Stígandi - 01.07.1945, Page 14

Stígandi - 01.07.1945, Page 14
188 ÞORSTEINN M. JÓNSSON SEXTUGUR STÍGANDI auðnaðist honum að eiga stóran lilut að æskilegustu úrlausn margra merkra mála, er miklu liafa skipt fyrir hag og menningu allra landsmanna. Má þar tilnefna skólamálin, launa- og réttinda- mál barnakennara, þjóðleikhúsmálið og sjálfstæðismálið. Að öðru leyti verður ekki rakin hér þingsaga Þorsteins M. Jóns- sonar. Árið 1921 fluttist Þorsteinn til Akureyrar. Sú ráðabreytni var hvorki flótti frá erfiðleikum né breytinga- girni. Hún var óumflýjanleg nauðsyn hugsjónamanninum, sem stefndi að ákveðnu marki. Hann er bóndi, kennari, kaupfélagsstjóri og þingmaður og gegnir mörgum öðrum trúnaðarstörfum, liann nýtur trausts og virðingar, s\o að segja má, að hann sé héraðshöfðingi. Flestir æskudraumar hans um störf í þjónustu menningar og. umbóta eru orðnir að veruleika, j)\ í að allt Jætta er menningarstarf. Og verkefnin eru óþrjótandi fyrir hendi. Eins \’ar j)ó vant um starfs- skilyrði. En þótt ol't megi takast að skapa þau, verður J)að ekki ávallt. Menningarþjóð þarf starfskunnáttu og tæki til að afla lífsnauð- synja, og hún þarf skóla og bækur til að auka þekkingu sína og menningu. Útgáfa góðra bóka er voldugur þáttur í menningar- starfi. Þorsteinn hafði ungur að aldri skilið gildi góðra bóka fyrir menntun þjóðarinnar og ákveðið að gerast bókaútgefandi, þegar kostur gæfist. Á þann hátt gat hann í raun og veru verið kennari alþjóðar. En skilyrði til bókaútgáfu eins og hann hal'ði hugsað sér framkvæmdir, voru ekki nema á tveim stöðum: á Akureyri og í Reykjavík. Hann valdi Akureyri. Þar fékk hann kennarastöðu við barnaskólann. Hann keypti Bókaverzlun Sigurðar Sigurðssonar, hóf bókaútgáfu sína, og jafn- l’ramt J)essu stundaði hann búskap í grennd við Akureyri. A fáum árum urðu Jæssi fyrirtæki svo umfangsmikil, að hann varð að selja bókaverzlun sína, sem J)á hafði stækkað að miklum mun; enda hafði hann mörgum trúnaðarstörfum að sinna, er oft reyndust tímafrek. Bókaútgáfa Þorsteins er mikið fyrirtæki og merkilegt. Hún er mesta útgáfufyrirtæki utan Reykjavíkur. Hann gefur ekki annað út en J)að, sem vænta má að hafi menningargildi. Og J)ó að út- gáfa bóka hans gefi sennilega í heild sæmilegar tekjur, þá er út-

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.