Frúin - 01.10.1963, Page 39
hafi fundizt ég þurfa að sofa meira.
í því ég kom að rúminu, dró ein af
dætrum minum ábreiðuna til hliðar
og sýndist mér hún vera að horfa á
andlit einhvers, er lá í rúminu. Enn
einu .sinni greip sú hugsun mig, að
ég væri gersamlega orðinn brjálað-
ur, eða mig væri að dreyma. Þér
getið ímyndað yður tilfinningar mín-
ar, þar sem ég stóð og starði á minn
eigin líkama, spyrjandi sjálfan mig,
hvort mig væri að dreyma, eða ég
væri brjálaður, eða þá virkilega —
dauður. Rétt í sama bili ávarpaði mig
hinn góðlegi öldungur í rauðu skikkj-
unni, er ég sá áður, og sagði: „Lík-
aminn er sannarlega dáinn, en and-
inn lifir eilíflega. Ég hef líka reynt
þessi sömu umskipti, en nú er minn
jarðneski líkami orðinn að dufti. Vertu
ekki angurvær, eilíf tilvera er allra
hlutskipti. Dauðlegir menn sjá oss
ekki og eyru þeirra heyra ekki rödd
vora. Þér væri betra að koma með
mér, því með því kemstu hjá mörg-
um ógeðfelldum sjónum, enda get-
urðu ekkert gert hér til gagns leng-
ur.“
Ég svaraði engu. Ég gat það ekki.
Allt þetta var meira en svo, að ég
gæti áttað mig á svipstundu. Ég mátti
til að hugsa. Ég ráfaði frá einum
,stað til annars innan um húsið. Alls-
staðar var sorg og dapurleiki. Ég tal-
aði til konu minnar og barna nokkr-
um sinnum, en þau heyrðu ekki til
mín. Ég gekk út í garðinn og út á
engið, svo til baka aftur heim að bæn-
um. Við og við komu til mín dánir
kunningjar, svo ég fór smátt og smátt
að sannfærast um það, að ég væri
ekki í tölu hinna lifandi. En ég elsk-
aði 'konu mína og börnin, og langaði
til að vera hjá þeim, hugga þau og
segja þeim hvað ég væri búinn að
reyna, en gat það ekki. — Ég heim-
sótti suma af nábúum mínum, en alls-
staðar þar sem ég kom, var verið
að tala um dauða minn. Ég heyrði
suma segja, að nú væri ég áreiðan-
lega kominn til vítis. Það var alkunn-
ugt, að ég sótti aldrei kirkju og neit-
aði tilverunni eftir dauðann. Einnig
að ég hafði oft talað glannalega við
prestinn og haft ánægju af að koma
honum í bobba með spurningum eins
og t. d. þessum: Hvar fékk Kain
konu sína? Hvað er lífið? Hvað er
sálin? Ef guð skapaði manninn, átti
hann þá ekki að taka ábyrgðina, ef
það mistókst? Ef guð skóp allt, hví
skapaði hann þá djöfulinn? o. s. frv.
Ég las biblíuna aftur og aftur, aðeins
til að geta betur rökrætt mál mitt
í orðadeilum. Samt bar ég ætíð fulla
virðingu fyrir vel kristnum manni,
en ég fyrirleit 'hræsni og yfirdreps-
skap. Ég gaf æfinlega til presta og
kirkju, ekki samt af því að ég tryði
einu orði af því, sem þeir prédik-
uðu, heldur af því að konan mín og
sumt af börnunum sóttu kirkju og
töldu sig trúa kenningum hennar.
Einnig hafði ég mikla skemmtun af
samtali við prestinn. Það var því ekki
að undra þótt þröngsýnir og óupplýst-
ir fáfræðingar teldu víst, að ég væri
í kvalastaðnum. Og ég iheld að þeir
séu ekki fremur ámælisverðir fyrir
þröngsýni sína og kreddutrú, en ég
fyrir að trúa því, að dauðinn væri
endir tilveru manna. Sú trú var mér
nokkurs konar helvíti, þar til ég varð
þess vísari, að ég hafði farið villur
vegar í þeim efnum. Nú sýnist mér
það óskiljanlegt, að ég skyldi ekki
sjá allt það, sem bendir á ódauðleik-
ann í náttúrunni umhverfis oss.
Thomas Paine sagði: „Sköpunarverk-
ið er orð guðs, sem aldrei fyrnist og
alltaf verður lesið og óhætt er að
reiða sig á. Það sýnir vald hans og
vizku og vitnar um gæzku 'hans og
kærleika. Ég geri mig ánægðan með
að trúa, að sá kraftur, sem lét mig
verða til, geti látið mig halda áfram
að vera til.“ — Ég segi nú: Heimsk-
ingi var ég að sjá ekki þetta.
Þið hafið ef til vill heyrt þess get-
ið, að menn hafi lesið sínar eigin lík-
ræður. Ég gerði betur. Ég var við-
staddur mína eigin jarðarför. Ég
heyrði vesalings fáfróða prestinn
áminna þá, sem viðstaddir voru, að
búa sig undir dauðann, og slá því
eigi á frest eins og hinn framliðni
gerði, þar til það var of seint, held-
ur semja frið við guð meðan tími
væri. — Ég hafði aldrei haft löngun
til að syngja sjálfum mér lof, eða
heyra aðra gera það; en heldur fannst
mér langt farið, að nota mig sem
hræðilegt dæmi til áherzlu máli sínu,
einmitt þar sem syrgjandi ástvinir
stóðu, ef til vill vonandi eftir 'hugg-
unarorðum frá presti sínum. Hann
sagði einnig, að guð myndi á efsta
degi segja til allra, sem hefðu hafn-
að Kristi sem frelsara sínum: „Farið
frá mér bölvaðir í þann eilífa eld,
sem búinn er djöflinum og öllum
árum hans.“ — Jæja! Hann hélt, að
hann hefði satt að mæla, eins og ég
með mína algleymistrú. Allir missum
við marks á stundum.
Þessi prestur er nú kominn yfir
dauðamóðuna. Ég var sá fyrsti að
rétta honum höndina og bjóða hann
velkominn sem bróður.
Erfitt var fyrir hann að breyta
skoðunum sínum og gleyma hinum
gömlu kenningum kirkjunnar um
persónulegan guð, himin og helvíti.
Og enn er hann hugsjúkur yfir því
að hann eyddi miklu af sínu jarð-
neska lífi til stuðnings þessum fölsku
og að sumu leyti illu kenningum.
Nú stendur ljóst fyrir mér, hvar
ég breytti rangt í mínu fyrra lífi.
Ég var oft stóryrtur og ekki nógu
innilegur við konu mína og börn og
þá, sem ég umgekkst mest.
Fullkomnari og betri lærdóm en
ég fékk allt mitt líf, öðlaðist ég hjá
konu minni á leiðinni frá greftrun
minni til heimilis okkar. Ég sat í kerr-
unni hjá henni með börnum okkar,
og heyrði hana segja þetta við dótt-
ur sína: „Ef hann er í kvalastaðn-
um, langar mig ekkert til himnarík-
is.“ Þá fyrst lærði ég að þekkja mína
góðu konu.
Nú er hún komin til mín, og sumt
af börnum okkar. Ég hef innilega
ánægju af að taka á móti hverjum,
sem kemur yfir, og ég vildi glaður
ganga á ný í gegnum hina hræðilegu
dauðamartöð, ef ég gæti með því sýnt
fólki á jörðunni hvað dauðinn er. —
Andlegt líf er líf hjálpseminnar. —
Vor æðsta gleði er að hjálpa og læra.
Hér er starfsamt líf, mikið að vinna
og mikið að læra, endalausir mögu-
leikar. Tiltölulega fáir hafa rétta hug-
mynd um hvað hið æðra líf er, þar
til þeir hafa fengið reynslu svipaða
minni. Vér látum oss mjög annt um
þá, sem enn eru á jörðunni, og tök-
um hjartanlegahlutdeild í andstreymi
þeirra og erfiðleikum. En vér getum
mjög sjaldan látið þá vita af því.
Vegurinn er að verða greiðfærari með
hverjum degi, sem líður, og vér von-
um að sá tími muni koma, að þér fá-
ið að vita það sem vér höfum nú
fengið vissu fyrir, að allir eru bræð-
ur og systur, og aðeins ást og hlut-
tekning getur bætt heiminn. Ef þú
ert kærleiksríkur á jörðunni, þá bíð-
ur þín sá kærleiki hér. Ef þú hjálp-
ar nauðstöddum, verða allar þínar
þarfir uppfylltar hér. Ef þú kastar
steini úr götu þess, sem grýttan veg
má ganga, verður vegur þinn sléttur
hér. Svo er líka önnur hlið á lífinu
hinu megin. „Eins og þú sáir, muntu
uppskera.“ Hver sem vindi sáir, upp-
sker hvirfilvind. Hver, sem gerir öðr-
um rangt í hugsunum eða athöfnum,
verður að bæta fyrir það tífalt. Ef
þú rænir náunga þína því, sem þeim
að réttu ber, hvort sem það eru fjár-
munir eða mannorð, verðurðu að
borga það til hins síðasta penings.
Sérhver ill hugsun eða athöfn er
FRÚIN
39