Stígandi - 01.07.1945, Page 38

Stígandi - 01.07.1945, Page 38
VISUR UM EYJAFJORÐ Eítir SIGURÐ SVEINBJÖRNSSON Hún fögur er, vor feðrajörð, hin frjálsa, tigna drottning. En enga byggð sem Eyjafjörð ég elska og veiti lotning, því þó að okkar fósturfold eins fagrar eigi sveitir, þá er það, finnst mér, eyfirzk mold, sem unað mestan veitir. Og yndisfríð er eyfirzk strönd, og eins hver dalajörðin. Og það má sjá, að hagleikshönd mun hafa skapað fjörðinn. Hér streyma bjartar bergvatnsár um breiða, fagra dali, og margur lindarlækur smár með ljúfu unaðshjali. Og minningarnar mæla hér, og mold og steinar kaldir. En margt, sem löngu liðið er, mun lifa þó um aldir. Hér lifðu fyrrum frægðarmenn, sem fögrum unnu dyggðum, og sami lifir andinn enn í Eyjafjarðarbyggðum.

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.