Stígandi - 01.07.1945, Síða 32

Stígandi - 01.07.1945, Síða 32
206 VAR ÞAÐ MÓÐURÁSTIN? STÍGANDI Var það hending, ein, að hún skyldi leggjast fyrir og deyja í sama stað og hún lá á eggjunum sínum vorið áður? Var það einnig tilviljun, að hún skyldi fljúga inn um gluggann? Á flótta undan fálka væri hún miklu öruggari að henda sér niður á ein- hvern lækinn eða tjörnina. F.ða — var það móðurástin, sem knúði hana til að svipast eftir eggjunum sínum, — aleigunni —, sem luin liafði misst? í óbyggðum og öræfum þessa lands gerast oft hinir furðuleg- ustu atburðir, sem sjaldan eru skráðir og erfitt er að skilja, nema þeim einum, er lifa þá og leiddir eru af innri þrá eða knúðir af utanaðkomandi öflum. — Fegri grafljóð hefði enginn getað kosið sér en þau, sem bárust inn um opna gluggann á Búrfellskofa og stóra-toppöndin hefir hlustað á, þegar vornóttin ríkti með sölroða í fjöllum, hvíslandi lækjarnið og mjallhvíta svani á blikandi vötnum, — þar til hana sjálfa fór að dreyma um frelsið og vorið, unaðinn og ástina við hlið rnaka síns, alveg eins og það var forðum og — ungana við brjóst sitt. — Máske þeir draumar hafi líka stytt henni kvalastundirnar og þess vegna hafi hún vir/.t í dauðanum svona ung og svona fögur?

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.