Stígandi - 01.07.1945, Page 50

Stígandi - 01.07.1945, Page 50
224 BÚENDATAL SANDS í AÐALDAL STÍGANDI oddsstað. Um Ingibjörgu kveður séra Vernharður Þorkelsson í Nesi, föðurfaðir Jóhanns dómkirkjuprests, svo, í sóknarvísum ná- lægt 1824: Gjörn að veita gestum björg, — gleður í von, farandi, ein, sein heitir Ingibjörg, ærukona á Sandi. Synir þeirra voru Vigfús og Guðmundur, faðir Guðna í Hraun- gerði, föður Þuríðar, móður Jóns í Állhól í Ilúsavík. Dóttir Sandshjóna var Guðbjörg, fríðleikskona, en laus á kostum. Hún var móðir Pálínu, móður Flóvents, föður þeirra Flóventssona á Húsavík, Helga, Jóns og þeirra bræðra. Guðmundur Pétursson var hörku- og fjáraflamaður. Mælt er, að hann hafi slegið eign sinni á dýrmætt vogrek, er bar á Sandsfjörur, og hagnýtt sér, en orðið að greiða Þórði sýslumanni í Garði stórfé til jress að láta Jjað mál kyrrt liggja, er jrað hafði kvisazt, og farið frá Sandi nær öreigi. Vigfús Guðmundsson býr hér tvívegis móti föður sínum, en sjö ár j:>ess á milli bjó Vigfús á Hafralæk. Hann flæktist víða, kallaður Barna-Fúsi. Atti börn við konu sinni, Kristínu Andrésdóttur frá Geirbjarnarstöðum, og fleiri konum. Eitt af börnum lians skil- getnum, var Ingibjörg, kona Hansar Bérings í Kaldbak. Meðal barna þeirra Kaldbakshjí'ma voru: Óli, fór til Ameríku, Jóhann, er drukknaði á hákarlaskipinu Veturliða á Bakkakrók vorið 1872, og Sigríður, er fluttist suður á land. (Hún giftist Þórði verzlunar- manni og bæjarfulltrúa á Hól í Reykjavík Guðmundssyni: en meðal barna þeirra eru auk annarra, Helga, kona Arents Glaes- sens, stórkaupmanns, og Jóna, kona Richards Thors, fram- kvæmdastjóra í Reykjavík.) Þórður Þórðarson var borgfirzkur að ætt og uppruna, en kona hans var Solveig Vigfúsdóttir, hálfsystir Ingibjargar, konu Guð- mundar Péturssonar. Þórður kom frá Litla-Hamri í Eyjafirði að Sandi, bjó þar eitt ár, jrá eitt ár á Höskuldsstöðum, aftur á Sandi í fjögur ár, þá tvö ár í Naustavík, og síðan víða á hálfgerðum hrakningi. Þórður er oft ritaður og talinn Jónsson, en jiað er rangt. Hann var nefndur ,,kisi“ og festist það við suma niðja hans. Börn þeirra hjóna voru Þuríður og Guðmundur. Þuríður var kona Sigurðar Ólafssonar á Kotamýrum, er andaðist fjörgam- all í Skörðum 1898. Sonur þeirra var Jón ,,sirs“ á Sandhólum og Breiðavík, ókvæntur og niðjalaus. Guðmundur Þórðarson bjó á

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.