Frúin - 01.10.1963, Side 56
Snyrtið húð yðar daglega með Nivea.
Nivea nærir húð yðar og gerir hana
silkimjúka.
Nivea inniheldur Eucerit-efni skylt húðfitunni.
Embeiting hæfileik-
anna er farsælust
eftir Analré Maurois.
Mér geðjast vel að því að fólk sé
dálítið einhliða, í þess orðs beztu
merkingu. Það getur sannarlega ver-
ið nógu erfitt, að gera eitthvað eitt
vel. Hvernig á þá maður, sem dreifir
kröftum sínum, að geta sýnt góða
frammistöðu? Það gildir einu, hvert
verkið er, alltaf er nauðsynlegt að
hafa reynslu. En hvernig á maður að
afla sér reynslu, ef hlaupið er úr
einni stöðu í aðra? Steinn sem velt-
ur verður ekki mosavaxinn, segir
enskt máltæki, sem er jafnsatt og
það er gamalt.
Þess vegna er það ekki stöðuval,
sem skiptir mestu máli, heldur hæfi-
leikinn og viljinn að halda þeirri
stöðu, sem valin er. Það skiptir ekki
mestu máli að geta tekið ákvörðun,
heldur að hafa kraft til að fram-
kvæma þá ákvörðun. Maður, sem er
einhliða getur hæglega orðið dálít-
ið þreytandi, og jafnvel leiðinlegur,
en þegar öllu er á botninn hvolft,
hlýtur hann að ávinna sér virðingu.
Er þér neytið allra hæfileika yðar
og alls dugnaðar á einu ákveðnu sviði,
þá kemur í ljós, hvers þér eruð megn-
ugur. Og sé þörf á manni í yðar sér-
grein, þá verður strax hugsað til yð-
ar. Sá sem getur eitthvað í öllu, get-
ur ekkert — hljóðar annað máltæki,
sem hefur engu minna sannleiksgildi
en hið fyrrnefnda.
Sérhvert starf — mikið eða lítið
— krefst þess, að viðkomandi aðili,
maður eða kona, gefi því alla krafta
sína. Enginn getur náð velgengni,
nema að hann beiti allri athygli sinni,
jafnvel að minnstu smáatriðum.
Greind er gott vegarnesti. en hún
getur ekki komið í staðinn fyrir strit
og iðni. Ekki eru allir viðskiptajöfr-
ar greindir, en þeir eru allir vinnu-
samir. Þeir hafa einfaldlega gengið
starfi sínu á hönd.
Listamaðurinn er h'ka einhliða á
sinn hátt. Ætli einhver að skrifa bók
eða skana fagurt málverk. verður
hann að leggja allt, sem hann bvr
yfir, að mörkum. Ekkert listaverk,
sem hefur eitthvert gildi, hefur orð-
ið til án mikils, stöðugs erfiðis. —
Vísindamaðurinn getur haft heppn-
ina með sér, en samt nær hann aldrei
verulegum árangri, nema með al-
varlegri vinnu.
Með þessu á ég auðvitað ekki við
það, að vísindamaðurinn, rithöfund-
urinn og viðskiptajöfurinn megi
aldrei taka sér hvíld. Þeir eiga allir
sínar tómstundir — þeir ferðast,
leika golf eða tennis, fara í reiðtúra,
synda og njóta sólarinnar. En þér
megið trúa því að hvert sem þeir fara,
yfirgefur starf þeirra þá aldrei, með-
vitað eða ómeðvitað. Þegar vísinda-
maðurinn er í sumarleyfi, þá veitir
hann kannske einhverju eftirtekt,
sem hjálpar honum í rannsóknum
sínum, — rithöfundurinn virðir án
afláts fyrir sér fólk og skrifar í huga
sínum hjá sér það sem hann sér —
jafnt hvort hann er í leyfi eða ekki,
— og viðskiptajöfurinn sér á fex-ða-
lagi verksmiðju sem minnir á hans
fyrirtæki, og fær ef til vill hugmynd,
um einhverja endurbætur, sem hann
geti látið gera. Þetta eru dæmi um
fólk, sem ég kalla að sé einhliða.
Hefur það þá nokkurn tíma til að
elska? Areiðanlega. En bað er hyggi-
legast fyrir svona menn að gifta sig,
og vera maka sínum trúr. Það tekur
of mikinn tíma frá vinnunni, að
þurfa sí og æ að vera að vinna ástar-
sigra. Verkfræðingur ætti ekki að
verða ástfanginn í tíma og ótíma —
þá getur hann átt á hættu, að koma
öllum útreikningum og teikningum
sínum í vitleysu, Verksmiðjueigandi
á ekki að vera neinn Don Juan —-
það er heilsdagsvinna út af fyrir sig,
og það slítandi vinna! Miklir við-
skiptajöfrar átta sig vel á viðbrögð-
um annarra manna — það tilheyrir
starfi þeirra. En á hinn bóginn botna
þeir sjaldan 1 sálarlífi konu, og
þannig er málum háttað, til allrar
hamingju, að konan ætlast heldur
ekki til þess.
Það er aðeins fólk, sem er einhliða,
sem fylgir stefnu sinni þangað til
það kemur á leiðarenda. Það dregur
sig sjaldnast í hlé, til að njóta ávaxta
vinnu sinnar í næði. Ef það gerði það,
væru dagar þess senn taldir. — Að
sjálfsögðu, er einnig til fólk, sem
stendur hugur til margra hluta, og
sumt þeirra er bæði skemmtilegt og
gáfað, en það kemst nær aldi-ei í allra
fremstu röð.
56
FRÚIN