Frúin - 01.10.1963, Síða 11
vel menntuð kona — gipt eða ógipt
— sem er vel fær um að standa í
sinni stöðu, þ. e. á sínu heimili, mun
oftast nær afla sér þeirrar elsku og
virðingar og réttinda, sem henni ber
og sæmir fyrst og fremst. Svo mun
og staða hennar í þjóðfélaginu verða
þýðingarmeiri, að því skapi sem hún
nær meiri fullkomnun í stöðu sinni á
heimilinu. . . . En hvað þarf þá til
þess að konan geti staðið vel í þess-
ari merkilegu og vandasömu stöðu?
Fyrst og fremst auðvitað, að hún hafi
fengið gott og kristilegt uppeldi, ekki
eingöngu kristilega uppfræðslu, held-
ur það uppeldi, sem bæði með eftir-
dæmi, með leiðbeiningum og með
skynsamlegri umvöndun vekur og
glæðir hjá barninu næmar tilfinn-
ingar fyrir hinu rétta, hinu góða og
hinu fagra, og um leið fyrir skyld-
um við guð og menn. .. . Sjálfræðið
ætti aldrei að líðast. ,,Hver, sem elsk-
ar sitt barn, agar það snemma", agar
það af elsku til þess og umönnun fyr-
ir framtíðarvelferð þess. . .. sá eða
sú, sem aldrei hefir sjálf lært að
hlýða í æskunni, getur ekki heldur
stjómað á seinni árum, þegar skyld-
an og kringumstæður heimta það.
Þetta er hinn fyrsti og bezti grund-
völlur til þess að verða nýtur maður
og nýt kona, í hvaða stétt eða stöðu
sem er. En þessi grundvöllur verður
ekki lagður annars staðar en á góðum
heimilum, af góðum foreldrum, og
einkum af góðum mæðrum. Móðirin
hefir lykilinn að barnshjartanu.“ —
Svo mörg eru þau orð og eiga ekki
síður við í dag en fyrir 66 árum.
Hverjar aðrar hafa verið skóla-
stjórar á undan yður?
Frk. Ingibjörg H. Bjarnason tók
við skólastjórn af frú Thoru árið
1907 og gegndi því starfi til ársins
1941. Frk. Ingibjörg var merk kona
og kom miklu góðu til leiðar. Frk-
Ragnheiður Jónsdóttir var síðan
skólastjóri til ársins 1959 og skildi
við skóla sinn í miklu áliti.
— Hafið þér starfað lengi við
Kvennaskólann ?
— Ég hefi kennt við skólann frá
i árinu 1955 og varð skólastjóri þar
1959.
Það er auðséð, að frú Guðrún ann
; þessari stofnun. Henni er hugleikið
að tala um skólann og námsméyjarn-
ar og fréttamanni er kunnugt um, að
hún heldur sambandi við margar
þeirra, löngu eftir að þær eru út-
skrifaðar. Og víst er starf hennar
hugljúft: Að vinna að menntun verð-
andi mæðra og uppalenda næstu
kynslóðar.
Hér sést skemmtileg mynd úr hjúkrunarkennzlunni. Stúlkurnar eru með
brúðu og eru kennd handtökin, sem allar konur þurfa að kunna. Takið eftir
líkaninu á miðri myndinni.
Ur teiknitíma í öðrum bekk. Kennarinn, Sigrún Guðjónsdóttir, sést vera að
leiðbeina, lengst til hægri á myndinni,
•FR.ÚIN
1:1