Stígandi - 01.07.1945, Síða 5

Stígandi - 01.07.1945, Síða 5
Ritstjóri: BRAGI SIGURJÓNSSON Algreiðslumaður: JÓN SIGURGEIRSSON Rlapparstíg 1 — Akureyri Sími 274 — Pósthólf 76 STIGANDI Júlí-Sept. 1945 - III. ár, III. heíti „ÞAÐ ER SVO MARGT, EF AÐ ER GÁÐ —" ViðburSaríkt sumar Að vinna friðinn Eflaust verður liðins sumars lengi minnzt í sögunni sem einhvers þess atburðaríkasta, er yfir jörð vora liefir gengið. Helveldi nazismans er brotið á bak aftur og þeirri martröð, sem hvílt hafði á þjóðum Evrópu, létt af. I.oks undir sumarlokin tekst svo að hnekkja blóðveldi Japana og ríður þar baggamuninn ný uppgötvun, sem talin er fela í sér geysi- lega framfaramöguleika fyrir mannkynið: beizlun kjarnorkunnar. Oss finnst eins og runnið liafi fagur dagur eftir langa og ömurlega nótt. Þótt vér íslendingar höfum ekki verið stríðsaðilar, þá mun- um vér ekki hafa fagnað friði af minni hjartans gleði en aðrar þjóðir, því að oss er nær óskiljanlegt, að þjóðir skidi nokkurn tíma beita vopnavaldi. En þótt vopnaviðskiptum sé hætt, eru þó ekki allar blikur af lofti. Enn er eftir „að vinna friðinn“, eins og farið er að kalla það. Enn eiga þjóðirnar eftir að gera upp reikningana við sig sjálfar og um ýmislegt liver við aðra. Hvernig verða þau reikningsskil? Verður ekki hið blinda hatur enn um sinn mikils megandi í þessum óhamingjusömu löndum, sem troðin liafa verið járnhæl herguðsins? Svo mun oss virðast, sem staðið liöfunr utan sárasta leiksins, en vér skulum minnast þess, að það er ekki vort að dæma. Hins vegar ættu þær þjóðir, sem eitur beiskjunnar og hatursins hafa ekki eins þurft að drekka, að taka höndum saman og reyna að orka á það, að réttlœtið setjist á dómstólana, en ekki hefndin. Vér skiljum ekki það „réttlæti", sem felst í því, að Þjóðverjar séu reknir áfram við ruðningsstörf í þýzkum borgum, unz þeir hníga hungurmorða niður. Þetta mun lieita auga fyrir auga og tönn fyrir tönn, en 12*

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.