Stígandi - 01.07.1945, Side 62

Stígandi - 01.07.1945, Side 62
236 FRAMTÍÐIN STÍ’GANDI og verður þess var, að návist hans er öðrum nauðsynleg, mun hann aldrei örvænta, því að hann veit, að hann á sína stöðu sólar- megin. Hann hefir sjálfur orðið að sól vegna þess, að honum hefir tekizt að varpa af sér þeirri þoku, er hindraði útgeislun hans, en þá n jóta hennar allir. Fyrir þessu hafa menn verið blindir vegna einangrunar. Hin merkilegu sannindi, er áhrif fjórðu stærðar hafa á þá, munu skjótlega venja þá á að hugsa á sviði hinnar fjórðu stærðar, um leið skilja þeir hið nýja líf og þær breytingar, er munu koma fram. Þjóðlegir sálfræðingar rnunu sanna, að ekk- ert getur eyðilagt nokkra þjóð, hversu smá sem hún er. Hvernig sem farið er að, rís hún úr öskunni á ný. Þeir munu sýna, að tunga þeirra og siðir hafa lifað allar hörmungar af. Gyðingar hafa sann- að þetta. Margar fleiri þjóðir mætti nefna. Þeir, sem óttast banda- lag allra þjóða, ættu að kynna sér söguna, áður en þeir fullyrða nokkuð um upplausn, er af því kynni að leiða. Þeir ættu að kynna sér sögu Englands, sem var í upphafi smáríki með margs konar mannflokka, en nú er þjóðin fastmótuð og hefir verið það í næst- um þúsund ár; og þó eru enn við líði öll sýslu- og héraðatakmörk landsins, aðeins að nafninu til að vísu, en áður bárust íbúar þeirra á banaspjót. En þeir hafa gætt erlðavenju sinnar og tungu- taks — á sumum stöðum á mjög merkilegan hátt — eins og í hinu litla greifadæmi Cornwall, þar sem íbúarnir enn í dag tala urn menn úr næstu sýslu sem „útlendinga". Sú sameining þjóðanna, sem koma mun, verður máske á ein- hvern hátt allstyrsöm, en hún mun einnig koma eins og þýður torblær eftir harðan vetur, en þó ekki alls staðar. Á sumum stöð- um, og á sumum tímum, mun hún valda árekstrum og átökum, sem kunna að virðast tvísýn, en hugsuðir þjóðanna munu jafnan halda sigurvoninni vakandi. Þeir blása nýju lífi í liana og þeir \ erða innblásnir af dulmætti framþróunarinnar, sem starfar undir yfirborði hugsanalífs hinna langjjreyttu Jrjóða, sem að lokum hrósa sigri, er þær hafa öðlazt betri og fyllri menningu en þær liafði nokkru sinni dreymt iím.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.