Frúin - 01.10.1963, Síða 22
Ghana er eitt hinna ungu lýSvelda Afríku „hinnar svörtu álfu“.
Ný vakning hefir gripiÖ um sig meðal hinna kúguðu, svörtu íbúa
þessarar álfu, sem hinar svokölluðu menningarþjöðir hafa haldið
í helgreipum um margar aldir. Of seint hafa hinar hvítu þjóðir
uppgötvað að þetta fólk eru ekki bara þrælar og vmnudýr heldur
fólk, sem á rétt til lífsins og þess, sem það hefir upp á að bjóða,
engu síður en þær sjálfar. Þessi mistök hafa kostað miklar fórnir
og mikið blóð. Frelsisþeyrinn blæs um krónur trjánna, og fólkið
rís upp vitandi um tilveru sína og rétt. Samt sem áður halda
þessar þjóðir fast við æfaforna venjur og siði, sem margir hverjir
eru heillandi. — Hér segir frá helgisiðum þessarar frumstæðu
þjóðar í sambandi við skírnma, sem við köllum svo. Þar, eins og
hér, er þetta helg athöfn þótt með öðrum hætti sé.
BARNI
GEFID
NAFN
'Dlilií'lMÉ
wRpSpi MjjjS- fjjjM: _:í
nrTÍi m *
Hér er svipmynd frá Ghana. Skrautbúnar konur sýna innlend framleiöslu á götum úti.
Ungfrú Ella Griffin starfaði um
fimm ára skeið í Ghana, frá 1956
til 1960, í þjónustu Menningar-
og félagsmálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Var starf hennar þar á
sviði skólamála í höfuðborginni
Accra, því að ungfrú Griffin hefur
mikla reynslu á þessu sviði. Hún hef-
ur starfað í þágu Sameinuðu þjóð-
anna á ýmsum stöðum, svo sem á
Haiti, Jamaica og Indlandi. Hér rit-
ar ungfrú Griffin um sérkennilegan
sið í Ghana.
Sársauki fæðingarinnar er um garð
genginn. Nýfædda barnið hefur
látið til sín heyra í fyrsta skipti, og
andlit þorpsbúa, sem áður voru
kvíðafull og döpur, ljóma nú af
ánægju og gleði. Gleðifregn berst
milli ættingja, vina og granna:
„Adwoa hefur eignast telpu.“ „Það
eru sannarlega góð tíðindi. Guði sé
22
FRÚIN