Stígandi - 01.07.1945, Síða 40

Stígandi - 01.07.1945, Síða 40
SAGAN AF SUNNEFU FOGRU Eítir ÞRÁIN SIGRÍÐUR Sunnefa, nefnd Sigga Sunnefa eða Vitlausa-Sunn- efa, kom gangandi þjóðveginn. Hún var klædd eins og venju- lega: í mosalitaða vaðmálspilsinu sínu blettótta og skósíða, í þröngri treyju, með mórauða þríhyrnu á herðum og hvítan ullar- klút á höfði, það er að segja, hann hafði eitt sinn verið hvítur. Sólin skein í heiði og það var steikjandi hiti, því að þetta var í seinnihluta júlímánaðar. Hvarvetna á bæjunum gat að líta létt- klætt fólk á túnum úti að töðuþurrki. Lognblár reykur spann sig upp úr eldhússtrompunum. Það leið sent sé að síðdegiskaffi. Sigga Sunnefa þræddi vegarkanti'nn og forðaðist að stíga á möl- ina. Hún var að hlífa skónum. Af og til varpaði hún öndinni mæðilega og strauk svitastraumana af andlitinu. Sér var nú hver hitinn! Það gat varla boðað nokkuð gott. Ætli þeir fengju ekki niðrí með kvöldinu, væri heldur ekki skaðinn skeður, þótt þeint hefndist einhvern tíma, guðleysingjunum hér í dalnum. Tvö höfðu þau nú mætt við kirkjuna í dag, Tóni gamli sérvitri og hún — auk prestsins. Hvar ætlaði þetta annars að enda með guðstrúna í dalnum? Messudag eftir messudag hafði orðið messufall, því að fáir sem engir mættu við kirkjuna, jafnvel meðhjálparinn lét sig stundum vanta. Börn fæddust og uxu upp óskírð, unglingarnir fermdust ekki, þessum svokölluðu kontórgiftingum fjölgaði stöð- ugt, ef það gifti sig þá ekki sjálft fólkið. já, livílík Sódónia var Jjessi sveit ekki orðin! Sigga Sunnefa talaði upphátt við sjálfa sig og gekk í sprettum. Nú nam hún staðar og té>k lítið glas upp úr pilsvasa sínum, hristi það og brá því upp við sól. Ekki nema lögg! Skollinn hann Tóni sérvitri hafði stútað sig liclzt til vel á því við kirkjuna. Sigga Sunnefa hellti vænni hrúgu úr glasinu á vinstra handar- bakið, bjó síðan til langan garð úr tóbakskornunum, bar nefið hægt að fremri garðendanum, dró Jaað með hægu sogi upp í miðjan garð, fór svo fyrir liinn endann og lauk því, sem eftir var. Þannig fékk hver nös sitt. Svo dæsti hún af vellíðan. Sá maður átti guðslúessun skilið, sem liafði kennt mönnum að nota tóbakið!

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.