Frúin - 01.10.1963, Page 50
Án heilbrigðra velhirtra tanna
getur yfirleitt ekki verið um kven-
lega fegurð að ræða. Lítt hirtar
tennur eða gómar, sem tennur vant-
ar í, geta svipt andlitið hverjum
votti æskulilóma. Það verður kinn-
fiskasogið, myndast á því hrukkur
og varirnar herpast saman. Þegar
svona er komið, verður tannlæknir-
inn ekki aðeins björgunarmaður
heilsunnar, en það má ekki gleyma
tannhirðingu kvölds og morguns og
um miðjan dag, þótt leitað sé til
hans, heldur einnig sá er varðveitir
æskublómann og fegurðina hjá þeim
konum, sem verða að leita á náðir
hans.
Aldrei verður of snemma byrjað á
að sinna um og hirða tennurnar.
Hyggnar mæður gefa börnum sínum
harðar brauðskorpur, gulrætur og
hörð epli að tyggja, svo að blóðrásin
örvist til tanngarðanna og tennurnar
í börnunum verði fallegar og sterkar.
Við eigum að fara eins að síðar á
æfinni, iðka eins konar tannaleik-
fimi, tyggja rúgbrauðsskorpur, borða
epli og gulrætur í stað þess að láta
ekki annað upp í okkur en hveit-
brauð, kökur og annan mjúkan mat.
Tennur okkar hrörna ef við fáum
þeim ekki næg verkefni. Heilsa okk-
ar veltur að miklu leyti á ásigkomu-
lagi tannanna.
Þegar tennur hafa verið burstaðar
að kvöldi má ekki neyta neins og
ekki heldur láta neitt sælgæti bráðna
uppi í sér. Konur verða að geta beitt
sig talsverðri hörku vegna heilsu
sinnar og fegurðar.
Reglan á að vera að bursta tenn-
urnar tvisvar á dag. Burstinn má
ekki vera of harður og heldur ekki
of mjúkur. Það verður að fara með
hann um tyggifleti tannanna svo og
um báðar hliðar þeirra, ekki aðeins
lárétt heldur einnig lóðrétt. Betra
er að byrja á tyggiflötum tannanna,
vegna þess að þá hefur burstinn lin-
ast lítið eitt þegar kemur að við-
kvæmari hlutum þeirra. Þá er einnig
mikilvægt að nudda tannhold og
góma.
Tvisvar á ári á að fara til tann-
læknis, það er óumflýjanleg nauð-
syn, enda þótt erindið sé ekki annað
en að láta fjarlægja tannstein. Hann
er erkifjandi tannanna því að hann
grefur undan mótstöðuafli þeirra.
Þvottahús Vesturbæjar
Ægisgötu 10 — Sími 15122 (áður Þvottahúsið ÆGIR)
Hiísmæður!
Látið Þvottahús Vesturbæjar þvo þvottinn fyrir yður.
Tökum stykkjaþvott — blautþvott og frágangsþvott.
Sækjum — sendum um allan bæ. — Fljót afgreiðsla.
Þvottahús Vesturbæjar
Ægisgötu 10 — Sími 15122.
50
FRÚIN