Frúin - 01.10.1963, Síða 63
ínmót smurt, þá eitt lag fiskur svo
sósa, fiskur, sósa og brauðmylsnu
stráð yfir. Bakist vel í heitum ofni í
ca. 30 mín. Berist strax á borð með
soðnum kartöflum og bræddu smjöri.
Stór-lúða sem wienerschnitzel.
6 fingurþykkar sneiðar lúða
salt og pipar
ca. 1 eggjahvíta
1 pk. brauðmylsna (rasp)
sítrónusneiðar
sardínur
kapar
1 dcl fisksoð
rúmlega 1 matsk. Sherry.
Fisksneiðarnar eru barðar lítið eitt
með kjöthamri. Saxaðar aðeins með
hníf og þá mótaðar eftir því, sem
hægt er. Salti og pipar stráð á. Þeim
síðan difið eftir nokkra stund í hálf-
þeytta eggjahvítuna og svo velt í
brauðmylsnu. Brúnaðar á pönnu, fal-
lega brúnaðar þar til steiktar í gegn.
Raðað á fat og á hvert stykki er lát-
in sítrónusneið með uppvafinni sard-
ínu eða gaffalbita og kapar í kring.
Á pönnuna er hellt soði og víni, suð-
an aðeins látin koma upp, þá hellt á
fatið við fiskstykkin. Fatið skreytt
t. d. með satatblöðum, gúrkum og
tómötum. Ágætt með litlum brúnuð-
um kartöflum en varast skal að hafa
ekki of mikinn sykur á pönnunni.
Kindakjöt í káli.
1 kg kindakjöt, bógur
1 gott hvítkálshöfuð
Vz matsk. heill pipar eða/
1 tesk. steyttur pipar
1 matsk. salt
2 matsk. hveiti
3—4 dcl vatn eða soð.
Kjötið er skorið nokkuð smátt,
kálið er skorið í parta. Ef notaður
er heill pipar, er hann látinn í grisju
og soðinn þannig með. Nota verður
pott, sem er með vel þéttu loki. Það
albezta væri ef búsáhaldakaupmenn
flyttu inn gratinmót, potta og pönn-
ur, sem hægt væri að bera á borð
beint af eldavélinni. Smyrjið botn
pottsins með smjöri, þá eru feitustu
bitarnir látnir fyrst, þá kál, svo
hveiti, pipar og salt (bezt samanbl.).
Þá aftur kjöt, kál, krydd o. s. frv.,
en kál síðast. Sjóðandi vatni eða soði
hellt yfir. Soðið við jafnan, en ekki
of háan hita í IV2—1 % stund. Hrær-
ið sem minnst í, aðeins hreyfið við
botninn með fiskspaða svo örugt sé
að ekki festist við, einnig má hrista
pottinn dálítið öðru hvoru. Það eina,
sem borið er með þessum rétti eru
soðnar kartöflur. Þetta er mjög ljúf-
fengur matur.
Lapskaus.
Ca. 225 gr saltkjöt
ca. 75 gr. flesk
ca. 200 gr nýtt kjöt
ca. 4 dcl kjötsoð
375 gulrætur
75 gr selleri
150 gr gulrófur
750 gr kartöflur
V2 stk. púrra eða/
lítill laukur.
Sjóðið kjötið eða notið leifar af
kjöti. Bæði kjöt og grænmeti er skor-
ið, fyrst í sneiðar, svo í lengjur og
svo í ferkantaða bita, púrran eða
laukurinn í þunnar sneiðar. Græn-
metið hrátt og kjötið, allt í pott og
soðið ca 30 mín. Sem sagt allt soðið
meyrt en ekki í graut. Hrært var-
lega í. Á eftir þessum rétt, sem helzt
á að berast á borð í pottinum, þá
bjóðið nýja ávexti, að minnsta kosti
þegar nóg er af þeim.
Buff úr hvalkjöti eða hestakjöti.
Veljið ljóst og fallegt kjöt, reynið
að draga ljósu sinarnar úr. Skerið
vænar sneiðar (ca IV2 cm) þvert yf-
ir kjötið og berjið. Stráið á salti og
pipar og steikið vel beggja megin.
Látið pott með litlu vatni ásamt
2—3 blöðum af lárberjalaufi, mjólk
og 3 súputeningum eða öðrum súpu-
krafti. Sjóðið stutta stund, jafnið
með hveitijafning, krydduðum með
pipar, karry, engifer og ca V2 dcl
tómatlög og sjóðið ca. 10 mín. Raðið
á fat, skreytið með tómötum, eggja-
bátum, gúrkum og blaðsalati. Berið
á borð með kartöflumósi.
Rabarbaraábætir með eggjakremi.
700 gr rabarbari
3 dcl vatn
200 gr sykur
1 matsk. kartöflumjöl.
Beztur er vínrabarbari í þennan
rétt. Hann er þveginn og skorinn í
ca. 3 cm bita og soðinn aðeins meyr,
(má ekki fara í sundur) í vatni og
sykri, rabarbarabitarnir færðir upp
í skál, en lögurinn soðinn aðeins leng-
ur, þá jafnaður með kartöflumjöls-
jafning og síðan hellt yfir rababar-
ann í skálinni. Látið kólna. Þá er að
búa til eggjakremið. Mjólkin er hituð
með vanilludropum, á meðan eru
eggin þeytt með sykri, síðan blandað
í mjólkina, hitað að suðu, stöðugt
hrært í, má alls ekki sjóða. Kælt.
Stífþeyttum rjóma blandað varlega
saman við. Kreminu Hellt yfir rab-
arbarann; skreytt með Linsoðnum
sveskjum, sem steinarnir hafa verið
losaðir úr og í þeirra stað eru Látn-
ar heitar, afhýddar möndlur.
*
FRÚIN
63