Frúin - 01.10.1963, Síða 37
ar sjónvarpsupptökur voru gerðar í
Hvíta húsinu notaði hún mjög ein-
falda daggreiðslu (20), en við opin-
bera móttöku þessa sléttu topp-
greiðslu með hnút í hnakkanum (20).
) Hún getur verið allra kvenna virðu-
legust, en líka stelpuleg með slaufu
framan í hárinu (22), eða glitrandi
kamb í annarri hliðinni (23). Að und-
anförnu hefur hún æ oftar sézt með
virðulegar hárgreiðslur, sem klæða
hana mjög vel (24), — en það er nú
líka erfitt að hugsa sér þá hár-
greiðslu, sem ekki klæðir Jacqueline
Kennedy.
*
Svar til „Breiðleitrar“.
Við getum ekki gefið þér einhlít
ráð. Bezt er fyrir þig að ráðgast við
hárgreiðslukonu. Annars birtum við
hér, eins og þú sérð, nokkrar hár-
greiðslur frú Kennedy og hún er
breiðleit.
*
Siðferðislögmálið og eigingirnin.
Eftir Ambrose Bierce.
Siðferðislögmál mætti Eigingirni
á brú, sem var aðeins nógu breið
fyrir einn. „Leggstu niður vanvirðan
þín svo ég geti gengið yfir þig,“
þrumaði Siðferðislögmálið.
Eigingirnin horfði í augu hennar,
en steinþagði.
,,Ó,“ sagði Siðferðislögmálið ef-
andi, ,,við skulum kasta hlutkesti
um það hvor okkar snúi til baka
meðan hin fer yfir.“
Eigingirnin þagði, en tók ekki af
henni augun.
„Til þess að forðast árekstur,“
sagði Siðferðislögmálið töluvert hukl-
andi, þá skal ég leggjast niður og
lofa þér að ganga yfir mig.“
Þá fékk Eigingirnin málið:
„Ég held þú sért nú annars ekki
notandi til að ganga á þér. Ég er
dálítið vandlát að því hvað ég hefi
undir fótunum. Setjum svo að þú
steypir þér í ána.“
Og þann veg fór það.
*
í réttarsalnum.
Tveir málafærslumenn reiddust
hvor við annan í réttarsalnum, og
mælti annar þeirra:
— Þér komið fram eins og asni!
Þá svarar hinn:
— Þér komið fram eins og lygari
— þér eruð það.
En dómarinn mælti ofur rólega:
— Þar sem báðir lögmennirnir
hafa nú komizt að sannri niðurstöðu
hvor um annan, þá látum oss nú
halda áfram með hinar hliðar máls-
ins.
~)<
Mér finnst frægir menn bornir
saman við aðra menn, eins og sólin
þegar hún skín á jörðina.
S. A. Ó. cand. phil.
FRÚIN
37