Stígandi - 01.07.1945, Page 19

Stígandi - 01.07.1945, Page 19
SKÓLARNIR OG NÁTTÚRUFRÆÐIN Eítir STEINDÓR STEINDÓRSSON ÞAÐ hefir verið sagt um oss íslendinga og ekki að ástæðulausu, að vér værum lítt lmeigðir til náttúrufræðiiðkana og- hefðum lítinn hug á að fræðast um þau efni. Það er athyglisvert, hversu fáa náttúrufræðinga ísland hefir eignazt í samanburði við fræði- menn á öðrum sviðum. Einnig er það talandi tákn um það, sem lielzt er lesið í landinu, hversu fáar bækur náttúrufræðilegs efnis koma út í hinu árlega bókaflóði, er yfir landið streymir. Það er lieldur ekki mikið af rúmi tímaritanna, sem fórnað er náttúru- fræði, þegar Andvari er undánskilinn. Þetta var skiljanlegt fyrr- urn. Enda þótt land vort sé flestum öðrum löndum girnilegra til fróðleiks náttúrufróðum mönnum, þá liggur sá fróðleikur ekki opinn, nema athugandinn Itafi getað aflað sér nokkurrar undir- stöðuþekkingar, og liana var hvergi að fá hér á landi fyrr á tímum. Það var miklu auðveldara fróðleiksfúsum og hnýsnum mönnum að fást við sögufróðleik, ættartölur eða að ráða torskilda fornvísu heldur en skyggnast um á sviði náttúrufræðinnar, og því eðlilegt, að þeir hneigðust inn á þær brautir. En nú er ekki lengur um það að sakast, að náttúrufræði sé ekki kennd í landinu. Skólar eru margir, auk barnaskólanna, sem öll börn landsins nema í, og í þeim öllum er náttúrufræði kennd. Það má því segja, að leikum og lærðum gefist sá kostur á aðkynnastfrumatriðumfræðaþessara, sem nægja má til að vekja hug þeirra á þeim og gefur þeim rnögu- leika til að hlaða ofan á þá undirstöðu, sem skólarnir leggja með sjálfstæðum athugunum. F.n samt er það svo, að enn er furðufátt áhugafræðimanna í náttúrufræði, bæði rneðal lærðra og leikra, og Iiitt sem verra er, þekking almennings er minni en vænta mætti og viðurianlegt er. Þess verður einnig vart í skólunum, að áhugi nemenda á nátt- úrufræði er minni en ætla mætti í fljótu bragði. Það er ekki óal- gengt, að menn heyri nemendur spyrja, hvers vegna eigurn við að læra náttúrufræði? Eágætt hygg ég það sé, að nemendur spyrji þannig, ef um er að ræða nám erlendra mála, enda þótt þeir kom- izt ekki lengra í þeim en að fá numið frumatriði þeirra. Fjarri sé 13

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.