeins þeirra „voldugi konungur“. Einn sterkefnaður Gyðingur, And- rés að nafni, vissi þó um undrin á himni og jörðu við fæðingu Krists. Hann trúði því öllu og hikaði ekki. — Seldi allar sínar eignir fyrir þrjár dýrmætar perlur til að gefa því blessaða barni og lagði glaður af stað til Betlehem. Þá löngu leið varð And- rés auðvitað að fara gangandi því nú átti hann hvorki úlvalda né asna sér til hjálpar. Eitt kvöld hafði And- könnuna. Við sitjum enn drykklanga stund og ræðumst við. Sólin er sig- in í sæ og Snæfellsjökull sést ekki lengur. Það er ósköp auðvelt að láta tímann líða í návist þessarar konu. Þekking hennar á mannlegu eðli er djúpstæð og skilningur hennar sann- ur. Trú hennar er sönn og einlæg, hleypidómalaus. Hún veit, að trú er trú og að vís- indi eru vísindi. Á hvorutveggja hefur hún mætur, en hún veit að vísindin geta ekki skilgreint hið yf- irskilvitlega í trúnni. Þess vegna vill hún að þessar greinar hasli sér völl hlið við hlið, en ekki hvor í annnars garði. ★ Ég spyr Kristínu að lokum: — Viltu segja eitthvað sérstakt við les- endur ,Frúarinnar?“ — Ég veit ekki, og þó, það væri þá helzt þetta: „Trúðu á tvennt í heimi tign er æðsta ber. Guð í alheims geimi guð í sjálfum þér. rés gengið yfir fjöll og foræði, var orðinn svo þreyttur að hann komst ekki lengra. Sá þá ljóstýru í litlum sveitabæ, lélegu hreysi, barði þar að dyrum og baðst gistingar. Lítill drengur kom fram og bauð honum inn. Þar var ekkert fólk nema fimm börn og faðir þeirra veikur í rúminu. Konan var úti að mjólka kúna. Svo kom hún inn og sagði að „gestinum væri velkomið að sofa í rúminu drengjanna, þeir gætu sofið á heydínu á gólfinu — svo skal ég breiða fötin mín ofan á þá.“ En nú stóð svo á, að hún átti engann mat nema mjólkina úr kúnni. Þeirri nær- ingu skipti hún í sjö staði og bað þau öll að „fyrirgefa hvað þetta væri lítið.“ Andrés heyrði stunur veika manns- ins og spurði, hvort hann hefði ekki leitað læknis. Nei, það var ekki hægt, þau áttu enga peninga. Þá sagði And- rés: ,Aldrei fyrr hef ég vitað hvern- ig það er að vera fátækur, né heldur hvað aumt það er að hafa aldrei orð- ið öðrum til hjálpar í neyð“ — tók svo eina perluna og sagði: „Þennan fjársjóð vil ég gefa ykkur til greiðslu fyrir læknishjálp og aðrar nauðsynj- ar þessa heimils nokkur ár.“ Snemma næsta dag kvaddi Anrés svo þessa vini sína og fór glaður síð- asta áfangann til Betlihem. En er þangað kom, höfðu þau Jósef og María flúið til Egyptalands, með barnið. Andrés varð sárhryggur en vissi að Guð hafði stjórnað þessum flótta til að forða barninu frá ógn- um Heródesar. Og þarna var ein sönnunin enn — um Gyðingakonung- inn. Og þar komu aðrir spádómar til sögunnar, vitranir langt fram í tím- ann — um grimmdaræði jarðneskra heimskingja. „Rödd heyrðist í Rama, grátur og kveinstafir miklir. Rakel grætur börnin sín og vill ekki hugg- ast láta.“ Ójá. þarna voru fleiri en Andrés sem grétu, veena barns. Utan við næsta hlið mætti hann konu með barn í fanginu. Hún bað Guð og menn að hjálpa sér, og hljóp svo hratt sem hún komst, því einn af böðlum Herodesar elti hana, með hníf í hönd sér. Andrés gekk beint að þeim fanti, tók þétt um handlegg hans og sagði: „Hvað ertu að gjöra maður?“ „Ég er að hlýða konungi mínum, líf mitt liggur við að ég gjöri þau verk er hann skipar mér.“ Þá sagði Andrés: „Ég skipa þér — í nafni vors nýfædda konungs, að hætta þessari óguðlegu iðju og trúa því, að barnið, sem Heródes er að ofsækja mun vera og verða sá eini konungur, sem þráir frið og miskunnsemi. Við skulum reyna að hlýða honum.“ Hermaðurinn beygði sig og baðst vægðar. Tók svo barnið, sem hann hafði ætlað að myrða, og lofaði að forða því til fjarlægra byggða. Móð- irin vildi auðvitað fylgja þeim. Þá tók Andrés fram aðra perluna sína og sagði: „Þessa perlu er ég viss um að guðsbarnið vill gefa ykkur til kostnaðar og framfæris. Farið svo í friði.“ Nú liðu mörg ár. Andrés vann fyr- ir sínu daglega brauði og gaf fátæk- um vesalingum allt sem þar varð fram yfir. Vildi ekki eiga neitt nema einu perluna, sem eftir var og veitti honum þá von að einhvern tíma myndi Guð leyfa honum að hitta konunginn sinn og koma perlunni til skila. Og svo var það einn dag — að fátæki öldungurinn, Andrés, nálgaðist Jerúsalem og hugsaði með lotningu: f þessari fögru borg hlýtur allt að vera heilagt og hættulaust fyrst Jesús hefur gengið hér um. En hvað er nú þetta? Há, hrópandi hljóð svo nálægt þeim helga stað. Þar var voldugur höfðingi á ferð með unga konu, sem var bundin og biðj- andi um hjálp. Múldýrið, sem bar konuna var lamið áfram þó þreytt og þyrst væri. Drambsamur höfðingi sat þarna í gullnum söðli og reiddi keirið til höggs. — Andrés skipaði honum að koma niður. — Framhald á bls. 29. 20 FRÚIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.