Stígandi - 01.07.1945, Page 37

Stígandi - 01.07.1945, Page 37
STÍGANDI NOKKRAR NAFNASKÝRINGAR 211 Fnjóskadalur Fnjóskur er sama og fauskur, feyskinn drumbur. Sama orð er í sænsku (fnöske). Hnjóskur er önnur mynd þessa orðs. Fnjóska- dalur er þá dalur Iiins feyskna skógar, fauskviðarins, sem þar hefir staðið á landnámsöld. Fnjóskþurr er sama og gegnþurr. Fnjóskar voru hafðir til að kveikja eld. Fleira var en fnjóskar í öldnum skógum dalsins, þegar að var komið í fyrstu. Þórir Ketilsson brimils nam Fnjóskadal, en flýði Köldukinn. Hann dýrkaði lund stórvaxinn, sem hann fann, og þar bjó hann að Lundi. Því trúðu menn, að himingoð vitjuðu oft svo fagurra staða, og af því hófst þar dýrkun. Nollur Bær við Eyjafjörð austan megin heitir á Nolli, gamalt heiti og rétt, því að fremur er gjóstsamt þar. Orðið nollur þýðir sama og hrollur og er með sama framburði á U, þó að fáráðlingar kunni að segja það á erlendan hátt. Oft er sagt: Það er nollur í mér. — Ein- hverjum verður við noll, liggur við að skjálfa af kulda. Kljáströnd Kljásteinar eða kléar (ef. flt. kléa eða kljá) voru smásteinar til að strengja vel'inn í gömlum íslenzkum vefstólum. Á Kljáströnd við Eyjafjörð hafa verið tíndir kljásteinar í fyrndinni og eins að Kljá (Kléá) í Helgafellssveit vestra. M*

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.