Frúin - 01.10.1963, Page 35
I
IKennedys, lét hún hárið á sér vaxa
og fór að greiða sér af meiri kost-
gæfni (5). Þegar hún varð forseta-
frú notaði hún þessa hentugu hár-
greiðslu (6). Örfáum vikum síðar
kom Jacqueline heim af spítalanum
eftir fæðingu sonar þeirra hjóna, og
var þá búin að skipta um hárgreiðslu
(7). í fyrsta skipti, sem hún kom
fram opinberlega á dansleik, var hún
allra augnayndi í þunnum hvítum
kjól, og með nýja greiðslu (8). Hún
hefur síðan komið óteljandi sinnum
fram opinberlega og er alltaf jafn
vel klædd og jafn vel greidd, hvort
sem hún lætur leggja hárið inn, með
topp (9), eða greiðir það aftur og
hnýtir í hnakkanum (10), eða þeg-
ar hún er með einhverja af sínum
frægu kollum (11). Þegar hún var
í París í fyrra, var hún með glæsi-
FRUIN
35